Bloggfærslur mánaðarins, október 2007

Fjörtíu og eitthvað í síðasta sinn

Mr Pálmason

bg

Til hamingju með afmælið kall.

Kynntist karlinum þegar hann var 15 og ég 14.

Vorum á djamminu saman

á sveitaböllunum.

Nú fæ ég fortíðarflipp

sveitaböll....sveitaböll...sveitaböll....

Mikið vildi ég að ungdómurinn í dag fengi að upplifa

sveitaballastemminguna.

En sem sé þetta er karlinn minn sem er 49.ára í dag

og

þetta eru börnin okkar

Eyri hraðferð jþ+

Eyri hraðferðdfhfdgjdfdghdfyyyyyyyssss.bmpggg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Jón Þór 27. ára og........................Guðrún Jóna 14. ára

Smá viðbót,því þarna er hægt að miskilja að við höfum farið að vera saman 15 og 14 ára......við erum búin að þekkjast síðan þá en 17 og 18 var það.

hvernig eiga merkin saman

SPORÐDREKISPORÐDREKI og BOGMAÐURBOGMAÐUR
Þessi tvö merki laðast strax hvort að öðru, oftast kynferðislega, en það er lítil von til að sambandið verið langvarandi. Bogmenn eru yfirleitt lífsglaðir og opnir, en Sporðdrekinn dulur, fáskiptinn og leyndardómsfullur. Framan af reynir Bogmaðurinn að kæta Drekann og rífa hann upp úr "þunglyndinu", en þegar það tekst ekki leitar hann uppi skemmtilegri félagsskap. Ef Sporðdrekanum finnst hann svikinn í tryggðum, er hann vís með að leita hefnda. Það er því vissara að reyna að skilja sem vinir!

Held ég geti verið sammála að nokkru leiti en öðru alls ekki.....


Lífið breytir um lit

Það var frábært að líta út um gluggann í morgun.Snævi þakin jörð.Birtan seytlaði inn í sálina og lýsti hana upp.

Ég elska snjó.

Ég vildi að snjórinn gæti komið og verið kyrr þar sem hann settist svona eins og á Ísafirði

Blæjalogn og snjór eða ribbaldarok og snjór.

Mér er ekkert vel við umhleypinga

rigning fyrir hádegi,snjókoma eftir hádegi,skafrenningur eftir kaffi,slydda eftir kvöldmat.Eða öfugt síendurtekið.

Snjór og rok er áskorun.

Keyra í skafla.... ég veit ekkert skemmtilegra....festa sig og ná sér upp aftur ein... eða með hjálp...Grin

Hver kannast ekki við Sollu fasta af því hún varð að prófa skaflinnWhistling

Bjartasta brosið til ykkar.


Á að leyfa konum að keyra bíla svona yfirleitt..??




Þegar ég (Bjarni) var á leiðinni upp Ártúnsbrekkuna í morgun leit ég til hliðar og þar var kona á splunkunýjum BMW.

Hún var á svona 120 km hraða með andlitið upp í baksýnisspeglinum og var á fullu að sminka sig með
meikup-græjurnar í sitt hvorri hendi og annan olbogan á stýrinu.
Ég leit fram á veginn eitt augnablik og næst þegar ég leit á hana var bíllinn hennar á leiðinni yfir á mína akrein

og samt hélt hún áfram að mála sig eins og ekkert væri sjálfsagðara.
Mér brá svo mikið að ég missti ferðarakvélina mína á roastbeefsamlokuna sem  ég hélt á í vinstri hendinni.

Í panikkinu við að afstýra árekstri við konuhelvítið og ná stjórn á bílnum sem ég stýrði með hnjánum, datt
gemsinn minn úr hálsgrófinni og ofan í kaffibollann sem ég var með á milli fótanna.
Það varð til þess að brennheitt kaffið sullaðist á Orminn Langa og tvíburana tvo.

Ég rak upp öskur og missti við það sígarettuna úr munninum og brenndi hún stórt gat á sparijakkan

og ég missti af mikilvægu símtali!

 
Hvað er að þessum helv........ kellingum?

Ögn léttara

hjal.

Hvanndalsbræður eru snillingar

einn af þeirra frábæru textum hljómar svona

(ekki með leifi fyrir birtingu en ég er nú verðandi grúpppía)

Kisuklessa.

Ég var út'í garði að vökva grasið mitt

sprautaði á buxnaskálmina og sagði shit.

Kötturinn min var þarna að þvælast fyrir mér.

En fór svo út á götu og gleymd'að gá að sé.

Það kom þarna steypubíll og stefndi beint á hann.

Þetta getur komið fyrir þann sem ekkert kann.

Ég öskraði og æpti.Forðaðu þér.

En kattarskrattinn heyrði ekk'í mér.

