Bloggfærslur mánaðarins, október 2008

Alveg að falla á tíma......

Þessi fjallmyndarlegi kall er fimmtugur í dag 31.10

c_documents_and_settings_owner_eyahruni_my_documents_my_pictures_bg

Til hamingju Árni minn.

Svo á hann Gummi okkar hennar Sigrúnar líka afmæli í dag 35.ára

Til hamingju báðir tveir......

Sjáumst í villtu geimi á morgun.

 

Svo knús á LÍNUNA MÍNAHeart


Hjálp einhver....

Mig bráðvantar  videotökuvél fyrir 8 mm.kassettur..

Lúrir einhver á svoleiðis græju.....

Annars er kellan kát.

Má ekkert vera að því að vera í tölvu

því karlinn er að verða svo gamall hjá mér

að ég er á fullu að undirbúa

tilraun til að

gera honum það léttbærara

með heljarinnar skralli.

Knús á línuna og

kíkið í geimsluna hjá ykkur...Kissing


Mig langar á alvöru sveitaball

  Fáum okkur snúning....... og hoppum í hringi

 


Ég skellti mér

framúr,teygði með til heyrandi óhljóði og braki

kíkti út um gluggann

SNJÓR.

Án þess að hugsa mig um

rauk ég út í skúr

og náði í

SKÓFLUNA

lagði til atlögu við snjóinn....

image0022

Ó vitlaus mynd...

 

Íslendingar eru ekki hryðjuverkamenn
Hjálpið okkur að stöðva misbeitingu hryðjuverkalaga

 
Undirskrifrarlisti: http://www.indefence.is/

 


Ég er að segja ykkur það.....

að margt smátt gerir eitt stórt......... fattaði allt í einu að ég er alltof feit W00t til að geta verið sexy um næstu mánaðarmót.

Huhh so... það er of seint í vömbina gripið.Gríp bara í næsta sæta rass.

Hérna eigið þið uppskrift af ástarpungum Grin ég nefnilega sko ..Heiða er að biðja um uppskrift og ég sagðist skyldi grafa mína upp en........ég veit ekki hugmynd um hvar hún er niðurkomin.....Mér dettur bara Gummi ástarbungur í hug.Ég veit hvar hann er að finna en á ekki uppskriftina.

Ég er búin að vera að fikta óvenju mikið í tölvunni.....ná mér í forrit til að taka myndir af myndum sem ekki er hægt að save og svo klippa þær út þannig að þær verði eins og upprunalega myndin.Tilgangurinn er ekki bara fikt.Ég er að safna saman myndum af Mr:Pálmasyni og er töluvert af myndum af honum á síðum sem er svo tryggilega gengið frá að það er ekki hægt að nappa þeim nema svona.

Ég er að rembast við að gera flotta myndaseríu um hann með öllu sem ég næ í....þannig að þið sem eigið myndir..helst gamlar plíssss sendið mér.......og ekkert vera hrædd að senda mér póst Grin

Ég þarf líka að ná mér í forrit sem ég get sett tónlist með myndunum.............Veit einhver hvað svoleiðis heitir ???????

Karlinn verður 50.....31.10......og ég er búin að bíta það í mig að gera svona samantekt um hann og sína í afmælinu.....

En í dag varð Solli sobbi 50.ára elsku kallinn minn..

 

En er farin í bælið

Knús á línuna og reddið Heiðu.

Heart

 

 

 


Þetta er snilld

Sagan öll.

 

Kíkið á þetta.

http://bubot.blog.is/blog/bubot/entry/675376/#comments


Afhverju afhverju afhverju..

Það rignir yfir mig pósti

sem innheldur áminningar um að

faðma,knúsa,sýna vinarhug og samhug,náungakærleik,brosa,

vera vinur í þessari viku

og það merkilegasta

það er bent á að það kosti ekkert.

 

Ég veit að þessir póstar eru

vegna "ástandsins".

Einhvern veginn finnst mér ekkert þurfa að vera minna á þetta.

Flest erum við þannig að við notum þessar aðferðir dagsdalega af gleði og sorg,umhyggju og ástúð.

Hjá mér breytti "ástandið" þessu ekkert.

Faðmur minn og hugur hefur ávallt verið opinn.

Ég slæ hendinni utan um fólk  áður en ég veit af og eru það tilfinningar mínar hverju sinni sem þar ráða en ekkert fyrir fram ákveðið.

Ég heilsa með HÆJJJJ ástin og fatta í leiðinni hvað mér þykir vænt um viðkomandi.

Ég kveð BÆÆ elskan af sömu tilfinningum.

Ég sendi fólki faðmlag,knús og ást af því að þannig er tilfinningin mín þá stundina til þeirra.

Ég held við séum öll svona.

Mér þætti miklu skemmtilegra að á póst sem væri bara "Knús á þig"

 

Bara smá vangaveltur.....

 

Og

svo

stórt

KNÚS

á

ykkur.

 


Með loftgítar í fanginu......jee

Vörður Landamær,er sko búin að koma mér í gott skap......

það þarf oft ekki mikið....

Algert fortíðarflipp hér ... Kjellan var jú eitt sinn grúppía Grin

Rokkið á móti strákunum......með loftgítarinn....í fanginu.....

Geðveikar sveiflurInLoveeða skak....elska þetta.

og lítum glöð til framtíðarinnar.

ég

Knús inn í nóttina....


Verðtrygging......Ég hef einsett mér að vera ekki að láta ástandið hafa áhrif á mig

en kemst ekki hjá því.Ég velti fyrir mér fyrst allt er komið til andskotans allstaðar í heiminum og augljóst er að það er peningastríð og átök um peninga...og banka og fjármálafyrirtæki...óráðsíu og allan fjandann í fjármálaheiminum....Já það sem ég velti fyrir mér..fyrst það þarf að stokka upp og gefa upp á nýtt..hvort eigi ekki að nota tækifærið og afnema verðtryggingu lána.Þetta löglega siðlausa rán bankana á eignum okkar.

Ykkur kann að finnast þetta einfeldningslegt hjá mér.Þetta er einfalt fyrir mér!!!!

Mig langar að fá álit ykkar allra sem eru að koma hér á síðuna....líka þeirra sem eru ósammála.

Ég á fjársjóð.

jón þórPicture 123,,nnnn

Sem ég vil ekki láta þurfa gjalda núverandi stöðu.

Annars er kellan spræk

fór snemma að sofa

vaknaði galvösk og hoppandi

fór í gönu með B-sys um nesið og helminginn af þorpinu í morgun.


Sumir athugulli en aðrir

Hver var að trúa þessu… bulli ???

Takið eftir því að hún sagði þetta um síðustu ÁRAMÓT



Þetta sagði völva Vikunnar
m.a. um síðustu áramót:
Völvuforsíða 2007„Fjármálakreppa er fram undan á Íslandi, eins og við höfum séð undanfarið, og blaðran er að springa. Það verður hrun á peningamarkaði og það syrtir í álinn hjá fólki aðeins meir en nú er. Við þurfum að ná botninum til að ná jafnvægi aftur. Það verður hrun hjá sumum og nýtt upphaf hjá öðrum ...
... Mikið tap verður hjá stóru fjármálafyrirtækjunum og ýmsar sviptingar og neikvæðar breytingar hjá bönkunum líka. Það á eftir að næða eitthvað um Seðlabankann, ég sé stríð í kringum Davíð og fjármálamenn, mér finnst líka hluti ríkisstjórnar blandast í það.“


 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband