Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

Það hristist vel í Þorlákshöfn.Ég var að riksuga

nýbúin að afgreiða fríðan hóp út á golfvöllin hér í þorlákshöfn þegar allt lék á reiðiskjálfi og ég þessi bjálfi hugsaði fyrst... vallartrafsmennirnir að djöflast fram í gangi... næsta hugsun..okey þetta er jarðskjálfti....hlýtur að fara að hætta....lætin jukust og mér varð hugsað til þess að ég er móðir og eiginkona.....systir og dóttir og með það stökk ég út á pall.Þegar ég kom inn sá ég að allt var á tjá og tundri í kókkælinum inni á lager voru goskippur út um allt.

Ég hringdi  heim í stelpuna mína sem vægast sagt var viti sínu fjær af hræðslu.Hún hafði setið í rúminu sínu þegar það fór að hristast og hlutir í hillunum á móti byrjuðu að þeytast í gólfið.Hún heyrði skelli og læti innan úr stofu,þar hafði járngardínustöng hrunið niður á gólf og nokkrir smáhlutir.Ég náði í hana heim þar sem hún beið úti.

Þetta var.. veit varla hvernig ég á að lýsa þessum degi.Fréttir voru alltaf að berast...vallargestir stoppuðu lengi á milli 9-10. holu að fylgjast með.Þeir fundu fæstir skjálftana úti á velli þó voru nokkrir sem héldu að bjórinn í Þorlákshöfn væri sterkari en annarstaðar.Ekki veit ég hvað eftirskjálftarnir voru margir en þeir voru margir.

Í nótt fundum við mæðgur smá skjálfta.

Ég dáist af hvað altt fór vel og skipulega fram hjá almannavörnum og björgunarsveitum.

Fyrst og fremst dáist ég af fólkinu Selfossi,Hveragerði og  á þeim stöðum sem urðu verst úti.

Ég sendi öllum sem urðu fyrir eignartjóni  mínar einlægustu hluttekningarkveðjur.



mbl.is Stöðugir eftirskjálftar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er STOLT.........

frænka...

Anton,Vigdís og Gunna

Anton Freyr Trausta og Betu systir-son og Vigdís og Guðrún Jóna.

24.5.2008 | AkademíurAnton í unglingalandsliðið

fifan_logo

Anton Freyr Traustason hefur verið valin í unglingalandslið leikmanna fæddir 1992 og síðar. Anton kemur úr Þorlákshöfn og er örvhentur hornamaður sem einnig getur leikið sem skytta. Hópurinn er skipaður 28 leikönnum og kemur saman um næstu helgi. Hópinn má sjá HÉR. Heimasíðan óskar Antoni til hamingju með áfangann og þetta verður honum vonandi hvatning til frekari afreka á handboltasviðinu.

Nokkrar umsagnir sem ég fann í fljót heitum um kappann

4. Flokkur A lið vann Fjölni aftur Anton skoraði 15 mörk í leiknum.

 

Sigur í dag hjá 4.flokki A

Anton Traustason gerði 11 mörk og mörg hver þeirra voru glæsileg.....

 

Bestir í lið Selfoss voru Ketill, Anton og Einar auk þess sem Sveinn varði vel.........

 

16.3.2008 | Akademíur
Frábær sigur hjá 91 strákunum Anton Freyr Traustason 2 mörk .......Anton er 92.en hefur verið  að leika með eldri flokk.

 

Anton skoraði einnig fjöldan Allan af glæsilegum mörkum úr hægri skyttunni og var Magnús sterkur á línunni, en hann hefur verið í mikilli framför........

Stiklað á stóru undanfarna 2-3 mánuði.

 

Picture 087

Frændurnir Anton og Jón Þór í stuði....

ææææpppp

 

 

Systrabörnin Gunna og Anton Freyr á góðri stundu.....

 

 

 

 

 

 

 

 

 

gs.jpggsgs

 

 

 

Og ekki má gleyma systur hans Söru Lind sem er að verða 10 ára.

Hún er rosa dugleg í fimleikum og fékk 4 silfur og 1 brons á síðasta fimleikamóti.

Gunna og Sara Lind.

 

 

 

 

 

 

Til hamingju Anton minn

og Beta og Trausti með báða krakkana.


þetta er bara bull

Um átta leitið var ég viss um að Ísland væri búin að vinna þetta.

Þau voru stórkostlegInLove

En eins og staðan virðist vera og hefði ég svo sem getað sagt mér það sjálf að þetta hefur ekkert breyst......

Traustir vinir þarna austantil.....

Ég hef gaman af flest öllum söng og öllum keppnum.

Nú Hættum við að hugsa um EVRO.

Höldum frekar skemmtilegar innanlandskeppnir.

Þetta EVRO ER ALGERT BULL.

GEFUM SKÍT Í ÞETTA FYRIRBÆRI.....

Samt var Rússin flottur svona fráhnepptur og BERFÆTTURLoL

Ég er farin út í garð að rótast í beðuð eða eitthvað...............

 


mbl.is Ísland endaði í 14. sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

YFIRLÝSING FRÁ MÉR

ÉG ER VISS UM AÐ NÚ SÉUM VIÐ BÚIN AÐ VINNA

EVRO

Smile


Ég ætla bara að segja ykkur

að mér er mjög illt í hálsinum

ég

öskraði

svo

HÁTT

Til hamingju Ísland

með

Friðrik Ómar

og

Regínu Ósk.

460914

Til hamingju Regína og Friðrik.

Þau vöru lang lang flottust ég gæti étið þennan strák hann er svo miðið súkkulaði eða umm æði bara

og Regína algert æði líka.

Danir næst flottastir.


Náði'ðí

að fara allan blogg hringinn í dag,kvöld og ja víst komin nótt..

Er líka búin að taka veðrið og sjá að það verður bölvaður austan strekkingur á golfvellinum á morgun.

guffi og eitthþóra gamla 001

Hérna erum við kerlingarnar æskuvinkonurnar alveg fram á þennan dag og eins lengi og hugsast getur.....komnar á slæðualdurinn...ein orðin fimmtug og önnur að verða það....en við Vigdís erum svo heppnar að vera ári yngri en þær gömlu og plús það þá eigum við báðar afmæli í desember...

guffi og eitthþóra gamla 005

Hér er hún svo sú fimmtuga 20.maí 2008.

Gudda gamla bjalla.(Þóra Davíðs)

image0011Svo er ég hér í góðu yfirlæti fyrir utan golfskálann......alveg að fíla mig í tætlur í rokinu.horfi á kallana hefja kylfuna á loft og taka hina undarlegustu mjaðmahnykki.
Það vekur óneitanlega upp þá spurningu hvort golfarar séu betri í rúminu en gólfinu ég meina golfinu.
En þar sem ég sit og rýni á þessa kroppa og læst vera að gera krossgátu.......þá verð ég agndofa í hvert skipi sem lokahnykkurinn kemur......Sumir hrópa "JESS...jess"
Aðrir
fórna höndum og lyppast niður í öxlunum og hrópa"DJÖ...ÞETTA VAR HREINT EKKI GOTT...LÉLEGT MAÐUR......"
Svo æða þeir á fram að reyna að hitta holuna og byrja upp á nýtt.Golf er víst ekkert grín.
En ég sem lítið hef verið heima við er að fara að taka til og skúra...ég veit kl er hálf tvö um nótt.....en sko ég verð að gera það núna því ég er svo mikill nautna seggur að ég verð að hafa allt voða hreint og fínnst annað kvöld þar sem ég ætla að njóta þess í botn að horfa á Friðrik Ómar og Regínu koma Íslandi aftur inn í Júró.......

Tvær heiðurskonur eiga

afmæli í dag.

Önnur þeirra er Steina bloggvinkona okkar.

Mýrdælingur sem býr í danaveldi.

http://steina.blog.is/blog/steina/

foto_334

Til hamingju með daginn elskanKissing

Hin er svo G.Þóra Davíðs(Gudda gamla bjalla)

Talan hennar er flott.....

50.roses199

Ég var búin að skrifa heilmikið um hana,af nógu er víst að taka Grin

En

eins og oft áður var eins og eitthvað kæmi mér til  að ýta á rangan takka.Núna ýtti ég inn einhverjum á músinniW00t

héðan í frá ætla ég að vista hvert einasta orð.

Þóra mín þú varst heppin þarna.LoL

Ég gróf þessa upp af okkur og köllunum og Eddu heitinni.

Dóteríí 014

Langt síðan ?????

En í staðin fyrir allt sem hvarf færð þú hérna all svaðalega endurminningu frá mérLoL

Njóttu

Geðveikt alveg...Grin

Þegar ég var að finna þetta lag heyrðist í gerpinu mínu...."á HVAÐÐÐ ert þú eiginlega að hlusta"

Potturinn okkar kom á pallinn á föstudaginn og er ég búin að ná að sulla í honum tvisvar og er ég algerlega sannfærð um að hann sé peningana virði.Ég átti gott samtal við gerpið í pottinum í kvöld,samtal sem ég hefði aldrei svo mikið sem hugsað til að nefna þegar ég var 15..Mér finnst mjög þægilegt hvað unglingar eru opnir í dag eða er það ég og aðrir foreldrar sem eru opnari en okkar?Ég held bæði..... betra.