Hann heyrði ekk'í mé......er.

Hann heyrði ekk'í mé......he he he he he er x2.

Þess vegna e........er

Þess vegna e he he he he he er.

Kisuklessa á götunni hjá mér oj

kisuklessa oj oj oj oj oj oj oj.

Svona var nú það.

Kannski ekki mjög smekklegur texti en þó snilld.


Ég finn að ég er

að veikjast aftur.Ég er hrædd.Ég vil ekki veikjast.Ég er ekki að tala um flensu eða gigtina,hún er smotterí miða við geðveikina.Þó að ég sé sterk og mjög meðvituð um sjúkdóminn þá spyr hann ekki leyfist hvort hann megi kíkja inn fyrir.Sjúkdómurinn er ókurteis frekja sem ryðst inn óboðinn og heimtar að gista...Í mínum huga er ekkert gistirými fyrir þessa frekju.En frekjan sætir lægi ræðst til inngöngu þegar ég hef þurft að þola mikið álag í langan tíma eins og undafarið ár.Þá finnur þessi frekja smugu núna .............Sælar eigum við að hafa það áráttuhegðun húna??? Lýst þér bara ekki vel á það??

Eða ertu til í oflæti.......þá er svo gaman....við gætum byrjað á að þrífa loftin í húsinu.....

Skroppið svo í bæinn og farið í búðir og keypt tilbúin mat til að fara með heim.......veðrið?....skítt með það við erum svo klár saman við getum allt.........

Kostar???......hehe.... þú segir bara það er svo dýrt að lifa í dag....

Verðurðu blönk!!! hvað er að þér kæra vinkona!!!!!við vitum bæði að það endar með með því......þá leggjum við okkur.... saman.......sofum og sofum.....þú átt jú gott rúm og þó þú ættir það ekki þá sofum við bara undir rúmi.....manstu sofa sofa sofa........hvaða áhyggjur eru þetta???þú skilur hvort sem er ekkert af hverju þú ert svona þreytt og svefn sækin......

Svo mannstu að brosa,vera alltaf kát og hress........þú nefnilega átt ekki að segja neinum að ég sé í heimsókn........fólk fer þá bara að hafa áhyggjur af þér....ekki villtu það nú!!!!

OOO við gætum gert svo ótala margt saman...gerum eitt hvað klikkað!!!!

Ég get látið sama lagið hljóma í hausnum á þér........eða sömum setninguna.........neinei ég ætla bara núna að láta þig fá eitt og annað á heilan........je eitthvað sem þú getur ekki hætt að hugsa um.......já ég get haldið þér reiðri og eða leiðri.

En kæra vinkona villtu kvíða????????? villtu hann í köstum eða á ég að demba honum svona yfir þig edrum og sinum........kannski út í búð......eða þegar þú ert stopp á rauðu ljósi........hahahahhahaha

Þegar "frekjan" gerir sig heimakomna er eins gott að vera ekkert að bíða eftir að hún láti sig hverfa....Reyna frekar að átta sig á ástandinu og byrja að reka út....ef ekki með góðum árangri strax..þá hjálp fagaðila.


Örg kona

ætti ekki að blogga.

Örg kona sem hefur engan

til að arga á.

Örg konan er örg

því fátt gengur á framlöppunum.

Hoppaði galvösk fram úr

í morgun.

Vakti krakkana....já fleirtala.

Því Betubörn eru hér hjá mér meðan

foreldrarnir spóka sig DK.

 

Kom ungviðunum í skólann.

Tók saman og tróð í uppþvottavélina.

Dútl og dund...

Tek eftir að uppþvottavélin

hjakkar í sama farinu og vill ekki stoppa.

Æði í bílskúrinn

flýg inn með verkfærakassann.

Allt leit út eins og maskínan hefði yfirfyllt sig.

Aftur í bílskúrinn  og sker bút af garðslöngunni

sýg upp vatn og auuuuuuujjjj.

en allt við það sama.

Byrja að skrúfa

já.

Rétt eftir kvöldmat ákvað ég að gefast upp

á maskínunni.

Læt renna í vaskinn

Ennn get ekki opnað bjévítans

maskínuræksnið

og

get ekki enn!!!!

Full af óhreinu leirtaui.

Dagurinn snérist um margt annað.

Neyðarástand í húsi sonarins.

(sem hefur náttla vit á því eins og karl faðir hans að vera sem lengst í burtu,eða á Reyðarfirði)

Ég spændi á Selfoss að kaupa einhverja vatnslása og

leigja höggbor.

Sem gekk nú ekki andskotalaust fyrir sig.

Var ekki með vísað á mér og þá neitaði afgreiðslu-kallinn

að láta mig fá borinn.

Töfrar mínir höfðu engin áhrif...

Þannig að Katla gaus

bað um að náð yrði í Agga verslunarstjóra

sem er góður vinur minn

nei

gaurinn hættur.

Katla seig og kreisti út úr sér

"Hvað heldur þú að ég sé að vilja með að æða hingað uppeftir og fá leigðan bor...staðgreiði hann bara...

Kallinn gafst upp sagist bara hafa verið að reyna að ná mér upp en benti jafnframt á stórt skilti sem á stóð að tæki væru ekki leigð nema gegn kortatryggingu.

Ég er svo grandalaus að mér datt ekki í hug eitt einasta augnablik að mér og öðrum væri ekki treyst.

Á morgun kemur nýr dagur,á morgun verð ég að fá rafvirkja,á morgun þeysi ég á Selfoss að skila þessum bor.

Ég er glöð þó ég hafi ekki náð að arga til Reyðarfjarðar.

Ég er lang lang glöðust yfir því að

á

ég

myndina

Rósir

RÓSIR

eftir Þórdísi.

 

 

 


Helgarsprellið og(lesblinduleiðrétting)Davis aðferðafræðin til umfjöllunar á alþingi !!!!!!!!!!

Þetta hér að neðan er að finna á síðu Lesblindusetursins í Mosfellsbæ.

Umræður um lesblindu í bloggheimum

Umræður um lesblindu í bloggheimum   Prenta Senda 
25. september 2007
Sólveig María Guðjónsdóttir, móðir lesblindrar unglingsstúlku, hefur vakið athygli í bloggheimum undanfarna daga fyrir skelegg skrif sín um lesblindu og þá vanlíðan sem kann að fylgja henni.
Við birtum hér hluta úr skrifum hennar, hún hefur birt áskorun til alþingismanna um úrbætur - en vísum að öðru leyti á vefsíðu Sólveigar.

"Það ER kvöl og aftur kvöl.Að horfa á barnið sitt þást.Vita að ástæða þess að hún slagar á morgnanna af svima ER útaf andlegum kvölum...vita að þegar hún getur ekki haft augun opin vegna ljósfælni...vita að þegar hún brestur í grát og segist ekki skilja hvað Sé að Sér...vita að þegar hún ælir á morgnanna,kvöldin,nóttinni...vita að þegar hún tekur utanum mig og segir "ég vil alveg fara í skólann en mér líður svo skrinkileg...ég veit ekki hvernig mér líður"...byrjar að kúgast.Elsku stelpan mín kann ekki að útskýra kvíðan og líkaminn tekir við.
Ég lýg engu um það að mér gengur illa að sofna fyrir kvíða hvernig morguninn verði....Oft á tíðum fallast mér hendur á morgnana.Ég græt,við grátum saman.
Stundum missi ég stjórn á mér og hreynleg klikkast og langar mest að berja krakkan....afhverju getur hún ekki bara drullast í skólann eins og önnur Börn."


og


Davis aðferðafræðin til umfjöllunar á alþingi   Prenta Senda 
12. október 2007
Athygliverðar og jákvæðar umræður um Davis aðferðafræðina fóru fram á alþingi nýverið. Þingmaður VG, Atli Gíslason, beindi orðum sínum til menntamálaráðherra. Í máli þingmannsins kom m.a. fram að ríkið ætti hiklaust að greiða kostnað foreldra við lesblinduleiðréttingu.


ImageFréttablaðið birti frétt þess efnis þann 11. október, lesa má fréttina hér.

Það gleður okkur að vita til þess að sú "grasrótarvinna" sem hér er unninn rati inn í umræður alþingismanna.  Hitt er svo annað að þessi málaflokkur á skilið alla þessa athygli og meiri til.

Davis aðferðafræðin kemur til landsins árið 2003 og hefur með mikilli vinnu tekist að ná fótfestu.  Þetta hefur gerst þrátt fyrir ákveðna andstöðu frá skólakerfinu enda er það í eðli sínu íhaldssamt og á að vera það.

Sá góði árangur sem mögulegt er að ná með vandaðri vinnu og góðri ástundun foreldra og barna hefur skilað sér í jákvæðri umfjöllun um aðferðafræðina - enda værum við ekki að starfa í dag ef árangurinn væri enginn.  Munurinn á einkarekinni námsráðgjöf eins og hefðbundinni sérkennslu innan skólakerfisins er sá að við VERÐUM að sýna fram á árangur.

Davis kerfið hefur því hægt og bítandi öðlast ákveðna viðurkenningu þótt ekki sé um að ræða neina fasta styrki, því er þessi umfjöllun á alþingi fagnaðarefni.  Þó ber að nefna að þau námskeið sem við höfum unnið í samstarfi við Mími-símenntun og nefnast "Aftur í nám", eru myndarlega niðurgreidd af Menntamálaráðuneytinu.  ASÍ og aðildarfélög riðu á vaðið fyrir nokkrum árum í fjármögnun námskeiðanna en Menntamálaráðuneytið hefur nú að mestu leyti tekið við.  Við lítum á þennan mikla stuðning sem mikla viðurkenningu á aðferðafræðinni.

Auk þess má nefna að á "viku símenntunar", sem Mímir stóð fyrir nýverið var kynning á námsskrá sem  Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur gefið út.  "Aftur í nám" námskeiðið er þar ofarlega á blaði, en Davis leiðrétting leikur þar stórt hlutverk.

Þessi námskrá er samþykkt af Menntamálaráðuneytinu og má því segja að Davis aðferðafræðin sé löngu orðin "viðurkennd" hvað þetta varðar.

 

Ég tel það enga tilviljun að þetta sé til umfjöllunar akkúrat núna.

Enn og aftur til ykkar er létu ykkur málið varða

Takk.

Kellan er að vonum kát...sérstaklega eftir að ég komst aftur í tölvuna.Helgin búin að vera rosa fín.Við Pálmason skelltum okkur í innfluttingspartý hjá Jonna Ara.Sem stóð frá kl: 12 á hádegi á laugardag til 12 á hádegi á sunnudeginum.

Það er skemmst frá því að segja að ég mætti 3x.

Mikið sungið og mikið gaman.

Góðar veitingar humarsúpa og brauð

og svo vöru allir í löndunargenginu á FAXMARKAÐI

Eyri hraðferðdfhfdgjdfdghdfyyyyyyy 030

Eyri hraðferðdfhfdgjdfdghdfyyyyyyy 081

Sumir sóttu fastar en aðrir.....

Eyri hraðferðdfhfdgjdfdghdfyyyyyyy 022

Húsbóndanum voru færðar góðar innflutningsgjafir.....

Eyri hraðferðdfhfdgjdfdghdfyyyyyyy 049

Heiðbjört sys og Mr.Pálmason í stuði....ýhaaaaa.....

Eyri hraðferðdfhfdgjdfdghdfyyyyyyy 046

Svanhildur söngfugl,Jonni stórsöngvari og Svenni frændi gítargúrú..

Eyri hraðferðdfhfdgjdfdghdfyyyyyyy 053

Kellan lifir sig inn í sönginn skoom...

Eyri hraðferðdfhfdgjdfdghdfyyyyyyy 056

Arnar Jonnason að dansa við Maríu ömmu sína......

Eyri hraðferðdfhfdgjdfdghdfyyyyyyy 055

Trausti mágur og Jonni...flottu.....

Eyri hraðferðdfhfdgjdfdghdfyyyyyyy 083

Jón Þór(sonur okkar ÁP) Beta sys að pæla í að pæla í'ðí........

Gunna Jóna (dóttir okkar ÁP) og Trausti mágur að leggja henni lífreglurnar trúi ég.

Eyri hraðferðdfhfdgjdfdghdfyyyyyyy 023

Ég legg ekki meira  á ykkur í bili......


Skildi þetta vera hannað með mig í huga......

veitti ekki af einum svona

http://mbl.is/mm/frettir/togt/frett.html?nid=1295777

Ungmennin mín stóðu mig af því á sunnudagskvöld að aka einstefnugötu á Selfossi...mikið grín gert af GÖMLU kreisí... bölvaðir ormarnir....hefði verið gott að vera á einum slíkum þá og snúa á liðiðGrin

Svo í morgun lét bíllinn eitthvað bjánalega þegar ég var að bakka út úr bílskúrnum...illur grunur læddist að mér...martröð flestra kvenna...sprungið...argggghhh....Pálmason því ertu ekki heima hjá þér kall??..hvernig heldurðu að þetta fari með neglurnar maður??

Katlan í kellunnni krældi á sér og fór mín hamförum eins og Korntopp myndi orða það...og skipti um dekk.

Pálmason var búin að vara mig við þessu dekki...sem hreinlega væri að spænast upp humm útaf DOTTLU...sem styður enn frekar að ég þarfnast svona farartækis.

BÆ Í BILI

null

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Hey!!! Stjórnvöld orðin meðvituð um LESBLINDUvandann....Vill markvisst átak fyrir lesblind börn

 

OG ÆTLA AÐ TAKA Á ÞVÍ

Sjáið::

 


Því tóku þeir ömmu út???????

Sjáið þið bara

http://www.bylgjan.is/?PageID=1091&NewsID=2446

Þrælfindið viðtal þarna á ferð.

María amma og Ríó Tríó.

Þarna er hún María amma mín!!

Lang flottust á þessari mynd svo er henni bara hennt út.

En þessi mynd er framan á Plötuumslagi hjá Ríó

tekið í strætóskýli upp á Suðurlandsbraut.

Takk litla að benda á þettaKissing


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband