Sælir eru einfaldir..
6.2.2008 | 22:08
Dag einn þegar ástríðan tók völdin ákváðu þau að fara heim til hennar þar
sem þau áttu villta eftirmiðdagsstund. Eftir öll lætin voru þau orðin
dauðþreytt og sofnuðu. Klukkan 20:00 vöknuðu þau og þegar maðurinn
byrjar að klæða sig á fullu, segir hann einkaritaranum sínum að fara með skóna
hans út og nudda þeim í grasið og moldina. Furðu lostin konan skilur
ekki alveg hvers vegna hann biður um þennan greiða, en hlýðir engu að síður.
Hann skellti sér svo í skóna og keyrði heim.
,,Hvar hefuru eiginlega verið maður ?´´ spurði konan eiginmanninn þegar hann kom inn um dyrnar.
,,Elskan ég get ekki logið að þér, ég á í leynilegu ástarsambandi við
einkaritarann minn og við erum búin að vera á fullu í bólinu allan dag, svo sofnuðum
við og ég vaknaði ekki fyrr en klukkan 8.
´´ Konunni varð litið á skónna hans og sagði:
,,Helvítis lygarinn þinn, þú ert búinn að vera að spila golf í
allan dag !!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Taktu stórt skref fram á við...
6.2.2008 | 01:16
þá gætu stóru hlutirnir farið að gerast.......
hættu að læðast.......
og
láttu vaða......
Annars er ég þokkaleg.Flensan á undanhaldi og vömbin úttroðin.Saltkjöt og baunir!!!búkhljóð!!!
Svo þarf ég að finna mér búning fyrir morgundaginn......
Held það yrði upplit á bæjarbúum ef ég mætti svona í búðina
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
Lífið er fjallganga
1.2.2008 | 13:19
Fjallganga
I.
Urð og grjót.
Upp í mót.
Ekkert nema urð og grjót.
Klífa skriður.
Skríða kletta.
Velta niður.
Vera að detta.
Hrufla sig á hverjum steini.
Halda, að sárið nái beini.
Finna, hvernig hjartað berst,
holdið merst
og tungan skerst.
Ráma allt í einu í Drottin:
,,Elsku Drottinn,
núna var ég nærri dottinn!
Þér ég lofa því að fara
þvílíkt aldrei framar, bara
ef þú heldur í mig núna!''
Öðlast lítinn styrk við trúna.
Vera að missa vit og ráð,
þegar hæsta hjalla er náð.
II.
Hreykja sér á hæsta steininn.
Hvíla beinin.
Ná í sína nestistösku.
Nafn sitt leggja í tóma flösku.
Standa upp og rápa.
Glápa.
Rifja upp
og reyna að muna
fjallanöfnin:
náttúruna.
Leita og finna
eitt og eitt.
Landslag yrði
lítils virði,
ef það héti ekki neitt.
II.
Verða kalt, er kvöldar að.
halda seint og hægt af stað.
Mjakast eftir mosatónum.
Missa hælinn undan skónum.
Finna sig öllu taki tapa:
Hrapa!
Velta eftir urð og grjóti
aftur á bak og niðr í móti.
Leggjast flatur.
Líta við.
Horfa beint í hyldýpið.
Hugsa sér,
að höndin sleppi.
Hugsa sér,
að steinninn skreppi.
Vita urðir við sér taka.
Heyra í sínum beinum braka.
Deyja, áður en dagur rynni.
Finnast ekki einu sinni.
IV.
Koma heim og heita því
að leggja aldrei upp á ný.
Dreyma margar næstu nætur
hrap í björgum, brotna fætur.
Segja löngu seinna frá því
,,Sjáið tindinn, þarna fór ég!
Fjöllunum ungur eiða sór ég,
enda gat ei farið hjá því,
að ég kæmist upp á tindinn.
Leiðin er að vísu varla
vogandi nema hraustum taugum,
en mér fannst bara best
að fara beint af augum.
Ljó sem er mér einkar hugleikið núna.Mér finnst þetta lýsa svo gangi lífsins.
Eigið g-óða helgi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Hver gerði málið að máli............Hér rís ég upp
29.1.2008 | 01:51
fárveik manneskjan og skammast mín ekkert fyrir að vera svona rosalega asskoti undirlögð af kvef og magapest.....pirrandi ástand sem sér ekki fyrir endann á... búin að vera svona veik síðan á föstudag.....
Ástandið bætir ekki geðveikina mína....frekjunasem stundum vill taka völdin og segja mér að vera svona eða hinsegin.....Geðveikin kenndi mér það að ef þú ert ekki að meika'að...þá þarftu að feika'ða....brosa og standa fyrst og síðast með sjálfri mér í þessum efnum..
Ég veit ykkur kemur ekkert við um geðveikina mína en ég skammast mín ekkert frekar fyrir hana en þetta helvítis kvef.....Ég er bara hamingjusöm með henni því ég hef oftast betur.... en hún er frek og það þarf að díla við hana.....og ég hef lært svo ótal margt um manlegt eðli á þessum hremmingum.....
Víst eru til fordómafullir dúddar hingað og þangað í þjóðfélaginu.....
Og nú er ég að komast að kjarna málsins........Ólafi F... blessaður karlinn er svo fordómafullur á sinn eigin sjúkdóm(sem mér skilst á öllu að sé sami sjúkdómur og ég er með)að hann gat ekki með nokkru móti viðurkennt hann.......Þetta kalla ég að halda uppi fordómum.
Þess vegna varð málið að máli.........
En samt sem áður held ég að fordómafullu dúddarnir hefðu líka gert mál úr því.......hefði hann viðurkennt það.....
Karlinn á samúð mína alla þó að ég skilji ekkert í öllu þessu valdabaráttubulli......mér finnst sjálfstæðismenn vera nokkuð sjúkir sjálfir.....en það er allt önnur ella fyrst það heitir ekki geðsýki.....eða hvað?''
Það sem ég er að reyna að segja að við Ólafur verðum að viðurkenna geðsýki okkar.Hvernig eigum við annars að koma í veg fyrir þessa fordóma.....?Fyrir þá sem ekki vita þá er geðsýki sjúkdómur en ekki brjálsemi.Ég nota orðið geðsýki því þunglyndi hefur náð nokkurri viðurkenningu en þunglyndi er geðsjúkdómur sem stafar af óeðlilega lítilli virkni noradrenalíns og serótóníns...í heilanum.....+ álagi og streitu og og og......
Því miður eru svo til mun alvarlegri geðsjúkdómar en þunglindi...þó eru margir sem átta sig ekki á því hvað þunglyndi er alvarlegur sjúkdómur ef ekkert er að gert.....
Ekki veit ég hvort Spaugstofan var að gera gys að veikinni eða hinum fársjúku fjölmiðlum....hvort sem var.....þá var leikarinn sem lék Ólaf ótrúlega líkur honum.........
Mér fannst þó gauksklukkan vera nokkuð góður punktur og gefa til kynna klikkunina í þessu öllu saman.
Knús inn í nóttina og eigið góðan þriðjudag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
Sigrún,Fannberg og fleiri
25.1.2008 | 01:22
Þessi rúsla mín á afmæli í dag!!!!
Til hamingju ástin og njóttu dagsins!!!!
Svo langar mig að benda á góð og þörf skrif hjá Fannberg kafara
http://olafurfa.blog.is/blog/olafurfa/entry/420080/ og
http://olafurfa.blog.is/blog/olafurfa/entry/421093/
Fyrst ég er farin að benda á síður þá er hin rétt tvítuga Andrea Karlsdóttir(bróðurdóttir Árna) búin að vera að gera aldeilis frábæra hluti í Indlandi og bloggar mjög svo vel og skemmtilega um það (þessi elska sem skírði dúkkurnar sínar Sollu bleiku og Árna bláa og einn kálf Sollu(dýrka þessa stelpu))
Svo ætla ég að monta mig af honum Antoni Frey systursyni mínum
sem er að gera góða hluti með A handboltaliði 4.flokks Selfoss....drengurinn er gríðarlega efnilegur.Spilaði með Val áður en þau fluttu hingað og hlaut þar meðal annars titilinn og bikarinn sem leikmaður ársins.Nú er búið að velja stráksa í U '92.unglingalandslið'92.....
Foreldrar hans Beta og Trausi slá hvergi af að keyra hann oft í viku upp á Selfoss að æfa og keppa.
Engin handbolti er spilaður hér í höfninni.Við eigum hér geysiefnilegan og sterkan einstakling og ég verða bara að segja það að skömm er af hvað æskulýðs og íþróttaráð (eða hvað sem þetta nú heitir)hefur sýnt honum lítinn áhuga.......fékk að vísu 10.000.kr.styrk í fyrra frá þeim....það dugði held ég fyrir bensíkostnaði hátt í hálfan mánuð.......En hér er það karfan sem ræður ríkjum.........kaupa útlenda menn og halda þeim uppi til að halda úti liði hér kemur smá umsögn frá síðasta leik A liðs 4.flokks Selfoss tekið af síðu umfs.is
Selfyssingar geta mun betur en þeir sýndu í dag, varnar- og sóknarlega og vonandi að menn mæti grimmari til næsta leiks. Anton Traustason gerði 11 mörk og mörg hver þeirra voru glæsileg.....
En jæja það er brjálaður skafrenningur og komin heldur óárennilegur skafl fyrir framan bílskúrinn....Spurning að vera á undan hreppurunum að moka sig út áður en þeir ná að loka mig inni eins og þeim er svo tamt blessuðum.......
Hlyja inn í nóttina....
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Villtu með mér vaka.....
23.1.2008 | 20:25
Ég er oft andvaka.....langar að segja andskoti oft en þar sem ég er að reyna að hætta að bölva....þá sleppi ég því............
Skil ekki alveg af hverju ég bölva svona mikið.Ég er búin að skoða sjálfa mig að innan í 3.mín... og finn enga ástæðu fyrir að ég nota bölv til að leggja áherslu á orð mín..........
Akkúrat í þessum skrifuðum orðum hef ég ákveðið að halda áfram að bölva...ég væri bara ekki ég sjálf án þess...
En þegar ég er andvaka þá er ég eins og þið hin sem það eru... eins og fló á skinni.....Ég er með þá undarlegu áráttu sama hvernig ég reyni að tæma hugann og segja farðu að sofa kerling...þá leitar á mig brjálæðisleg löngun í súkkulaði........svo sterk að jafnvel hálf sofandi hef ég ranglað fram í eldhús og náð mér í suðusúkkulaði vaknað svo með súkkulaði í hárinu og út á kinn......
Ég svaf yfir mig í morgun.....síminn vakti mig......skólinn að ath.með stelpuna.......
Mig dreymdi æðislegan draum ég og Jói Fel vorum að baka þessa frábæru tertu hans
og lái mér hver sem er að hafa ekki hlustað á vekjaraklukkuna...........
Þessi terta er það mikil snilld að maður dreymir hana og vill ekki vakna......
Nú er ég ekkert að auglýsa fyrir Jóa ég er bara brjáluð í súkkulaði á nóttunni.
Þegar ég verð stór þá ætla ég að giftast Nóa Síríus og Freyja og Góa verða brúðarmeyjar...........
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
Þegar ég fékk LIMAKORT
19.1.2008 | 05:29
Þegar ég var þrettán fór ég mína fyrstu "utanlandsreisu" til Föroya með vinkonu minni en móðir hennar og fjölskylda eiga heima þar.
Allt angaði eða réttara sagt lyktaði illa í litla þorpinu Straumsvík......lambalæri héngu hingað og þangað utan á húsunum"skerpukjöt" Get ekki sagt að lystin hafi verið upp á marga fiska þegar mér var boðið upp á það og saltað selspik með.........bíðið..... ég snöggvast fékk velgju.
Við gerðum heilmargt þarna með föroyingunum.....fórum oft til Þórshafnar fólkið hennar Erlu var mjög duglegt að keyra okkur.
Við fórum í klúbbinn og dönsuðum goggidans.Gelgju á fjórtánda ári fannst þetta eitt það hallærislegasta sem hún hafði lent í..........allir kræktu saman höndum og mynduðu hring og eitt skref til hægri og tvö skref til vinstri eða öfugt og allir kyrjuðu Grani bar gollið af haugi........
Við hittum líka nokkra svona Jággvan af Gördunum......sem komu og sungu fyrir utan gluggann hjá okkur að nóttu til öllum til ama......
Ég man fá nöfn einn hét Jóhannes Djúrus....Svo var Sakkaríus gamli í næsta húsi með heimalingana sína í bandi ......hann bruggaði landa og var alltaf fullur karlanginn.
'Ég held að það hafi verið bruggað í nánast hverju húsi þarna og skírir það að hluta til vondu lyktina sem þarna var.
Það var nefnilega engin áfengissala í Færeyjum.Færeyingar máttu panta visst magn á ári af áfengi frá Danmörku en ekki fyrr en þeir voru búnir að greiða skattinn.....
Í Þórshöfn fórum við á einhvern skemmtistað......ég 13.ára var ekki spurð um nein skírteini.....ekkert pælt í aldri þarna.Ég hélt samt að þegar dyravörður bað mig að skrifa nafnið mitt í svona afrifublokk sem búið var að prenta eitthvað á að nú væri ég í djúpum skít.......
En neinei gaurinn reif miðann úr blokkinni og rétti mér?????????????
'eg fór að lesa miðann og þarna stóð að ég væri LIMUR nr 316....
Ritað mál Færeyinga er stórkostlegt og málið skemmtilega fyndið.
Við í Sykursnúðinum vorum eitt sinn staddar á Sigló hjá Erlu og þar voru mamma hennar og Palli heitin maðurinn hennar.Þegar við vorum að fara að sofa þá datt okkur í hug að við gætum sofnað betur ef við fengjum eitthvað að lesa.Vissum að Erla ætti fullt af einhverjum ástarvellubókum.
Það sem við vissum líka allar að reyfarhol á færeysku þíðir rassgat á íslensku þá spurðum við Erlu um reifara hvort hún ætti ekki einhverja reyfara fyrir okkur í rúmið og Palli hlær og hlær og segir "vilja ti ikke fáa almennelig mann"
Þóra sem er svo einstaklega móðurleg í sér útskýrir mjög varlega fyrir Palla...."Palli minn við verðum mikið fljótari að sofna ef við tökum reyfara með okkur í rúmið"
Og palli hlær bara mikið meira og segir "veit tú ikki hva reyfari tíða".
Ha ??????? reyfari?????????
P.Jáv ta er sána tvaur menn sem fara í raufarhol í annan svána homma á íslensk............
Nú vorum við sko komnar í gang bulluðum út í eitt og hlógum ógurlega af vitleysunni í okkur.
Bloggar | Breytt 20.1.2008 kl. 00:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (30)
ARRRRGGGGGGHh
15.1.2008 | 14:19
Hverslags djöfulsins ómenni eru þetta!!!!!
Eins og fram kemur í fréttinni er ekki um nein tengsl eða kunningsskap að ræða.
Ég fordæmi þessa menn ef mennska skyldi kalla.....
helvítis ófreskjur....
Ok.ég er ekki vön að blogga við fréttir en gat alls ekki orða bundist.......
Foreldrar slegnir óhug | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Maður spyr sig!!!!!!
13.1.2008 | 16:49
Heildarneysla á áfengi á Íslandi með minnsta móti.Þrátt fyrir verulega aukningu áfengisneyslu á síðustu árum???Erum við að drekka oftar og minna magn í einu?Eða erum við að drekka sjaldan og þá mikið einu????????
Ég veit ekki en mér finnst þetta stangast á annrlegt helgarástand þjóðarinnar.
Ég held að sala áfengis í matvörubúðum skipti í raun verulega litlu um almenna neyslu.Ef maður ætlar að drekka þá verður maður sér úti um áfengi hvort sem er.Hins vegar verður þetta hættulegt fyrir þá sem eru veikir fyrir víni þegar þú getur keypt það jafnt og morgunkornið.
Drykkjusiðir Íslendinga orðnir meinlausari | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (29)
Það er svo margt að brjótast í mér!!!
10.1.2008 | 16:00
T.d.var þetta eitt af því sem var í póstinum mínum og fari það í kolað að ég geti verið sammála öllu þessu en það fær mig svo sannarlega til að hugsa!!!
Subject:Fw: Fw: Holl lesning fyrir þá sem eru að pirra sig á þróun hlutabréfamarkaðarins.............
Ég bæti mínum sjónarmiðum við með rauðu...þannig að ef þið viljið lesa þetta í samhengi þá sleppið rauða letrinu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Ég náði að opna póstinn minn
7.1.2008 | 16:33
>Síðasta dag fyrir jól flýtti ég mér í stórmarkaðinn til að kaupa gjafirnar
>sem ég komst ekki yfir að kaupa fyrr.
>
>Þegar ég sá allt fólkið þar, byrjaði ég að kvarta í hljóði "Þetta á eftirað
>taka heila eilífð og ég á enn eftir að fara á svo marga staði".
>
>Jólin eru alltaf að verða meira og meira pirrandi með hverju árinu. Ég
>vildi að ég gæti bara lagst niður og farið að sofa og vaknað svo eftir
>jólin.
>Allavegana, ég kom mér í leikfangadeildina og þar fór ég að skoða verðin,
>hugsandi hvort að börn leiki sér eitthvað með svona dýr leikföng. Eftir smá
>tíma af leikfangaskoði þá tók ég eftir litlum strák um 5 ára, sem hélt
>ádúkku upp við brjóstið sitt.
>
>Hann strauk hárið á dúkkunni og virtist svo sorgmæddur.
>Svo snéri litli strákurinn sér að eldri konu sem var við hliðina á honum
>"amma, ertu viss um að ég hafi ekki nógu mikla peninga?" Gamla konan
>svaraði "þú veist að þú átt ekki nóg til að kaupa dúkkuna elskan mín" Svo
>bað hún hann um að bíða í 5 mínútur eftir sér á meðan hún skoðaði sig um.
>Hún fór fljótlega.
>
>Litli strákurinn hélt ennþá á dúkkunni í hendinni. Ég labbaði til hans og
>spurði hann hverjum hann ætlaði að gefa dúkkuna. "Þetta er dúkkan sem
>systir mín elskaði mest og langaði svo mikið í fyrir jólin.
>
>Hún var svo viss um að jólasveinninn myndi gefa sér hana.
>
>Ég sagði honum að kannski eigi jólasveinninn eftir að koma með dúkkuna til
>hennar, og að hann þyrfti ekki að hafa áhyggjur. En hann sagði við mig
>sorgmæddur "Nei jólasveinninn getur ekki gefið henni dúkkuna þar sem hún en
>núna. Ég verð að gefa mömmu dúkkuna svo að hún geti gefið henni hana þegar
>hún fer þangað". Augun hans voru svo sorgmædd meðan hann sagði þetta..
>
>"Systir mín er farin til þess að vera með Guð. Pabbi segir að mamma sé líka
>að fara til Guðs mjög fljótlega, og ég hélt að hún gæti farið með dúkkuna
>fyrir mig og gefið systur minni hana".
>
>Hjartað mitt stoppaði næstum því. Litli strákurinn leit upp til mín og
>sagði "Ég sagði pabba að segja mömmu að fara ekki alveg strax.
>
>Ég bað hann um að bíða þangað til að ég kæmi heim úr búðinni" Svo sýndi
>hann mér fallega mynd af honum þar sem hann var hlægjandi. "Ég vil líka að
>mamma taki þessa mynd með sér svo að hún gleymi mér aldrei"
>
>"Ég elska mömmu mína og ég vildi óska að hún þyrfti ekki að fara, en pabbi
>segir að hún verði að fara til að vera hjá litlu systur minni".
>
>Svo leit hann aftur á dúkkuna með sorgmæddum augum, mjög hljóðlátur. Ég
>teigði mig hljóðlega í veskið mitt og tók smá pening upp og sagði við
>strákinn "en ef við athugum aftur í vasan til að tékka hvort að þú eigir
>nógan pening?" Allt í lagi sagði strákurinn "ég vona að ég eigi nóg"
>
>Ég bætti smá af mínum peningum við án þess að hann tæki eftir því og við
>byrjuðum að telja. Það var nógur peningur fyrir dúkkunni, og meira að segja
>smá afgangur.
>
>
>Litli strákurinn sagði "Takk Guð fyrir að gefa mér nógan pening. Svo leit
>hann á mig og sagði " Í gær áður en ég fór að sofa þá bað ég Guð um að vera
>viss um að ég hafi nógan pening til þess að geta keypt dúkkuna handa systur
>minni. Hann heyrði til mín"
>
>"Mig langaði líka að eiga nógan pening til að kaupa hvíta rós handa mömmu,
>en ég þorði ekki að biðja Guð um of mikið, en hann gaf mér nóg til að kaupa
>rósina líka". Sko mamma elskar hvíta rós".
>
>Nokkrum mínútum seinna kom gamla konan og sótti strákinn. Ég kláraði að
>versla með allt öðru hugarfari ég gat ekki hætt að hugsa um litla strákinn.
>
>
>Svo mundi ég eftir frétt í blaðinu fyrir 2 dögum síðan "maður keyrði
>drukkinn og klessti á bíl þar sem ung kona og lítil stelpa voru í. Litla
>stelpan dó samstundis en mamman var í dái" Fjölskyldan varð að ákveða hvort
>þsð ætti að setja hana í öndunarvél eða ekki, af því að unga konan myndi
>ekki vakna úr dáinu.
>
>Var þetta fjölskylda litla stráksins?
>
>
>Tveim dögum eftir að ég hitti litla strákinn, las ég í blaðinu að unga
>konan hafi dáið. Ég gat ekki hamið mig og fór út í blómabúð og keypti búnt
>af hvítum rósum og fór upp í líkhús þar sem fólk gat séð konuna og óskað
>sér í seinasta skipti áður en hún væri jörðuð.
>
>Hún var þarna í kjól, haldandi á fallegri hvítri rós með myndinni af litla
>stráknum og dúkkuna á brjóstinu.
>
>Ég fór grátandi og fannst líf mitt hafa breyst til eilífðar. Ástin sem
>þessi itli strákur hafði til mömmu sinnar og systur, er enn þann dag í dag,
>erfitt að ímynda sér. Og í einni svipan tekur drukkinn maður þetta allt frá
>honum.
>
>
> Núna hefur þú 2 kosti:
>
>1) Sendu þessi skilaboð til allra sem þú þekkir.
>2) Eða hentu þessu og láttu sem þetta hafi ekki snert hjartað þitt.
>
>Ef þú sendir þessi skilaboð, þá kannski hindrar þú einhvern til þess að
>keyra drukkinn.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
GLEÐILEGT ÁR!!!! og megið skaupið lifa!!!!
2.1.2008 | 17:35
Ég óska ykkur öllum gleðilegs og gæfuríks árs!!
Og þakka fyrir nýliðið ár.
Verð að segja að mér fannst skaupið snilld....þó að ég hafi ekki verið grenjandi úr hlátri(ég vildi nefnilega heyra hvað sagt var) Þá var töluvert um hlátur og fliss hér á bæ.
Ég er ekki alveg að skilja þessa neikvæðu umræðu í bloggheimum un skaupið.
En maður er jú það sem maður hugsar...............
En margur bloggarinn er reyndar til í að vera alltaf að stúta hinum ýmsu málefnum...
þar á meðal ég
Mín heitasta ósk er að fá gefið út veiðileyfi á eiturlyfja baróna/innflytendur og já ég myndi leggja mig alla fram.
~~~~~~~~~~~~~
~~~~~~~~~~~~~~~
En að öðru.Áramótin voru alveg ágæt í alla staði.Við vorum með matarboð.Mr.Pálmason er snillingur þegar kemur að verkun og eldun lambahryggs en hann úrbeinar nokkrum dögum fyrr,laumar leydókryddum í kjötið og útkoman er albest í hvert og eitt skiptið.
Á boðstólum voru líka
veislu-kjúlli með frábærri fyllingu
og
hreindýr
geðveikislega gott.
Takk fyrir það
Andi mágur.
Hér var líf og fjör áramótin út og inn og ráku nokkrir góðir vinir og frændfólk inn nefið.
Ég læt myndirnar tala sínu máli......hægt er að stækka þær með því klikka á þær(kannski tvíklikka)
Í gær bauð Jonni frændi svo til nýárskvöldverðar......
Kalkún og fjör........
Bæ í bili og
nýársknús á línuna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (29)
Ég fékk pakka!!!!Hefði ég átt að kyssa jólasveinana????
26.12.2007 | 16:25
Á Aðfangadagsmorgun skrapp ég fram á klóið og ekkert merkilegt við.Datt í hug að kíkja í tölvuna aðeins og henti yfir mig v-hálsmálsbol með kraga.....tíminn leið á hraða ljóssins.... Á útidyrnar var barið all hressilega.
"humm" óþolinmæði er þetta........með hárið í kross ríf ég upp hurðina..
HÓHÓHÓ.......OH
Fyrir utan standa 3 skælbrosandi JÓLASVEINAR...
"OMG.......ég er ekki í haldara....
Ætti ég að skella á þá"....neinei berðu þig vel stelpa.
Einn upphóf sína jólasveinaraust......
Hér á að vera lítil stelpa sem heitir Solla........og veifar framan í mig fagurrauðum jólapakka???
"Já nei nei hér eru engin lítil börn lengur.......
stelpan í næsta húsi heitir Solla.....eru þið ekk...
"Jaskooooo þessi stelpa er svoldið stór....
hefur þú ekki verið stillt Solla mín....
HA??? jú ég???
Glettnin varð undruninni sterkari......fíflaðist svoldið við jólasveinana og tók við pakkanum
fékk svo mandarínu af því ég er svo góða og þæg og einhvern lítinn nammipakka
kvaddi þessar elskur með ósk um gleðileg jól.
Við innganginn hjá mér er spegill og varð mér eitt augnablik litið í hann ég tók fyrir andlitið og hló og hló.......ekki nóg með að ég væri með hárið í krossog haldaralaus
ég var í öfugum bolnum og kraginn náði upp að höku......hefði ekki viljað sjá aftan á mig....
Pakkinn var að sjálfsögðu ráðgáta.....mér datt fyrst í hug ein af mínum yndislegu vinkonum
hringdi í hana en hringdi í vitlaust númer....
hringdi síðan í soninn því hann væri líklegur til að gera svona
en hann sagði bara ...Ha hvaða rugl er nú í þér..
Ég reif upp pakkann og í honum var sílikon köku/ístertuform og form til konfektgerðar
greinilegt að sendandinn Þekkti mig mjög vel.
Og eitthvað kannaðist ég við skriftina.
Ég hringdi í Lísunamína sem sagði en gaman að þú skyldir fá pakka frá jólasveininum
Skvísan sú gafst upp á spurningaflóði mínu og sagði þú áttir ekki að fatta frá hverjum þetta væri.....Okkur Danna datt í hug að gera þetta.
Takk elskurnar mínar ......þið hittuð akkúrat í mark að senda jólasveinana til mín
þið vitið nefnilega að ég breytist í barn yfir jólin og innihaldið var nú ekkert slor.
Akkúrat þarna byrjuðu jólin hjá mér.
Ég byrjaði á því að henda út stressinu.......stressið stafaði af ýmsu...t.d. átti ég eftir að setja upp gardínurnar í stofunni og eldhúsinu en þær skyldu ekki upp fyrr en búið væri að lofta vel út og þrífa eftir skötuveisluna.
Þær eru reyndar ekki komnar upp enn en jólin komu samt.
Dóttirin veik.....
rættist þó dálið úr henni við pakka-upptekkt.
Svo kom FRÚ Beta og fjölsk.....og við mynduðum börnin okkar saman
Gunna og Anton
Gunna.Sara Lind og Anton
Sara reyndi marg ítrekað að sýna svipaða takta og frænka hennar og tekst bara vel til þarna.
Úti er dúna logn og snævi þakin jörð og fagurt um að litast í jólaljósaflóðinu.
Lífið er yndislegt
og
Jólaknús á línuna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)
Ja... það gerði jólaboðið bara skemmtilegra
25.12.2007 | 23:20
Síðan sú fyrsta af okkur systkynunum fór að heiman hefur alltaf verið jóla-hangikjöts-boð hjá mömmu og pabbaí háfeginu á jóladag.Eftir að pabbi dó og mamma flutti í minni íbúð þá höfum við systur skipst á að hafa það hjá okkur.
Núna var það hjá FRÚ Betu sem á líka heima hérna.
Þegar ég og mín fjölsk..mættu á svæðið var húsbóndinn úti í bílskúr að gera uppstúf á útigrillinu og hita kartöflumús sem manna mín var svo forsjál að gera í morgun áður en hún kom austur fyrir fjall.
Bara borðað við kertaljós og kósí
Það brenndi sig nú enginn á matnum.....
Jón Pétur bró
Anton og Gauji bró
Jóna og Grettir
Baldur og Helga Lind
Litla og stóra sys
Trausti og Jón Pé
Barasta kósí í þessu rafmagnsleysi eta og spila......
Verst er að allt sjónvarp er dottið út eina ferðina enn.
Rafmagnslaust í Þorlákshöfn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Kæst kæstari og mikið kæst
21.12.2007 | 13:17
Skötuveislan okkar Jonna Ara frænda hefur færst til mín undan farið.
Hér áður þá verkaði pabbi minn heitin alltaf skötu og svoleiðis vil ég hafa hana.Mr Pálmason og Jonni hafa verkað einu sinni eftir því þeir vissu hvernig pabbi gerpi þetta en þeir hafa ekki haft aðstöðu til að gera þetta núna.Held samt að Jonni sé að verka út á sjó.Bara að hann verði komin í land.
Annars fer að líða að því að leita uppi ljósa mikið kæsta tindabikkju!!!! je ef ekki vill betur þá gaddaskötu en kæst verður hún að vera.Ég vil taka andköf meðan ég borða skötu.Svo þarf að leita að vestfirskum hnoðmör.Saltfiskurinn er kominn fyrir þá sem ekki borða skötu.
Þetta verður heilmikil stemming og HRÆÐILEG LYKT.......En eldað verður í bílskúrnum og tekur það obbann að þefnum.......svo er bara að opna allt upp á gátt....
Mig langar að benda á færslu hjá Ásthildi Cesil sem mér finnst svo sönn og rétt....
http://asthildurcesil.blog.is/blog/asthildurcesil/entry/396694/
Að lokum óska ég ykkur bloggvinum mínum og öðrum sem rekast hér inn
GLEÐILEGRA FRIÐAR JÓLA.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
Má ég giftast með ykkur??
18.12.2007 | 02:21
Enn og aftur er það Natalía Diljá sem á orðið........
Beta systir og Trausti voru nefnilega að gifta sig á sunnudaginn og hér kemur smá myndasyrpa frá atburðinum.
Séra Baldur að lesa þeim pistilinn..
Sara Lind dóttir þeirra að rétta hringana.
Mamma svaramaður,Beta,Trausti og Trausti svaramaður.
Hjónin og börnin þeirra Sara Lind og Anton Freyr ásamt Natalíu-skotti sem "langa so að gittast me ykkurr"
Frúin getur sjaldan setið á púkanum........
Móðir brúðarinnar og frúin.
Brúðguminn og faðir hans.
Helgi Jónas grillmeistari sá um að grilla í gesti og það ekkert smá gott og flott.
"við eigum að vera samtaka .....presturinn sagði það....
Systur Trausta, Lára og Hjördís.
Heiðbjört,frú Beta ,mamma,ég og Lilja.
Gunna og Lárus systursonur Trausta.
Svo eru hérna smá bullu-myndir af okkur systrum.....
Í lest.........
Þær kunna varla að pósa.......greinilegt að Hippla og Lilja eiga ekki unglinga.....
Við erum ekki að taka lagið þarna....eða hvað??????
og hér hjálpuðum við frú Betu að taka eiginmanninn....
Bestu systur í heimi....Heiðbjört,FRÚIN,ég og Lilja
Litli bró er íbyggin yfir hegðun systra sinna
Smá tertu-grín....
Takk fyrir þennan frábæra dag.
Fleiri myndir er að finna í albúminu Fallleg hér á síðunni.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Guð geimi þig
17.12.2007 | 12:16
elsku skólabróðir minn og vinur.
Fyrir um mánuði setti ég inn þessa mynd og tileinkaði sérstakri persónu og fjölskildu hans hana.
Aftur tileinka ég Óskari,Ástu og tvíburunum þeirra þessa mynd.
En Óskar minn dó snemma í morgun eftir harða baráttu við krabbamein.
Ég vil líka minnast kunningjamíns og vinar Jóns Péturs bróðurs míns Jóns Gunnars Grjetarssonar en hann verður jarðsunginn í dag og háði hann einnig baráttu við krabbamein.
Ég mun ávallt minnast ykkar.
Ég ætlast ekki til kommenta við þessa færslu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Gudda enn....
12.12.2007 | 14:07
Ætla bara að láta vita að ég er enn á lífi.
Tölvan búin að vera biluð...útaf DOTTLU.
Trausti tilvonandi mágur á ekki til orð yfir mig.
En ég þarf að baka margar margar margar SÖRUR fyrir hann.
Hann á þær sko skilið.
Veggurinn er farinn og fer ekki upp aftur.......allavega ekki í bráð
Nú þarf að raða aðeins húsgögnum upp á nýtt en það er ekkert nýtt sko
Sykursnúðurinn
er leifar af saumaklúbb sem fæddist fyrir tæpum 30 árum.
Leifarnar
eru við æskuvinkonurnar
Þóra(Gudda gamla bjalla)Lilja systir,Vigdís(bæjó) og ÉG.
Í desember komum við alltaf saman hjá Lilju og gerum eitthvað meiriháttar.
Konan sú er alger lystamaður og er alltaf búin að undirbúa það sem gera skal.
Sl.laugardag mættum við austanfjalls-kéllur til hennar í H.fj.
(((( við tökum upp á ýmsu öðru en að sauma !!!!))))
Þar beið okkar Mexíkós súpa með tilheyrandi......Niður sniðinn 65.cm jólasveinn sem við svo dútluðum og dedúuðum við með leiðsögn og hjálp Lilju.
Útkoman varð þessi sæti
Jólaþorpið var skannað í fljótheitum..... kíkt á kaffi-Amor og skellt í sig kakó og svissmokka með extra rjóma....tíndumst svo hver af annari......Hvernig var farið að áður en gemsarnir komu????
En er farin ..búin ..bæ..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
Solla þúrt me ljóddar TÆR..
4.12.2007 | 09:47
Sagði litla þriggja ára skrípið hún Natalía Diljá við mig í gær þar sem ég hringaði lappirnar undir mér í sjónvarpssófanum og ekki nóg með það hún hrillti sig og labbaði í burtu og tautaði oggisslett.....snéri svo við og sagði... Solla þú verður að fara í bað......humm ég kíkti undir annan fótinn og sá að ég var þokkalega óhreyn á fætinum......það upplýsist hér með fyrir þá sem ekki þekkkja mig að ég geng alltaf berfætt og er ekkert að fara í skó þó ég stökki út með ruslið eða á snúruna eða bara út í smók.....Samt undantekningar ef ég fer á skemmtistaði eða eitthvað svoleiðis og eins núna í kuldanum hef ég verið í sokkum annars verður mér svo asskoti illt í fótunum..
Aldrei datt mér í hug að ég mundi blogga um mínar forljótu tær........
Þetta var bara svo mikil snilld að heyra og sjá krakkann.
Rokið er að hlæja að mér og jafnvel mana mig að koma út og setja upp séríur á bílskúrinn og kringum anddyrið.....eitthvað sem var á áætlun fyrir mánaðarmót.
Þar sem ég er ekkert endilega eins og aðrir og rokið er að bulla í mér er ég að fara út með hamar og tilheyrandi því nú skulu tendruð ljós........
Ef þið heyrið fréttir í hádeginu.......kona hátt á fimmtugsaldri í Þorlákshöfn fauk úr Eyjahrauni út að sundlaug....konan hafði í fórum sínum hamar og forláta jólaljósaslöngu.......stigi var fastur við ljotar tær konunnar..........
JÁ ÞAÐ ER FRÉTT UM MIG.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
Fullveldisdagurinn 1,des í denn....
1.12.2007 | 00:13
Var nú alltaf svo lítið merkilegri en í dag.
Alltaf frí í skólanum og það sem var lang best 1.des.ball.
Ji hvað var gaman þá.
Ég lagði af stað 30.nóv.með hinum krökkunum á sveita ball á Hvolsvelli.Þá 14.ára sko......Hljómsveitin Júdast held ég....fortíðarflipp akkúrat núna....ég finn held ég bara lyktina.Eftir miðnætti þurfti kærastinn minn auðvitað að lenda í slagsmálum og hann og fleiri voru drifnir inn í eldhús.SÍÐAN KOM LÖGGA AÐ NÁ Í MIG ég átti að bera vitni.Nú var ég í verulegum vandræðum.
Þurfti að þylja upp NAFNNÚMERog allt í lagi með það........svo var það nafn fæðingardagur og ár.......mér hefur aldrei látið vel að ljúga en ég man andartakið enn þá þegar ég byrjaði að stynja upp 1-12..........50 og 50 og 50 og 50 og 50 og hérna SEX.
Löggurnar litu glottandi á stelpugerpið og hristu hausinn ""hvenær ertu fædd??!!!""
Ég stundi upp 1-12-59 og bjóst við að verða hent út....þurfa að húka úti í rútu .angað til ballið væri búið....En þessar elskur óskuðu mér til hamingju með 15.ára afmælið og síðan var ég látin segja frá atburðarrás slagsmálanna.
Okkur kærastanum sem var með 2 lausar tennur og sprungna vör var svo hleypt út úr eldhúsinu.
þetta er ein svona smá minning af mörgum frá þessum merka degi.
Knús á línuna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)