Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008

Samkvæmt stjörnuspá

á ég að vera í brandarastuði í dag og ég mun skilja mikilvægi þess að vera alvarleg á vissum augnablikum.....

Ég verð semsé í góðu standi í dag.....

Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá neinum að ég er byrjuð að vinna úti í golfskála.

það var algerlega klikkað að gera um helgina,trúlega um 350 manns sem sóttu völlinn heim.

Þessar elskur stóðu vaktina með mér

l_43981bb0743ee89b98b8598fa6530d45

Sara Björt og Guðrún Jóna.

Dóttirin er ráðskonurass og dáldið skass(veit ekki hugmynd um hvaðan hún hefur þetta)Hún lætur allavega ekkert vaða yfir sig.Stóð sig eins og hetja í afgreiðslunni.Sumir eru frekari en aðrir og þegar henni var nóg boðið frekjulætin og fólk var að ryðjast og koma inn í afgreiðslu annarra sá ég hana rétta upp höndina og hvæsa"bíddu" snéri sér svo að þeim sem hún var að afgreiða ljúf eins og lamb og sagði með englaröddinni"fleira fyrir þig"

Þeir sem urðu vitni af þessu höguðu sér eins og fólk á eftirGrin

Hún þurfti nú líka að siða móður sína........Grin

Hljómsveitargaur sem ég kannast við..."Þú ferð svo að kíkja á ball með okkur.."

Ég " já ef ég fæ frítt inn elskan"

Gunna eftir á"Mamma!!! ertu að reyna við hann?????''

Ha?

Einhver maður"hver pantaði svona gott veður?"

Ég."Ég akkúrat fyrir þig"

Gunna þegar kallinn var farinn."mamma þú segir ekkert svona við aðra menn.....það er eins og þú sért að reyna við hann..."

Í gær var ég nánast bara að æfa mig í sólbaði....lítið að gera og skjól við dyr skálans og ég 7 freknum ríkari.

Nú erum við alveg veik í heitapott en tímum ekki að kaupa svona djö dýra eins og þá nýju...þannig að ég smellti inn auglýsingu á auglýsingasíðu og auglýsti eftir ódýrum lítið notuðum .....

Ef þið vitið um einhvern sem er að fara að skipta um pott þá plíssssss látið mig vita.Eins ef þið vitið um einhverjar svona auglýsingasíður.

Síðan er knús á línunaKissing

 


Mig minnir það....

Var ekki einu sinni fyrir langalöngu(þegar ég var 17) til bók sem hét og heitir þá væntanlega enn " Árni birtingur og skutlan í skálanum".

Held það.Ég lét afa hans Árna lesa þessa bók og þótti honum nú ekki mikið til koma um þessar bókmenntir.......

Hvað um það.Ég er í ESSINU mínu.....búin  að hitta svo marga skemmtilega karla og konur líka, í dag úti í golfskála.

Gaman að heilsa þessum andlitum frá í fyrra sumar.

Og þið hélduð að ég væri að klippa trén og kela við minn krúttlega kall.Grin ónei.

Nú umgengst ég bara eðla golfara eða meðal.

Hugsa allt í gríni og forgjöf og eitthvað er um pútt.......

Og eins og Hrönn sagði....

"þið megið geta upp á hvað ég er að hugsa um núna."

Lifið í lukku.

 


Gleðilegt sumar

Gleðilegt sumar

og

takk fyrir

skemmtilegan vetur.

c_documents_and_settings_owner_eyahruni_my_documents_my_pictures_new_folder_r_de_roser

Sumarkoss.


Áttu egg ????

Eftir það sem hefur gengið á í dag og allur þessi fréttaflutningur af því,þá finnst mér furðulegt að ekki hafi komið nokkur viðbrögð frá stjórnvöldum.

Mér finnst það alger móðgun við þjóðina.Angry

Ég er eiginlega dálítið stolt þó ég hafi hvergi komið nærri af þessu uppþoti.

Það er eiginlega lögnu komin tími á sjáanleg mótmæli.

Hvort sem um mistök eða heimsku lögreglu var að ræða þarna á staðnum eða fréttaflutningur var með getgátuÍvafi þá fannst mér gott að sjá hversu lögreglan er megnug og mætti trúlega oftar beita svona hörku.......mundi kannski öðlast óttablandna virðingu aftur......

Góð auglýsing fyrir þá.

Þið sem haldið að ég sé að grínast þá er ég ekki að því.

Það sem þetta ástand hefur orsakað er...................

að engar vörur hafa borist til Þorlákshafnar......

Því sit ég við tölvuna og er að pikka smá....

í staðin fyrir að vera að raða í hillur og kæla úti í golfskála....

Fátt er svo með öllu illt.....

á ég að halda áfram....

NEEEEE.......

Knús..


Hvað er títt???

?.

Kellan er búin að vera uppfull af vorinu og ætlaði virkilega að taka til hendi utan húss t.d.ryðja niður grindverkinu utan af lóðarferlíkinu,fara með hekkklippurnar á trén sem eru allan hringinn utan um ferlíkið,hreinsa svo öll beðin.....ég er að tala um töluvert á annað hundrað metra af trjábeðum og grindverki.

Svo ætlaði ég örugglega að gera eitthvað meira....fann mér eitt og annað smálegt innan húss áður.

Ehemm...það eina sem sé sem ég hef gert utan húss er að þrífa bílinn og spjalla við nágrannana.

Ég var að koma úr skemmtilegu afmæli mágkonu minnar

Ástu Pálma

Til hamingju dúlla. 

Ásta Árna systir og Ásberg (berglindar veisla)

Lífsgátan var að vísu ekki leyst í afmælinu en við fórum langt með hana0002014A

Aðfaranótt laugardags var ég svo að ferja nokkur ungmenni heim frá Selfossi.

Þessi bláblikkandi á eftir mér fengu mig til að fara út í kannt,rúðan niður......Devil

Hva ? viljiði sjá á mér brjóstin núna ???

Nei bara ökuskírteinið....W00tPolice

Sólveig þú varst nú að flýta þér svolítið....Police

Já ég er að flýta mér Halo

Þú keyrðir alltof hratt.....Police

Já ó er það ? ég skal bara fara hægt í smá tíma og jafna það út HaloWink

Löggan var smá vandræðaleg og sagði mér að aka hægar....ég veit ekkert á hvaða hraða ég var.

En ég er næsta viss um að hefði ungmenni verið undir stýri hefði hann fengið sekt.

Á morgun byrja ég að vinna í golfskálanum.Völlurinn verður opnaður næstu helgi...Nú verð ég að fara að rifja upp golfmálið....

Grín er ekkert grín og nítjánda hola er ekki til.....Sideways

Eigið góðan mánudag....

 

 


Frábært þetta.

Og þakkar vert.

Ég verð að segja að ég er alveg í skýjunum yfir þessari frétt.

Það hefur mikið skort á að foreldrar og aðrir á heimili barna með hegðunarvanda fái mikið meiri leiðsögn en hvenær þau eigi að taka pillurnar sínar....


mbl.is Fjölþáttameðferð vegna hegðunarvanda barna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ójá..

image0011

 


Ef það er ekki ástæða og tími núna til aðgerða til að reyna að hrista upp í bæði lanndslýð og stjórnendum þessa lands þá getur maður alveg eins farið að undirbúa fluttning af landi brott......

Picture 008

Picture 012

Ég setti höndina út um gluggann og reyndi að ná myndum af snjóflyksunum...

sver að þær voru á stærð við eldspítustokk.

Vona samt að þetta hafi verið kveðjukossinn frá vetri konungi......

Þó það hafi verið óneitanlega gaman að gefa í í beigjum í dag....

24.jún

Mynd tekin í fyrra sumar...eitthvað til að hlakka tilSmile

 


Allt er til og fátt kemur á óvart......

Já ég er að blogga undir morgun útaf dottlu og ætti engum að koma það á óvart....

En í gædag var ég að renna yfir fréttir á mbl.is....

Fitugeng er álíka vanabindandi og kókaín eða heróín(man ekki alveg).....Wink

Listkýr????? í formalínvökva í einhverjum vanda......????????W00tlöngu dauð..

Tvær kéllur ætluðu til Monakó en lenntu í Munchen=Mónakó eða þannig.....Halo

Blaðberi gekk fram á argandi bílskott....Sideways

Svo skipti bóndi nokkur á kerlu sinni og geit........bara svona úti á götu....

Alveg óvíst að ég þori út að labba með Mr.Pálmasyni......aldrei að vita nema hann sjá eitthvað álitlegra,varla þó hund eða kött eða konuna í næsta húsi......kannski þokkalegan bíl eða hvað veit ég........Tounge

Það var nú bara skondið að lesa þessar fréttir....

 

Góðan daginn..... 

e

Hey mamma

ætlar þú ekki að breyta þarna á msninu þínu,,loksins komin í lag"??

Neits ég er alltaf að bila....

Ummm.......

Eftir annasama helgi og mánudag datt ég inn í tölvuna í gærkvöldi.........mér varð um og ó........

allir bloggvinir með nýja/r færslu/r......mig langar alltaf að kíkja á alla og kommenta.....ég var 5.kl.st. að fara rúntinn....oft þarf ég að stilla mig inn á málefni sem verið er að ræða um hjá hverjum og einum og stundum er ég hreinlega búin að setja heilu færslurnar í kommentaboxin,dreg það svo saman í eitthvað lítið og hugsa ,,ég þyrfti nú að blogga á mínu til að koma mínum sjónarmiðum að..........

En skoðanir mínar geta alveg verið síbreytilegar......það er alveg hægt að sína mér fram á að mín skoðun sé ekki endilega rétt...og því oft erfitt að negla einhverja eina skoðun.........því margar hliðar eru á hverju máli.

Eftir fimm tíma flakk þá hugsaði ég ....ég verð að fara að taka til í bloggvinunum.Þetta gengur ekki..........

EN ÉG TÍMDI EKKI AÐ HENDA EINUM EINASTA ........

Framvegis þegar ég er í tímaþröng ætla ég bara að kommenta með broskarli til að láta vita að ég hef lesið og verið á síðunni eða kasta inn knúsi.Sumir þola það ekki en það er ekki mitt málSmileÉg veit vel að það verður ekkert fútt í þessu ef bara eru broskarlar í kommentum..........stundum hef maður bara ekki tíma í þetta eða hreinlega ekkert að segja og ég nenni ekki að vera að upphugsa eitthvað til að segja ...........ef það kemur ekki strax þáSmile

Ok.þetta er ég að ákveða núna EN ég veit jafnframt að ég mun ekki geta setið á mér að blanda mér aðeins inn í ykkar mál sem þið er svo góða að leifa mér að skyggnast inn í.

Svona fer Ollasak í hringi........

Áðan lygndi Mr.Pálmason aftur augunum eins og honum er einum lagið lyfti svo annarri augabrúninni......

Ertu að meina þetta..........?????????       Já nei nei nei ég fer ekkert í neitt svoleiðis núna........

Konan hans hafði stungið upp á lítilræði................örlitlar breytingar innan húss..

En ég kann á minn karl..........um leið og hann er konin upp í flugvél til Egilstaða þá byrja ég verkið...........og hann heldur áfram með það þegar hann kemur heim næst.

Eigið svo þrælgóðan þriðjudag......


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband