GLEÐILEGT ÁR!!!! og megið skaupið lifa!!!!

Ég óska ykkur öllum gleðilegs og gæfuríks árs!!

Og þakka fyrir nýliðið ár.

Verð að segja að mér fannst skaupið snilld....þó að ég hafi ekki verið grenjandi úr hlátri(ég vildi nefnilega heyra hvað sagt var) Þá var töluvert um hlátur og fliss hér á bæ.

Ég er ekki alveg að skilja þessa neikvæðu umræðu í bloggheimum un skaupið.

En maður er jú það sem maður hugsar...............

En margur bloggarinn er reyndar til í að vera alltaf að stúta hinum ýmsu málefnum...

þar á meðal ég

Mín heitasta ósk er að fá gefið út veiðileyfi á eiturlyfja baróna/innflytendur og já ég myndi  leggja mig alla fram.

~~~~~~~~~~~~~

~~~~~~~~~~~~~~~

En að öðru.Áramótin voru alveg ágæt í alla staði.Við vorum með matarboð.Mr.Pálmason er snillingur þegar kemur að verkun og eldun lambahryggs en hann úrbeinar nokkrum dögum fyrr,laumar leydókryddum í kjötið og útkoman er albest í hvert og eitt skiptið.Sara.trausti,jón þór,linda.anton og gunna

Á boðstólum voru líka

veislu-kjúlli með frábærri fyllingu

og

hreindýr

geðveikislega gott.

Takk fyrir það

Andi mágur.

Hér var líf og fjör áramótin út og inn og ráku nokkrir góðir vinir og frændfólk inn nefið.

Ég læt myndirnar tala sínu máli......hægt er að stækka þær með því klikka á þær(kannski tvíklikka)

berglin,beta,trausti.linda,anton Mr.Pálmason

tiltekt eftir  matinn......hinn förkálfurinn minn komið sér fyrir.....fyrir skaupið

anton sæti gunna og jón þórmæðgurnar taka vinarskál í óáfengum ógnvekjandi allir fengu að skála með aldurstengdum drykkjum

gellurnar í boðinu gera klárt SKO

null út að skjóta

upp í loft mynd

null sara lind að slá takktinn undir söng hvanndalbræðra

Fjörkálfur þetta gerpi

Í gær bauð Jonni frændi svo til nýárskvöldverðar......

Kalkún og fjör........

Bæ í bili og

nýársknús á línuna.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristberg Snjólfsson

Gleðilegt nýtt ár. OG skaupið var hundlélegt  og hana nú

Kristberg Snjólfsson, 2.1.2008 kl. 18:36

2 Smámynd: Solla Guðjóns

Þú um það .........sagði hænan

Solla Guðjóns, 2.1.2008 kl. 19:17

3 Smámynd: Svala Erlendsdóttir

Nýarsknús á þig líka snúlla. Mér fannst skaupið hrikalega fyndið en reyndi að hemja mig til að heyra næsta brandara

Takk fyrir fallegar kveðjur á bloggið mitt

Svala Erlendsdóttir, 2.1.2008 kl. 19:30

4 Smámynd: Ingunn Jóna Gísladóttir

Kæra Solla, ég óska þér og þínum gleði og gæfu á nýju ári, þakka yndisleg bloggkynni á því nýliðna. Greinilega fjörug fjölskylda hjá þér. Nýárskveðjur Ingunn

Ingunn Jóna Gísladóttir, 2.1.2008 kl. 21:36

5 Smámynd: www.zordis.com

Elsku kjéddlingin mín, vantar myndir úr partýinu hans Jonna .... (gráðug)  Æðislegar myndir úr veislunni þinni og ég set mér takmark í lífinu sem er að komast í galdrabrasið hans Mr. Pálmason þar sem Guddurnar eru hver annari ferskari og líflegri!

www.zordis.com, 2.1.2008 kl. 21:37

6 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Gunnar Helgi Eysteinsson, 2.1.2008 kl. 21:42

7 Smámynd: Solla Guðjóns

Takk elskurnar mínar......en Þórdís myndavélin gleymdist í gærkvöldiannars væri sjálfsagt mynd af Bygga bróðir þínum hér

Hey tókstu eftir myndinni Rósir....er samt ekki komin á rétta vegginn

Solla Guðjóns, 2.1.2008 kl. 21:42

8 Smámynd: Kristjana Bjarnadóttir

Gleðilegt ár!

Kristjana Bjarnadóttir, 2.1.2008 kl. 23:49

9 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Gleðilegt nýtt ár. Ég hló af skaupinu. Frábær áramótaveisla hjá þér.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 3.1.2008 kl. 00:14

10 identicon

hæ hæ og gleðilegt nýtt ár!

 ég hef ekki séð skaupið í mörg ár!!!!

 knús

Kristjana Engliráð Sigurðardóttir 3.1.2008 kl. 09:09

11 Smámynd: www.zordis.com

Tók ég eftir .... Já elskan mín ég gerði það!  Rosalega falleg mynd

Ég er hér að á flikk flakk heljarstökki .... já, það hefði nú verið gaman að sjá mynd af Bigga bróður mínum sætulíus! 

knús á þig kjéddlingin mín, hlakka til að geta vaðið með þér í Englavíkinni í sumar!  Stefnumót, sami tími að ári!!!!

www.zordis.com, 3.1.2008 kl. 22:08

12 Smámynd: Solla Guðjóns

jamm skundum í Englavík með Lísuna okkar

Solla Guðjóns, 3.1.2008 kl. 23:38

13 identicon

Úff, þá sjaldan maður skellir sér bloggrúnt í tölvuheimi kostar það blóð, svita, tár og pirring að skilja eftir komment. Nenni ekki að skrifa allt aftur og segi einfaldlega >>> Gleðilegt nýtt ár

Lísa 4.1.2008 kl. 01:57

14 Smámynd: Margrét M

gleðilegt nýtt boggár

Margrét M, 4.1.2008 kl. 09:44

15 Smámynd: Solla Guðjóns

Gleðilegt ár Lísan mín.....alveg er ég sammála þér..vsr að verða vitlaus á þessum bloggsíðum í gærkvöldi...byrtust seinnt og illa og mikið um villumeldingar......núna get ég t.d. ekki sett reiðikall.......segi þá bara ARGHH

Solla Guðjóns, 4.1.2008 kl. 13:54

16 Smámynd: Ólafur fannberg

sá ekki skaupið flottar myndir sérstaklega sú síðasta hehehe

Ólafur fannberg, 4.1.2008 kl. 16:56

17 Smámynd: www.zordis.com

kurr kurr sagði litla dúfan sem lá á hleri, beið eftir ástar kveri og kváði í hvívetna!

mússý múss ....

www.zordis.com, 4.1.2008 kl. 22:20

18 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

þetta hefur greinilega verið mjög gaman !!!

bið að heilsa lambalæramanninum

AlheimsLjós til þín

Steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 5.1.2008 kl. 16:27

19 Smámynd: Sigrún

smússss á þig og takk fyrir síðast

verð eiginlega að vera svoldið ósammála þér ........................

skaupið var mjög lélegt í ár

Sigrún, 5.1.2008 kl. 22:54

20 Smámynd: Solla Guðjóns

Hey!!! Það var mikið að einhver tjáði sig um skaupið

Solla Guðjóns, 6.1.2008 kl. 01:12

21 Smámynd: Gunnar Páll Gunnarsson

Gleðilegt ár. Þetta hefur verið svaka fjör. Skaupið á ég til góða. Prófa það á næstu dögum.

Gunnar Páll Gunnarsson, 6.1.2008 kl. 01:47

22 Smámynd: www.zordis.com

Get ekki tjáð mig um skaupið og er því hlutlaus en mikið er ég glöð að sjá að það séu skoðanaskipti á hvað er gott og hvað er minna gott!

Knús á þig sætust!

www.zordis.com, 6.1.2008 kl. 09:42

23 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Hvaða, hvaða?  Þetta var ekki sem verst, Skaupið.   Byrjuðu kannski helst til rólega fyrir minn smekk, en náðu fínu flugi með Johnsen í jarðgangnagerðinni og leitinni að Lúkasi.  Hef samt séð þau betri....en verri líka.

Sigríður Sigurðardóttir, 6.1.2008 kl. 14:03

24 identicon

Ging gong gúllí gúllí gúllí - ging gong gú -ging gong gú

Lísa 7.1.2008 kl. 06:49

25 Smámynd: Solla Guðjóns

Um kaldhæðnislegt atriði sem ég er ekki búin að fá botn í

Solla Guðjóns, 7.1.2008 kl. 14:39

26 identicon

Ég hló af öllu, líka því sem ég fékk engan botn í  Var í skaupgírnum og þá er bara gaman.

Lísa 7.1.2008 kl. 17:24

27 Smámynd: Solla Guðjóns

Solla Guðjóns, 7.1.2008 kl. 17:37

28 Smámynd: Ólafur fannberg

sá ekki skaupið

Ólafur fannberg, 8.1.2008 kl. 07:02

29 identicon

Gleðilegt ár Solla mín

 Ég verð nú að vera þér sammála, Solla... fannst skaupið bara nokkuð fínt... hló helling í það minnsta! 
Held maður megi alls ekki vera með neinar væntingar, það hafa komið skaup sem er ekki hægt að keppast við!  Laddi, Edda Björgvins og co. hva var það "84 þetta allra bezta??

Srósin 9.1.2008 kl. 13:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband