Ég náði að opna póstinn minn

og stóð eftir farandi póstur upp úr ásamt flottri afmæliskveðju....................................  Þessi saga er alltaf svo falleg og snertir mann alltaf, svo ég ákvað að deila henni með ykkur.
     

>Síðasta dag fyrir jól flýtti ég mér í stórmarkaðinn til að kaupa gjafirnar
>sem ég komst ekki yfir að kaupa fyrr.
>
>Þegar ég sá allt fólkið þar, byrjaði ég að kvarta í hljóði "Þetta á eftirað
>taka heila eilífð og ég á enn eftir að fara á svo marga staði".
>
>Jólin eru alltaf að verða meira og meira pirrandi með hverju árinu. Ég
>vildi að ég gæti bara lagst niður og farið að sofa og vaknað svo eftir
>jólin.
>Allavegana, ég kom mér í leikfangadeildina og þar fór ég að skoða verðin,
>hugsandi hvort að börn leiki sér eitthvað með svona dýr leikföng. Eftir smá
>tíma af leikfangaskoði þá tók ég eftir litlum strák um 5 ára, sem hélt
>ádúkku upp við brjóstið sitt.
>
>Hann strauk hárið á dúkkunni og virtist svo sorgmæddur.
>Svo snéri litli strákurinn sér að eldri konu sem var við hliðina á honum
>"amma, ertu viss um að ég hafi ekki nógu mikla peninga?" Gamla konan
>svaraði "þú veist að þú átt ekki nóg til að kaupa dúkkuna elskan mín" Svo
>bað hún hann um að bíða í 5 mínútur eftir sér á meðan hún skoðaði sig um.
>Hún fór fljótlega.
>
>Litli strákurinn hélt ennþá á dúkkunni í hendinni. Ég labbaði til hans og
>spurði hann hverjum hann ætlaði að gefa dúkkuna. "Þetta er dúkkan sem
>systir mín elskaði mest og langaði svo mikið í fyrir jólin.
>
>Hún var svo viss um að jólasveinninn myndi gefa sér hana.
>
>Ég sagði honum að kannski eigi jólasveinninn eftir að koma með dúkkuna til
>hennar, og að hann þyrfti ekki að hafa áhyggjur. En hann sagði við mig
>sorgmæddur "Nei jólasveinninn getur ekki gefið henni dúkkuna þar sem hún en
>núna. Ég verð að gefa mömmu dúkkuna svo að hún geti gefið henni hana þegar
>hún fer þangað". Augun hans voru svo sorgmædd meðan hann sagði þetta..
>
>"Systir mín er farin til þess að vera með Guð. Pabbi segir að mamma sé líka
>að fara til Guðs mjög fljótlega, og ég hélt að hún gæti farið með dúkkuna
>fyrir mig og gefið systur minni hana".
>
>Hjartað mitt stoppaði næstum því. Litli strákurinn leit upp til mín og
>sagði "Ég sagði pabba að segja mömmu að fara ekki alveg strax.
>
>Ég bað hann um að bíða þangað til að ég kæmi heim úr búðinni" Svo sýndi
>hann mér fallega mynd af honum þar sem hann var hlægjandi. "Ég vil líka að
>mamma taki þessa mynd með sér svo að hún gleymi mér aldrei"
>
>"Ég elska mömmu mína og ég vildi óska að hún þyrfti ekki að fara, en pabbi
>segir að hún verði að fara til að vera hjá litlu systur minni".
>
>Svo leit hann aftur á dúkkuna með sorgmæddum augum, mjög hljóðlátur. Ég
>teigði mig hljóðlega í veskið mitt og tók smá pening upp og sagði við
>strákinn "en ef við athugum aftur í vasan til að tékka hvort að þú eigir
>nógan pening?" Allt í lagi sagði strákurinn "ég vona að ég eigi nóg"
>
>Ég bætti smá af mínum peningum við án þess að hann tæki eftir því og við
>byrjuðum að telja. Það var nógur peningur fyrir dúkkunni, og meira að segja
>smá afgangur.
>
>
>Litli strákurinn sagði "Takk Guð fyrir að gefa mér nógan pening. Svo leit
>hann á mig og sagði " Í gær áður en ég fór að sofa þá bað ég Guð um að vera
>viss um að ég hafi nógan pening til þess að geta keypt dúkkuna handa systur
>minni. Hann heyrði til mín"
>
>"Mig langaði líka að eiga nógan pening til að kaupa hvíta rós handa mömmu,
>en ég þorði ekki að biðja Guð um of mikið, en hann gaf mér nóg til að kaupa
>rósina líka". Sko mamma elskar hvíta rós".
>
>Nokkrum mínútum seinna kom gamla konan og sótti strákinn. Ég kláraði að
>versla með allt öðru hugarfari ég gat ekki hætt að hugsa um litla strákinn.
>
>
>Svo mundi ég eftir frétt í blaðinu fyrir 2 dögum síðan "maður keyrði
>drukkinn og klessti á bíl þar sem ung kona og lítil stelpa voru í. Litla
>stelpan dó samstundis en mamman var í dái" Fjölskyldan varð að ákveða hvort
>þsð ætti að setja hana í öndunarvél eða ekki, af því að unga konan myndi
>ekki vakna úr dáinu.
>
>Var þetta fjölskylda litla stráksins?
>
>
>Tveim dögum eftir að ég hitti litla strákinn, las ég í blaðinu að unga
>konan hafi dáið. Ég gat ekki hamið mig og fór út í blómabúð og keypti búnt
>af hvítum rósum og fór upp í líkhús þar sem fólk gat séð konuna og óskað
>sér í seinasta skipti áður en hún væri jörðuð.
>
>Hún var þarna í kjól, haldandi á fallegri hvítri rós með myndinni af litla
>stráknum og dúkkuna á brjóstinu.
>
>Ég fór grátandi og fannst líf mitt hafa breyst til eilífðar. Ástin sem
>þessi itli strákur hafði til mömmu sinnar og systur, er enn þann dag í dag,
>erfitt að ímynda sér. Og í einni svipan tekur drukkinn maður þetta allt frá
>honum.
>
>
>  Núna hefur þú 2 kosti:
>
>1) Sendu þessi skilaboð til allra sem þú þekkir.
>2) Eða hentu þessu og láttu sem þetta hafi ekki snert hjartað þitt.
>
>Ef þú sendir þessi skilaboð, þá kannski hindrar þú einhvern til þess að
>keyra drukkinn.



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Fallegur boðskapur sem þessi saga miðlar.  Ánægð að þú skulir hafa náð póstinum þínum í lag, hvað var frúin með mörg meil í innboxinu???

www.zordis.com, 7.1.2008 kl. 16:54

2 Smámynd: Kristjana Bjarnadóttir

Eftir einn aki ei neinn. Aldrei of oft sagt.

Kristjana Bjarnadóttir, 7.1.2008 kl. 17:09

3 Smámynd: Solla Guðjóns

203.....en hann er ekki komin í lag ég get ekki sent neitt frá mér......

Solla Guðjóns, 7.1.2008 kl. 17:11

4 identicon

Tek undir þetta - þessi saga er aldrei of oft sögð.

Knús á þig.

Lísa 7.1.2008 kl. 17:26

5 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

Ljós til þín

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 7.1.2008 kl. 20:57

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þetta er þörf færsla Solla mín og yndisleg saga, sagan af kærleikanum,
sorginni og  tilfinningum okkar.
Eitt verðum við að passa, það er að fara ekki inn í sorgina með
öllu og öllum því þá getum við ekki hjálpað eða sagt það sem þarf að segja.

                        Ljós og orkukveðjur til þín Solla.
                                    Kveðjur Milla. 

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 7.1.2008 kl. 22:15

7 Smámynd: Ingunn Jóna Gísladóttir

Það eru bara allir að blogga eitthvað í dag sem lætur mann gráta. Mikið ofboðslega er þetta þarfur og fallegur pistill. Kær kveðja Ingunn

Ingunn Jóna Gísladóttir, 7.1.2008 kl. 22:20

8 Smámynd: Gunnar Páll Gunnarsson

Yndislega falleg saga Meira af svona löguðu. Það er svo mikið um að fólk noti bloggið til að rífast og skammast. Fleiri mættu gera þetta líka.

Gangið á guðs vegum. 

Gunnar Páll Gunnarsson, 7.1.2008 kl. 22:32

9 Smámynd: Solla Guðjóns

Eitt verðum við að passa, það er að fara ekki inn í sorgina með
öllu og öllum því þá getum við ekki hjálpað eða sagt það sem þarf að segja.

Mjög umhugsuarvert.

til ykkar allara.

Solla Guðjóns, 8.1.2008 kl. 01:58

10 Smámynd: Ólafur fannberg

flott

Ólafur fannberg, 8.1.2008 kl. 07:01

11 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Knús og klemm

Jórunn Sigurbergsdóttir , 8.1.2008 kl. 17:18

12 identicon

ég fékk kökk í hálsinn!

x

Kristjana Engliráð Sigurðardóttir 9.1.2008 kl. 09:35

13 identicon

Lísa 10.1.2008 kl. 06:43

14 Smámynd: Margrét M

sannarlega falleg og sorgleg saga þarna á ferð

Margrét M, 10.1.2008 kl. 08:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband