Dagurinn í gær
28.3.2008 | 08:20
var dagurinn sem eggið reyndi að kenna hænunni.
Deilt er um hvor hafi komið á undan eggið eða hænan.En hvergi minnst á hanann.
Í þessu tilviki í gær var það pottþétt hænan sem kom á undan.
Kannski að maður sé hænu-hana-greyj þar sem Mr.Pálmason er svo mikið að heiman.
En kvað með það þá langar mig að benda ykkur á færsluna hjá henni Dísu Dóru..........
Frábær færsla sem fær sellurnar til að krauma í kolinum á manni.
http://disadora.blog.is/blog/disadora/entry/486519/#comments
Bros á föstudegi til ykkar
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Ég er ekkert endilega
25.3.2008 | 18:35
trassi
Þó ég eigi eftir að gera skattaskýrsluna!!!!!
Þetta blogg á að vera myndablogg.
Og hér byrjar það.
Skírdagur
þá voru þessar skvísur fermdar
Þið getið rennt yfir myndirnar og séð textan við þær...en ég byrjaði sem sé út í kirkju
svo í veislu hjá Guðlaug niðri í Kíwanis
Síðan lá leiðin í Framheimilið í Berglindar(fósturömmubarninu mínu) veislu
Og þá er það föstudagurinn langi
Þá var lystasýning Þórdísar í Kíwanis.................
Sýningin gekk mjög vel og hrikalega gaman að sjá þá bloggvini sem kíktu við svona læV
eN DAGURINN VAR EKKI ALVEG BÚIN ENDA SÁ LANGI
Við smáfjölskyldan skelltum okkur upp í Munaðarnes í sumarbústað til litlu sys
En er farin ,búin,bæ í bili......
KNÚS Á LÍNUNA.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
SMÁ INN KAST
23.3.2008 | 04:15
Það er ekki laust við að ég sé farin að dotta hér með tölvuna í fanginu...
en eini tíminn að fá aðgang að tölvu er meðan mín dásamlega dóttir sefur,skreppur í sturtu,klóið eða eitthvað......
Ég er virkilega farin að þrá að tölvan mín komist í lag..........
því nú er lag.......4-5 síðustu sólahringar eru búnir að vera einstaklega skemmtilegir og eftirminnilegir og kemur allt um það með tilheyrandi myndum þegar veður lag eða í lagi.HUMM.
Ég kastaði inn páskakveðju á alla sem eru á bloggvinalistanum mínum nema einn........ég var ekkert ljót í mér eða neitt og hef aldrei verið en fékk eftirfarandi upp þegar ég ýtti á senda.......
Eftirfarandi villur komu upp:
- Vegna ítrekaðra brota á skilmálum blog.is hefur verið lokað fyrir að þú getir skrifað athugasemdir
Þetta er hjá nýjasta bloggvininum sem kom inn í gær eða fyrradag og var ég að kíkja á hann í fyrsta skipti........
Nú eru augun alveg að lokast og ég að breytast í páska
Hafið það gott yfir hátíðirnar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
Hæjjjjj!!!!!........Topplaus tilhlökkun !!!!!!.......Allt bara !!!! Lyst og fjör !!!!
17.3.2008 | 12:06
Ég veit varla hvar skal byrja......tölvan mín er full af fúlum fyrirbærum og er komin í hendur tveggja pólverja hér út á horn botnlangans og ætla þeir að strauja kvikindið......
Ég sit hérna í Lísustól með tölvu dótturinnar á hnjánum og nýt þess að það er páskafrí í skólanum og dúllan sofandi....Mig langar rosa að kíkja á ykkur en má bara ekki vera að því.....það er ekkert mjög vel séð að ég sé í öðrum tölvumÉg ku fikta svo mikið að allt fer til þið vitið..............
Ég fattaði áðan að fara inn á símnets póstinn minn og sá að ég var búin að fá svar við fyrirspurn er ég sendi Þorgerði Katrínu.Geri því betri skil eftir páska ....
Fermingarboð á ísskápnum mínum eru nokkuð mörg og því miður bera þau öll upp á sama daginn.......Skírdag......En þá á að ferma fósturömmu/afabarn okkar......þori ekki að leita að mynd af henni í þessari maskínu
Ég þarf að fara inn á msn-ið hjá skvísunni minni og ná í póst sem þangað var sendur og áframsenda hann til útprentunarfæ ekki leifi til að tengja prentarann við þessahumm.
Ég fór inn á msn-ið hjá dúllunni til að senda póst mjög mikil vægan.....og ja tölvan varð eins og brjálað ljósaskilti....svo ég bætti við nafnið hennar "solla í tölvunni".....Lenti í einu góðu spjalli við gaur sem ég vissi hver var en hann ekki hver Solla var.......og hann fór að segja þessari sollu að mamma hennar Gunnu hafi einu sinni verið að......hahaha.. gaman vó!!
Rosa margt sem ég þarf að gera núna....þar á meðal að losna við 15.kg fyrir skírdag....
Ég var nú reyndar bara að fara að blogga um þetta
http://zordis.blog.is/blog/zordis/entry/475538/
Lystasýning á þakinu.....
ÞÓRDÍS verður með smá sýningu í galopnu Kiwanishúsin hér í Þorlákshöfn.......á föstudaginn langa kl 14-18.
Hvað er betra en að skella sér og skoða
lyst,mann og annan.
Og hér er svo auglýsingin.
Vertu velkomin að koma á listasýningu, á Föstudaginn langa þann 21.mars
Sýningin stendur í þennan eina dag, lengsta dag ársins . Á sýningunni verða akrýl listaverk, gerð á þakflísar.
Það væri mikill heiður að fá þig og þína í tíu dropa og skraf.
Sýningin hefst klukkan 14:00 18:00
Staðsetning Kiwanis húsið í Þorlákshöfn.
Hlakka til að sjá þig
Bestu kveðjur,
Zordis
Það er auðvelt að rata í þessum stórkostlega bæ Jsem Þorlákshöfn er. Þegar þú kemur í bæjinn er hringtorg og nokkrum metrum síðar götuljós þar á að beygja til vinstri og keyra niður Selvogsbrautina alveg á enda. Við enda götunnar er stöðvunarskylda og þar á að beyjga til hægri og stendur Kiwanis húsið þá vinstra megin við veginn .... Við setjum örugglega blöðrur eða eitthvað til að minna á okkur!
Hlakka til að sjá þig J
Kk,
Zordis
Þarna gefst frábært tækifæri til bloggvina hittings
Veit að margir ætla að mæta.
Knús á línuna..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
Smá innkast......
14.3.2008 | 00:07
ég er búin að fatta að ég get ekki verði án tölvu frekar en súkkulaðis......
Þetta tvennt fer reyndar einstaklega vel saman
og í sitthvoru lagi....
Ég á von á tveim tölvugúrúm um helgina og þá vonandi komumst við maskínan í lag....
Ég er ekki búin að múta þeim neitt gæti þó verið að ég skellti í eina.....hef einstaklega gaman af því.......................
Vona að ég geti farið að kíkja almennilega á ykkur.......
Eigið góðan föstudag
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
Bara ponsu........
8.3.2008 | 22:43
Hæjjjjjj.
Tölvan mín er með vírus eða ónýt ......
Ég er að baka fermingartertu fyrir systurson Mr:Pálmasonar
Svo er ég að baka slatta af Sörum en á eftir að setja krem og súkkó......
Sörurnar eru ætlaðar til að múta Trausta mág til að reyna að koma lífi í maskínuna fja.....
Morgundagurinn fer í fyrstu fermingarveisluna á þessu ári.......
Ég hef ekki komist yfir að kíkja á ykkur öll.
EN
knús á línuna og góðan sunnudag........
Maður er hálf fatlaður að hafa ekki eigin tölvu
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)
Bara fínnt að blogga á nóttunni.......
6.3.2008 | 03:16
Ég get með góðri samvisku verið hér því Mr: Pálmason er heima og getur sko séð um að skutla >>>> >>"litlu kreisý" okkar í skólann.......
Þegar karlinn er heima get ég fengið mér bjútí á daginn og vakað fram á nótt......
Og það sem er best sofið þangað til ég vakna af sjálfsdáðum......
Þarf engan bjútí þann daginn....
Það er ekki beint búin að vera lognmolla á heimilinu undanfarið........
Þessar elskur komu í fyrradag að knúsast með frænkusín........
Systkynin Gabríel Ómar og Elísa Birta
Auðvita fór maður í ömmó.....svo ætluðum við að leggja okkur en ég gafst upp þvílíkt ferðalag á einu barni í svefni..........þIð getið klikkað á myndirnar til að stækka þær
Alger krúttalína.Svo fór Mr:Pálmason í afahlutverkið því ég þurfti að skreppa á Selfoss á Kaffi krús. Þar hitti ég Hrönn.Ásdísi,Dísu Dóru og litlu dóttir hennar og Svandísi.Svandís ég kemst ekki inn á síðuna þína........ég er búin að senda þér póst um leifi til aðgangs...Redd'essu plís.........
Í kvöld meina í gærkvöldi þá tók dóttirin það að sér að aflita toppinn á nokkrum vinum sínum með tilheyrandi gauragangi............
Ég elska þessi gerpi ef þið smellið á myndirnar þá sjáið íð texta með þeim og getið stækkað með því að tvísmella..........Kvöldið var ekki alveg búið því nú þurfti dóttirin brúnkukrem..........
Krakkarnir eru að fara á SAMFÉS á föstudaginn og lúkkið, dúið og hvað þau kalla þetta allt saman verður að vera í lagi.......
En nú er ég orðin sybbin og ætla í bælið..........
Kíki á ykkur á morgun.
KNús á línuna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
29.febrúar...
29.2.2008 | 12:33
Ekki skrítið að ég hafi sofið yfir mig.....þessi dagur er jú bara á fjögra ára fresti.......
Bjóst ekki við að þurfa að vakna fyrr en á laugardaginn
Ég vaknaði starndi á klukkuna 8.23.....Gunnnnnna!!!!!!! Dóttirin var snögg en snjórinn fór svo að stríða okkur er út var komið.
Hann Böddi gamli átti afmælið á þessum degi.
Þegar ég var sextán ára þá vorum við Böddi jafnaldrar bæði setán.(hann reyndar 64)Við vorum bæði að vinna í Meitlinum (frystihúsinu) sem var og hét.
Ég var þeirrar gæfu aðnjótandi að vinna töluvert með þessum snaggaralega karli eða táningnum eins og ég kallaði hann og líkaði karli það vel....
Við vorum saman í "pönnunum"
Karlinn sem var prakkari átti það til að missa vatnsslöngun óþarflega nálægt mér og á föstudögum fékk ég gusuna í andlitið og lét hann ávallt sem ekkert hefði í skorist en komst nú ekki upp með það........ég hnýtti saman blótyrði yfir honum meðan ég réðst á bakið á honum til að þurka mér í framan... hann hló og sagði að tungan mundi detta úr mér ef ég hætti ekki að óskapast þetta.......
Á föstudögum ræddum við hvert skyldi halda á sveitaball og strákamál og allt er því við kom og létum eins og jafnaldrarhann var alger æði karlinn.
Áföstudögum að afloknum vinnudegi kvaddi hann mig alltaf með þeim orðum"Ég held ég láti allt kvennafar eiga sig um helgina" Enda vel giftur .
Við fórum oft í grettukeppni svona alveg óvart allavega af minni hálfu.........karlinn byrjaði þá að skrolla uppí sér tönnunum og hálf setja þær út og ég gretti mig á móti og svona gekk þetta af og til...þar til karlinn sagði "Hættu að geifla þig svona....þú verður svo andskoti ljót þegar þú verður fullorðin"
Böddi minn er eflaust að horfa niður til mín núna og furða sig á að ég sé þó ekki ljótari en þetta.
Blessuð sé minning þín elsku karl.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (32)
Jæjaa
28.2.2008 | 09:57
Konan er (hress) og kát að vísu með eina kvefpestina enn
Í gærkvöldi og eitthvað fram á nótt kyngdi niður snjó........þannig að í morgun var farið á blússinu útúr bílskúrnum hálfan botnlangann eða svo..rölt svo til baka því bílskúrshurðaropnarinn/lokarinn dreif ekki þaðan sem ég var komin.
Rölti svo aftur í bílinn sneri við og lagði af stað sem leið lá út götuna.....en Pólverjarnir á horninu voru búnir að festa sig svo ég varð að stoppa og komst ekkert að stað aftur......fyrr en þessar elskur ýttu mér....
Ég hef alveg einstaklega gaman af svona vafasömu færi
Hann Gunnar bloggvinur Svíafari er búin að opna lista fyrir vinsæl blogg.
Þið finnið hann hér á síðunni undir skemmtileg blogg og þið ýtið á til að komast á síðuna og þar finnið þið skemmtileg blogg um allt og ekkert.......lífið og tilveruna og svo fr.v.Þar getið þið líka skráð ykkur á þennan lista.
Flott hjá þér Gunni.
Svo af því það er komin álíka mikill snjór og um daginn þá skelli ég inn nokkrum myndum síðan þá.
Allt tiltækt var notað
Trén mín snævaþakin við húsið mitt.
En bæ í bili.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
Ég er ástfanginn......
27.2.2008 | 18:39
Það var ást við fyrstu sýn
Þó hann hafi veitts að mér og látið ófriðlega við okkar fyrstu kynni
þá er ég alltaf jafn hrifin.
Í gærkvöldi þegar ég kíkti til hans tók hann mér fagnandi og
hreinlega lagðist kylliflatur við fætur mér.
Í gærkvöldi sleikti hann á mér tærnar.
Hann tilbiður mig EÐA það hélt ég.
Tvær konur bættust í hópinn.
Þó hann hafi mótmælt komu þeirra kröftuglega
þá var hann farinn að daðra við aðra þeirra fljótlega
mjög áberandi.
Afbírðisemin vall upp í mér,ég sparkaði af mér klossanum
og breyttist í ballerínu á svipstundu.
Með tælandi hreifingu nálguðust berar tær mínar ásjónu hans.
Hann hnusaði fyrirlitlega og gekk sperrtur í burtu.
Churt !!!!!!!!!.
Þetta er reyndar ekki hann Churt minn en mjög líkur honum og sama kyn silky terrier
Hvernig er annað hægt en að falla fyrir svo falllegu dýri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Reglur "STRÁKA/kARLA"
27.2.2008 | 00:37
KarLar eru alltaf að núa okkur skvísunum upp úr REGLUNUM OKKAR.......
Hér eru nokkrar af reglum þeirra:
Lærið á klósettsetuna.Þið eruð þroskaðar........Ef hún er uppi setjið hana þá niður........við höfum hana uppi,þið niðri.Við kvörtum ekki þó þið skiljið hana eftir niðri........
Já og nei eru óaðfinnanleg........og ásættanleg svör við næstum öllum spurningum.........
Ef þér finnst þú FEIT........þá ertu það væntanlega.......ekki spyrja okkur.......
Ef eitthvað veldur okkur kláða ........þá klórum við okkur.........
Við horfum á brjóst af því að þau eru til þess..........Reynið ekki að breyta því.............
Biddu um hvað sem þú villt en hafðu það á hreinu að:
Lúmskar vísbendingar duga ekki.........
Miklar vísbendingar duga ekki......
Augljósar vísbendingar duga ekki.........
SEGÐU ÞAÐ BARA BEINT ÚT !!!!!!!!!!!!
OG BARA KNÚS Á LÍNUNA..........
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Þetta er júróvísjonlag,þetta er júróvísjónlag..........Til hamingju með sigurinn!!
24.2.2008 | 06:40
Þett'er meiriháttar júróvísjónlag...........
Þett'er alveg tíbíst júróvísjonlaag.......
Viðurkenni fúslega að mér finnst Spaugstoujúróvísjónlagið .......besta júrólagið...nee djók...en Spaugstofumenn fóru á kostum í gærkvöldi.http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4359995
Menn hafa farið geyst í að tjá sig um sigurlagið og kommentið hans Friðriks Ómars
(sem mér fannst nú allí lagi og hef heyrt að það sé vel réttlætanlegt).....
Ýmist með eða á móti eins og gengur..
Fólk tekur þessa keppni sem enginn vill missa af......
og ennþá færri horfa á ........djóóók......
mis alvarlega....
Mér finnst þessir krakkar vel að sigrinum komnir.......
Ég eyddi minni inneign í þetta lag og lag nr.9002001.....Lag Davíð Olgeirssonar....
júrólag eða ekki ....þá hreifst ég mjög af því lagi og söngurinn var ja bara ólýsanlega flottur......
Mér fannst líka guluhanskalagið gott þegar ég hélt fyrir augun...
Ho Ho Ho.......mjög flott lag en var ekki alveg að skila sér þarna í gær
Þetta voru allt mjög flott lög misjafnlega vel flutt.....
Lengi lifi Spaugstofan!!!
Eurobandið fer til Serbíu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
Að meðaltali
22.2.2008 | 10:49
sofnar fólk á 7 mínútum.....
lifa rétthentir 9 árum lengur en örvhentir...
endist blíantur til að draga tæplega 60 kílómetra langt strik....
segja konur um 7000 orð á dag meðan karlar láta sér nægja rúmlega 2000....
hlær fólk 15 sinnum á dag....
framleiðum við 25000 lítra af munnvatni um ævina,en það ætti að duga til að fylla tvær sundlaugar.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Tourette syndrom og einelti sem af því hlýst.
21.2.2008 | 02:13
Ég hef lengi vellt því fyrir mér hver skylda skóla,umsjónarkennara,skólahjúkrunarfræðinga er varðandi það að upplýsa skólafélaga barna með sýnilega og ósýnilega sjúkdóma svo sporna mætti við einelti í þeirra garð.
Þá er ég ekki að tala um þá nemendur sem eru með umbúðir,eru í hjólastól,með hækjur og þess háttar.Allir vita að umbúðir og hjálpartæki þýða BÁGT.Greyið er fótbrotið,handleggsbrotið,og svo frv.All flestir fá jákvæða samúð út á það...sem er bara af því góða.
Ég spurði umsjónarkennara dóttur minnar um þessi mál í vetur og sagði hún mér að kennarar og skólastjórnendur væru bundin þagnarskyldu og gætu þess vega ekki rætt þessi mál á neinn hátt.
Ég hef verið að grúska í nýja frumvarpinu um grunnskóla og þar kemur það skýrt fram að fara eigi með einstök málefni barna sem algert trúnaðarmál bæði hvað varðar upplýsingar frá foreldrum,leikskólum og öðrum sem hafa haft með barnið að gera og er það vel.
Samt sem áður þá eru margir sjúkdómar sem mér finnst nauðsynlegt að útskýra fyrir skólafélögum ,ekki bara bekknum sem viðkomandi er í heldur líka bekkjum sitt hvoru megin við allavega.
Ég veit svo svæsið dæmi um einelti vegna Tourette að ég er ekki bara brjáluð yfir því.Ég er mjög hrygg vegna foreldrana og þessa barns sem hefur þurft að gjalda svo dýru verði fyrir sjúkdóm sinn.
Svo eru líka andlegir sjúkdómar sem eru þess valdandi að skólasókn barna með þá sjúkdóma verður ábótavant og skólafélagarnir taka sko eftir því.
Útlit kallar oft á einelti....of feit ...of mjó....of stór .......of lítil.......of púkó .....of eitthvað.......
Heyrði meira að segja 2 níu ára stelpupjötlur spyrja skólasystur sína "Hva kaupir þú fötin í kolaportinu eða......"Stelpan var ekki í levais brókum eins og hinar........
ÉG ER SANNFÆRÐ UM AÐ EF FRÆÐA MÆTTI SKÓLAFÉLAGA BARNA MEÐ ÞESSA SJÚKDÓMA YRÐI KOMIST HJÁ STÓRFELLDU EINELTI.
Ég hef sennt fyrirspurn til menntamálaráðherra um þessi efni og er lofað svari innan viku.
FYRIRÞÁ SEM EKKI ERU MEÐ Á TÆRU HVERNIG TOURETTE SYNDROM ER ÞÁ ER HÉR MJÖG GÓÐ GREINAGERÐ Á HEIMASÍÐUNNI HANS RANNUGS http://www.alster.nu/tourette_is.html Endilega kíkið á hana og fræðist um sjúkdóminn og sjáði hvað Tourette sjúklingar liggja vel við höggi einnig hvernig komast megi hjá þessu helvítis einelti með fræðslu og upplýsingu.
Takk Gunnar minn fyrir að leifa mér að benda á skrifin um TS á síðunni þinni.
Eigið svo góða nótt það sem eftir lifir af henni og
flottan fimmtudag.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 03:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
Sextíu og sex þúsund sex hundruð sextíu og sex.....
19.2.2008 | 09:51
Hæjjjjjj!!!
Verður þú
Sextíu og sex þúsund sex hundruð sextugasti og sjötti
gesturinn minn????
Teljarinn er neðst á síðunni
og
Þú verður sko að láta vita af þér......
í athugasemdaboxinu!!!
Ég byrjaði að blogga í maí 2006.........bara upp á grínið....
Það hefur gengið á ýmsu síðan og ber þar hæst þegar bloggvinir komu til sögunnar
Það hefur verið mjög gaman að kynnast ykkur á þennan hátt.
Suma hef ég hitt og aðra þekkti ég fyrir en ég ætla sko að hitta ykkur öll einhvern tíman.
Og pælið í því.....
þið hjálpuðuð mér inn á þing.
Ég hef alltaf sagt að ég þyrfti að komast inn á þing
þá með eitt og annað sem mér finnst alþyngi ekki gefa nokkurn gaum.
Mér tókst með ykkar hjálp að koma
lesblindumálinu inn á alþyngi........
Mér finnst þessi tala 66666 rosaflott þó hún minni mig á einhverja hryllingsmynd sem ég fór á á unglingárunum
Hún minnir mig líka á Bubba Morthens og færð því þú sem verður
nr:66666 disk með goðinu.
Knús á línuna
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
Æðibiti þetta....
17.2.2008 | 10:23
Hallllllló!!!!!
Ég er ekki alveg í blogghamnum svo ég læt þetta krúttlega myndband redda mér í bili.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Verð að lát'ann flakka
13.2.2008 | 16:55
vandamál í kynlífinu, því eftir að ljósin eru orðin slökkt á kvöldin,
þá sjá þau ekki lengur táknmál hvors annars. Eftir nokkrar nætur
af káfi og misskilningi kemur konan með uppástungu. Elskan,
segir hún á táknmáli, við ættum að nota sérstök
svefnherbergistákn. Til dæmis, ef þú vilt gera það, þá kreistirðu
bara vinstra brjóstið á mér einu sinni. Ef þú vilt ekki gera það,
þá kreistirðu það hægra einu sinni.
Manninum finnst þetta frábær hugmynd og sendir táknmál aftur
til baka: Góð hugmynd. Nú, ef þú vilt gera það, þá teygirðu þig
bara yfir og togar einu sinni í typpið á mér. En ef þú vilt ekki gera
það, þá togarðu svona 50 sinnum í það.
Checked by AVG Free Edition.
Version: 7.5.516 / Virus Database: 269.20.4/1275 - Release Date: 12.2.2008 15:20
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
Æfingar dagsins:
13.2.2008 | 12:38
Æfingar dagsins:
Munið mikilvægi þess að taka sér hlé frá vinnunni,
í dag skulum við gera andlitsæfingar, takið vel eftir og gerið eins:
Checked by AVG Free Edition.
Version: 7.5.516 / Virus Database: 269.20.4/1275 - Release Date: 12.2.2008 15:20
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Grey hún og hugleiðingar hennar.
12.2.2008 | 01:14
Ef maður veit að maður á betra skilið
á maður þá að vera með læti eða....
geima það bara með sjálfum sér
og leifa öðrum að halda að maður sé Klakadrottingin sjálf ....
eða að manni sé slétt sama?????????????
Það hlýtur að koma fyrir alla að vera ekki sama um hvað öðrum finnst um mann.
Einhver staðar las ég að ælti maður að reka illt út með illu sé það í líkingu við að kveikja í húsinu sínu til þess eins að losna við rottu...
Ég kýs að vera virt fyrir það sem ég er.......hvorki meira né minna.......
Það dugir.
Hafa aðrir leifi til að stytta sér leið útúr vitleysunni hjá sjálfum sér með því að drulla yfir aðra og rembast eins og rjúpan við staurinn við að sýna gervi-frontinn sinn með því að færa í stílinn og láta þá gjarnan aðra gjalda fyrir það.
Að skoða sig að innan getur varla kostað neitt ....jú kannski sársauka hjá þeim sem virkilega og sannanlega horfast í augu við sig og komast að því að þeir breyttu rangleg eða hreinlega lugu..........
Dýyyyy ég veit varla því ég er að bulla um þessa hluti...
Grey ég er bara í fúlu skapi.....
Húmorinn skrapp eitthvað og hefur ekki skilað sér....
Dugnaðurinn er í felum bak við skáp............ég ætla að ná í hann á morgun.....(sú lata)
Góða skapið mitt virðist hafa fokið með rokinu........kannski hangir það á grindverkinu
veit það fer alla vega ekkert mjög langt...........
Tölvan er búin að vera hundleiðinleg í einhverjum hægagangi og ég að gefast upp á henni svo birtist tæknigúrú frá símanum á laugardaginn og skipti út rádernum og viti menn.....nú flýg ég um á netinu og er að fara að kíkja á ykkur.....bara núna.......sofa svo smá og skutla gerpinu mínu í skólann og fara svo aftur að sofa fram að hádegi.
Knús á línuna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Fortíðarflipp........
9.2.2008 | 03:03
Margar góðar minningar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 03:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)