Ég er mjög mikið að vinna þessa dagana en kíki á ykkur eftir bestu getu...sem mér sýnist verða lítil....hér var skilið eftir moldarhlass fyrir mig um helgina...þannig risa knús á línuna

og

TIL HAMINGJU STELPUR.

 


Aldur barnanna segir til um að maður sé á besta aðdri.

Eyri hraðferð 156.jpgææl.jpgl,´æk´kJón Þór 6 ára.
Sumir vilja meina að aldur þeirra segi til um hvað maður sé nú orðinn gamall.W00t
Ég segi bull.Enda geri ég mikið af því að bulla þessa daga.Wink
Frumburðurinn minn er 28.ára í dag nánar tiltekið 20.mín yfir 11.
Þessi elska
Eyri hraðferð 3jAlgert yndi þessi strákur og mamma gamla ekkert mikið eldri en þegar hún fæddi hann.
Vogið ykkur ekki að mótmælaPinchWinkGrin
Brúðkaup beta+trausti 073Hann er líka besti bróðir sem hægt er að hugsa séra
gunna og jón þórtiltekt eftir  matinn......hinn förkálfurinn minnEyri hraðferð jþnullGunna Jóna og Jón ÞórEyri hraðferðdfhfdgjdfdghdfyyyyyyy 083Eyri hraðferð 14115 og 2 ára systkyninPicture 140á ættarmóti fyrir 2. árumPicture 123þegar snjóaði síðastguffi og eitthvað 016guffi og eitthvað 021Imgp0181
En Bara Jón Þór okkar til hamingju með daginn
elsku gerpið okkar.

Úti er alltaf að snjóa....

Má hreint ekki vera að því að vera í tölvu.

Sorrý að ég hef ekki tíma til að kíkja á ykkurKissing

Annars veit maður ekkert hvað morgundagurinn býður upp á.

Jú ég fer á fund skólastjóra í fyrramálið að fara yfir skóladagatalið fyrir næsta skólaár.

Síðan baka ég leindó..

og fer svo bara að vinna og aldrei að vita hvort maður getur ekki læðst í tölvuna þar.

Ekki vera svekkt Gudda mín Bjalla.Hugsanir mínar og sá tími sem ég á aflögu fer í að fatta upp á dottlu varðandi þig.Tounge

Hver er Gudda Bjalla ?

Hver fattaði upp á henni ?

Var það Gummi ?

Knús á Línur og Lína.

Hvernig er karlkyns lína ?

Er það strengur ?

Svefngalsi ? ekki spurning........

getImg[5]


Oftast er þetta spurning um athygli.

Það eru takmörk fyrir öllu.Ég á mjög gott með að skilja fólk og skil að það eru 2 hliðar á hverju máli.Jafnvel 3.Og sú 4.að lyginni meðtaldri.

Það er auðvelt að halda friðinn þegar maður skilur þarfir,væntingar,hæfileika og takmark fólks.

Einnig hvað það getur verið dæmalaust takmarkað og sér ekki út fyrir ramma síns sjálfs.En ég á mjög bágt með að skilja svoleiðis fólk.Kannski er það ég sem er svona takmöruð þrátt fyrir allt.

En lygar og getgátur get ég engan vegið liðið.Þá er ég ekki að tala um svona smá hvíta lygi.

En hvar eru mörkin milli hvíts og svarts.....sumir halda sig við annað hvort.

Grátt er það líklega og grátt er ekki gott.

Eitt ættu þó allir að átta sig á AÐ SÁ SEM LÝGUR VEIT ÞAÐ.SÁ SEM ER LOGIÐ UPP Á VEIT ÞAÐ LÍKA.SÁ SEM ER SÖGÐ LYGIN VEIT ÞAÐ ÞVÍ MIÐUR EKKI AÐ ÞETTA ER LYGI OG DÆMIR AÐ SJÁLFSÖGÐU ÚT FRÁ ÞVÍ.

Ég er að vona að einhver lygari álpist inn á síðuna.

ATT000405Hættum að ljúga !!!!!!

Ég virka örugglega í vondu skapi með þessari færslu en svo er ekki.Er eiginlega á fortíðarflippi

og sæl minninga um sveitaböll og þetta lag.

 

Þegar ég settist við tölvuna ætlaði ég að fara að sýna ykkur hvað ég er mikill skógarhöggsmaður.

En hiitt poppaði einhvern vegin upp.

Ein tvær skógarhöggsmyndir samt

guffi og eitthvað 038

guffi og eitthvað 040

Ég þurfti að nota stiga svo sko var ákafinn svo mikill að ég

klippti í sundur snúruna á hekkklippunumATT1192408014

Vitið þið um betri afsökun?

ATT119240704


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband