Nauðgunarlyf-skyldulesning.
8.3.2007 | 20:02
Kýkið endilega á þetta
á síðu Skessunnar.
Gæti bjargað
dætrum þessa lands.
Rohypnol - Af lyfjaskrá með þennan óþverra..STRAX
Rohypnol - 2
Svör Landlæknisembættisins
http://skessa.blog.is/blog/skessa/entry/140124/
Byrt með leifi skessunnar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Vil að sem flestir sjái þessa færslu!!!!
6.3.2007 | 20:30
Mér finnst þetta nefnilega alltaf jafn snjallt og fyndið.
23.5.2006 | 01:47
Senn líður að kosningum!!!!
Já það fer vart fram hjá neinum....nú er að koma smá spenna í þessi mál.Í morgun hringdi í mig maður og sagði mér að konan sín væri í framboði,sem ég náttúrulega vissi, en jæja blessaður karlinn sagði mér að konan yrði alveg óþolandi á heimilinu ef hún kæmist ekki að,hahaha eins og mér væri nú ekki sama um það,hinsvegar hef ég mikið álit á umræddri konu.Það er þessi fjandans flokkapólitík sem ég er mjög ósátt við.Ég sé alveg fyrir mér að setja alla frambjóðendur á einn lista og merkja svo við aðila sem maður vill hafa nr.1,2,3,4,o.s.frv.Umræddur maður spurði síðan um Pálmason og sagði ég hann heima við núna en hann yrði farin á Kárahnjúka á laugardaginn og yrði líklega að kjósa hjá´SÝSLA ,maðurinn bauð þá að hann yrði keyrður þangað.Ójáþá rifjaðist upp fyrir mér uppáhalds sagan af henni Maríu ömmu.Af einhverjum ástæðum sem ég man ekki þá voru alþingiskosningar 2.des 1979.Þá fékk ég að kjósa í fyrsta skipti 20.ára og 1.dags.En þannig var að við Pálmason gengum upp að altarinu 1.des.degi fyrir þessar kosningar,veðrið var frekar leiðinleg og ekki allir sem treistu sér að keyra austur fyrir fjall í brúðkaupið okkar svo amma mín varð farlaus í Reykjavíkurhreppi.Sú gamla hringdi í mig og sagði mér að hún kæmi með einhverjum ráðum þó seint yrði.Um hádegisbil 2.des.kosningadaginn rennir flottur Range Rover í hlað hjá mömmu og pabba og sú gamla vindur sér út og rífur upp hurðina bílstjóramegin,bílstjórinn snarast út og fer í skott bílsins og nær þar í stærðar kassa og rogast með hann að dyrunum.Amma þakkaði honum fyrir og dásamaði hann í bak og fyrir og kvaddi sem kónginn.....Amma var nú mætt á svæðið með brúðargjöfina okkar 12.manna kaffistell og var hin kátasta...Þegar pabbi spurði hana því hún hefði ekki boðið manninum inn ....þá hnussaði í þeirri gomlu ,, fjandinn að mér að ég fari að draga sjálfstæðisfífl í kaffi,hann trúði því að ég þyrfti að komast hingað til að kjósa,þessu hló amma mín rosalega að ,hún hafði hringt á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins og beðið þá að koma sér á kjörstað,sem þeir töldu sig vera að gera. EN MÁLIÐ VAR AÐ HÚN ÁTTI HEIMA Í REYKJAVÍK EN SAGÐIST BÚA Í ÞORLÁKSHÖFN.AMMA MÍN VAR ALGER TÖFFARI.
EN BÆÍBILI
Flokkur: Bloggar
Athugasemdir
OMG hún amma þín hefurverið algjört YNDI !
Óskráður (Sigrún Pigrún), 23.5.2006 kl. 15:42
Það er víst óhætt að segja að AMMA þín hafi haft ráð undir hverju. Nú sér maður töffara taktana í systrum þínum já og bræðrum .... LOL, bara fyndin hún AMMA þín!
http://zordis.blog.is/, 23.5.2006 kl. 17:25
Amma var náttulega bara flottust!
Óskráður (Heiðbjört), 24.5.2006 kl. 09:37
Já henni ömmu okkar var sko ekki "flysjað" saman, það eitt er víst. Manstu þegar hún bað mig um að fara og losa kaffikorginn útí læk og skola kaffipokann, sem ég og gerði. Eitthvað kannaðist ég við munstrið í kaffipokanum, sem var það sama og í bol sem ég bað gömlu konuna um að þvo fyrir mig nokkrum dögum áður. Alveg yndisleg hún amma, blessuð sé minning hennar. Beta sytir
Óskráður (Beta), 24.5.2006 kl. 20:17
Bæta við athugasemd
Eigið svo góðan miðvikudag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Sjálfselska
5.3.2007 | 16:38
- Hef 20 daga til stefnu að tálga kroppinn.
þó fræðin séu einföld:
minni matur,meiri hreifing,ÞÁ
er það ekkert svo einfalt fyrir mig sem held riómaframleiðslu íslendkra mjólkurbúa og Nóa Síríus gangandi.
Mexikósk súpa. Uppskrift fyrir 6.
3 msk matarolía
600 gr nautahakk
2 msk niðursoðin jalepeno - saxaður
1 stór laukur saxaður
2 ds niðursoðnir tómatar
7 dl nautakjötskraftur ( teningar + vatn )
1 msk cumminduft
1 tsk chilliduft eða cayennapipar
1 tsk salt
1 tsk sykur
1 ds nýrnabaunir.
Olían hituð og hakkið brúnað. Jalepeno og laukur settur út í og brúnað þar til laukurinn er mjúkur. Tómatarnir saxaðir og bætt saman við ásamt soði, kryddi og sykri og allt soðið í 15 mín. Safin síaður frá nýrnabaununum og þeim blandað saman við. Hrært varlega í pottinum þar til baunirnar hafa hitnað í gegn. Borið fram með:Nachos flögum sem muldar eru yfir súpuna á disknum.Rifnum osti sem stráð er yfir flögurna og sýrðum rjóma ( ca ½ -1 msk per disk).Einnig er gott að hræra saman hreinan rjómaost og salsasósu og smyrja á tortillaköku, leggja aðra köku ofan á og skera þetta svo í sneiðar ( gott að nota pizzaskera )
Ógó góð!!
Prufiði bara
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Spákonur eða
4.3.2007 | 17:53
spákarlar.Hef aldrei heyrt um spákarla.Spámiðlar er orð yfir bæði konur og karla þannig að spákarlar hljóta þá að vera meðal okkar.
Ó las þessar setningar mínar og fattaði allt í einu orðið spámaður,en dett þá aftur í fornöld.
Eru spámenn á meðal okkar í dag?
Þá er ég að meina í sömu merkingu og spákona,allflestar konur,veit ekki um karla, hafa einhvern tíman farið til spákonu til að skiggnast inn í framtíðaina og bara til að hafa gaman af og létta lundina.
Bæði karlar og konur fara á miðilsfundi.Miðillinn er oftar karl en kona.
Óvænt pæling
ætlaði að fra að blogga um
þegar ég fór
í fyrsta sinn til spákonu
en
læt það bíða betri tíma.
Knús á línuna.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Frumraun í blogginu.Fyrsta og önnur bloggfærslan mín á blog/central.
3.3.2007 | 03:08
|
|
|
03.05.2006 00:19:00 [ollasak] | ||
prufa | ||
ég er nú bara eitthvað að fikta með þessa karla hérna til hliðar er ekki í nokkru stuði til að skrifa neitt ...ætla bara framm og fá mér rettu ..já ég reyki .....vona að þetta eiðist út á meðan.............ehh ég kann ekki að taka þetta út ...hvernig væri að tölvugúrúarnir sem ég þekki fari að kíkja í heimsókn.... en já ...........rettan sé svo bara til.ONEI bara allt á sínum stað .........en ég ætla í bælið............Árni er nemblea heim,,,,o nú vita allir hvað ég ætla að fara að gera...vúbbs gabbaði ykkyr ég ætla bara að biðja hann að snúa sér á hliðina svona rétt á meðan ég sofna.......hann hrítur nefnilega minna þá. | ||
» 1 hefur sagt sína skoðun |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 03:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Smá þeytingur á manni þessa dagana!!
2.3.2007 | 03:09
Skemmtilegur tími gengin í garð.Fermingarundirbúningur.Að mörgu er að huga.Munurin á stelpum og strákum er gífurlegur,allavega þegar kemur að fata vali.Er búin að eiða einum degi í einni búð á Selfossi.Skvísan mátaði allt sem var á boðstólum,hver flíkin á fætur annari,hinir og þessir fylgihlutir,skór,stígvél,belti og fleiri flíkur ogogog.........sú gamla þurfti oft að minna sig á að anda inn-anda út-draga djúpt....
Síðan er búið að halda til í Kringluni einn dag og annan í Smáralind.Ólíkt móðurini nýtur dúllan þess að máta föt.Ég vil að hún verði ánægð og dreg því andan.....
Er búin að fá ýmis skot frá skviz eins og "ekki villtaðélítiúteinsogsnjókall""hey já þegar þú fermdist BÚIN að heyraað"Ekki er búið að finna dressið en tískan í fermingarfötunum er mjög lík í búðunum,einföld og smekkleg.
Í fyrrakvöld voru lögð drög að boðskortum og gert sýnishorn,í gærkvöldi voru þau svo prentuð,þokkahjúin litla sys..og Baldur gerðu það,þessar elskur.
Svo langar mig að byrta þetta hér að neðan því mér finnst þetta vera það sem allir ættu að hafa í huga.
Eigið svo góðan föstudag og knús á línuna.
GRÍPTU TÆKIFÆRIÐ
Vinur minn opnaði undirfataskúffu konu sinnar og tók upp gjafapakka vafinn inní silkipappír: "Þetta er enginn venjulegur pakki." Hann opnaði pakkann og starði á bæði pappírinn og undirfötin sem í honum voru. "Ég gaf henni þetta þegar við fórum til New York í fyrsta sinn fyrir 8 eða 9 árum síðan. Hún hefur aldrei farið í þetta. Var að spara það fram að sérstakri stund.
Eða . . . ég held hún hafi verið að spara það." Hann færði sig nær rúminu og setti pakkanum hjá hinum fötunum sem hann ætlaði að taka með á jarðarfararstofuna, konan hans var nýlátin. Hann sneri sér að mér og sagði:
"Það á aldrei að geyma eitthvað til þess að nota það á sérstakri stund. Hver dagur er sérstök stund."
Ég held enn að þessi orð hafi breytt lífi mínu.Núna les ég meira og þríf minna.Ég sit í garðinum án þess að hafa áhyggjur af neinu.Ég eyði meiri tíma með fjölskyldunni og minni tíma í vinnunni.
Ég skildi það þarna að lífið á að vera uppspretta reynslu sem maður á að njóta en ekki aðeins að þrauka í gegnum. Ég geymi ekki ekki neitt lengur, ég nota kristalsglös á hverjum degi. Ég fer í nýju fötunum mínum í búðina, ef mig langar til þess. Ég geymi ekki uppáhalds ilmvatnið mitt fyrir sérstök tækifæri. Ég nota það hvenær sem mig langar til. Orðin "einhverntíman" og "einhvern daginn" eru að hverfa burt úr orðaforða mínum. Ef það er þess virði að sjá, hlusta eða gera, þá vil ég sjá hlusta og gera það núna. Ég veit ekki hvað eiginkona vinar míns hefði gert ef hún hefði vitað að hún yrði ekki með okkur morguninn eftir, það getur enginn vitað. Ég held að hún hefði hóað í fjölskyldu sína og nánustu vini.
Hún gæti jafnvel hafað kallað á gamla vini til að koma sátt á fornar deilur. Ég vil líka gjarnan trúa því að hún hefði farið út að borða á kínverskan veitingastað, sem var hennar uppáhald. Það eru þessir litlu hlutir sem ég myndi sjá eftir að hafa ekki gert, ef ég vissi að minn tími væri kominn. Ég myndi sjá eftir því að hafa ekki gert þetta vegna þess að ég mun aldrei framar sjá vini mína, og bréf . . . bréf sem ég ætlaði alltaf að skrifa. . . "einhverntíman."
Ég myndi sjá eftir því og vera sorgmædd vegna þess ég sagði hvorki systkinum mínum né börnum nógu oft hversu mjög mér þætti vænt um þau.
Núna reyni ég hvorki að fresta, tefja eða geyma nokkuð sem gæti fært gleði og hlátur inní líf okkar.
Og á hverjum morgni segi ég við sjálfa mig þetta er minn sérstaki dagur.
Hver dagur, hver stund, hver mínúta er sérstök.
Ef þú færð þetta bréf þá er það vegna þess að einhverjum þykir vænt um þig og vegna þess, sennilega, að þarna úti er einhver sem þér þykir líka vænt um.
Ef þú ert of upptekin til að senda þetta til annarra og segir við sjálfa þig að þú munir "senda þetta við betra tækifæri" mundu að "Einhvern daginn" er langt í burtu . . . eða kemur kannski aldrei. . . .
Bloggar | Breytt s.d. kl. 03:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Hægagangur.
27.2.2007 | 07:57
Sendi Moggabloggginu þennan póst og fékk þetta svar:
Solla Guðjónsdóttir wrote: > hvað er að ske með bloggkerfið???? > það rétt silast áfram????? > Þið verðið að gera eitthvað í þessu!!!!! Kveðja Ollasak SælSolla Takk fyrir ábendinguna. Við vitum af þessu og mun hægagangur lagast mjög fljótlega. > -- Kveðja, Ólafur Örn Nielsen Netdeild Morgunblaðsins Netfang: oli@mbl.is Símar: 569-1168 / 669-1168
Síðan kom þessi póstur:
Sæl og blessuð. Þetta stendur til bóta. Vorum að fá nýjan miðlara í hús. Kveðja, Ingvar Hjálmarsson netstjóri mbl.is Hádegismóum 2 110 Reykjavík Sími 569 1308 GSM 669 1308 ingvar@mbl.is
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Þegar Þórdís kom í Þolló
26.2.2007 | 12:13
Atlandshafið er áskorun
Lísa(drottningin af dreka) og Þórdís fikra sig í átt að hafinu
og ekkert mál fyrir Þórdísi
að láta sig vaða í Hafið
Ekki öfundaði ég hana af þessum köldu tásum.
Hér er dr Skotta að sjúkdómsgreina ást og hamingju.
sem fór aðra ferð í hafið.
Táslurnar þurrkaðar og rötuðu loks í
Þessa líka svaðalegu fjöruskó!
En vá var gaman? ójá!!
Ég fékk upphringingu lauslega eftir hádegi á laugardaginn,
í síman var sagt:hæ Solla viltu vera með mér...
UMMM hver er þetta?........Þórdís........arrrrg hæææ.
Síðan kom Þórdís að ná í mig og við í Lísu skvísu.
Ferðini var heitið í Selvoginn að vaða í sjónum.....glætan!!!!!!
og heimsækja leiði í Strandakirkjugarði.
Sver það að það var hálka í fjörunni,það aftraði þó ekki spánarmærini.
Ollasak er oftast vel út búin
þannig að við urðum nú ekki alveg innkulsa
útaf DOTTLU.
Umræðuefnin voru mjög svo fjölbreytt
en vart byrtingar hæf.
Eigið góðan dag
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Verður maður ekki að taka þessu alvarlega!!!!!
23.2.2007 | 13:31
FÖSTUDAGSHÚMOR
EÐA
HÓTUN?
Get ekki borðað nautakjöt - riðuveiki....
Get ekki borðað kjúkling - fuglaflensa...
Get ekki borðað eg
Get ekki borðað svínakjöt... - óttast að fuglaflensan herji á svín!
Get ekki borðað fisk... þungmálmar hafa mengað fæðu þeirra
Get ekki borðað ávexti eða grænmeti... - skordýraeitur og illgresiseyðir!
Hmmmmmmmmm!!!!!!!!!!!!!
M
M
M
M
M
M
M
M
M
M
M
Mér sýnist að eftir standi SÚKKULAÐI!!!!!!!!
MUNDU AÐ - - -
"STRESSED"
STA FA Ð AFTUR Á BAK ER...
" DESSERTS "
Sendu þessi skilaboð til fjögurra vina og þú losnar við 1 kíló.
Sendu þetta til allra sem þú þekkir (eða hefur einhvern tíma þekkt) og þú léttist um 5 kíló.
(Ef þú eyðir þessum skilaboðum bætirðu samstundis við þig 5 kílóum)
"Þess vegna varð ég að senda þetta áfram ---- vildi ekki taka neina áhættu!"
EIGIÐ SVO G-ÓÐA HELGI OG
KNÚS Á LÍNUNA.
Bloggar | Breytt 26.2.2007 kl. 19:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
Biðjum saman
22.2.2007 | 10:30
Við skulum kveikja á kerti í kvöld kl.2o
fyrir hetjuna hana
Ástu Lovísu.
Hún er 30.ára einstæð þriggja barna móðir
með krabbamein á háu stigi.
Hún á erfitt núna og
þarf á bænum okkar og hlýjum hugsunum að halda.
Góðar kveðjur til ykkar allra.
Solla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
þaEReggÍlagiMEkonuna
22.2.2007 | 03:02
Datt í hug að þú mindir líta við hjá mér smástund!
Og athuga hvort þú næðir mér ekki við eitthvað dónalegt... ;)
Þú sérð að það er allt eins og það á að vera..
samt svolítið mikið drasl...........
Mikið lítur þú vel út í þessari peysu? Er hún ný?
Knús á línuna........
Bloggar | Breytt 26.2.2007 kl. 19:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ég sem.......
20.2.2007 | 20:00
var svo ánægð að það væri hægt að setja svona hreyfimyndir inn á síðuna,,,,,,,,,,,,,,,,svo eru allt í einu komnir rauðir krossar.
Ég ætla nú samt að reyna aftur,,,,ætla að grufla eftir einhverju sem hreyfist.
Sjáumst á iði.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Í tilefni gærdagsins!!! (konudags)
19.2.2007 | 22:38
| |||||
|
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
JIBBÍÍÍ
17.2.2007 | 22:27
'EG ER ÓGÓBÓGÓ ÁNÆGÐ OG ALVEG FLÍSFALLIN FYRIR
RAUÐA ROKKARANUM!!!!!!!!!!
ÞÓTTI HANN SKO FLOTTUR FYRIR
EN
HEYRÐUÐ ÞIÐ HANN SYNGJA LAGIÐ Á
ENSKU ??????
VÁ ÉG HELD EKKI VATNI
ÁFRAM RAUÐI ROKKARINN
MINN!!!!!!
ÚJABEBE!!!!!
EIKI HAUKS LANG FLOTTASTUR
ALLTAF.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Stefnir allt í
17.2.2007 | 13:44
Skemmtilegan dag,,,vaknaði við síman,,,sonurinn að biðja mig að fara að kíkja á hvolpatíkina Birtu og taka hana í fóstur þar til þau koma heim í dag en þau voru að heiman í nótt og Birtu-bjáni bara ein og það mætti mér heldur betur kröftug vandlætning dýrsins,búin að míg og skíta á gólfið og liktin maður minn!!!!!Meðan ég þreif með handklæði fyrir vitunum,því ég kúaðist svo mikið,stillti tíkin sér upp við útidyrnar,eitthvað svona "þú ferð hvergi nema hafa mig með"Þegar heim var komið fór Pálmason með hana út í garð og auðvita hittu þau kött og voru dýrin að storka hvort öðtu og höfðum við mikið gaman af.En má ekkert vera að að vera í tölvu,er að fara að þrífa bílinn,hef góða afsökun fyrir að skúra ekki"það þíðir ekkert fyrr en hvolpkjáninn er farinn"
Eigið svo góðan og skemmtilegan dag og
BÆÍBILI
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Græðgin getur nú alveg farið með mann!!
16.2.2007 | 14:09
Það var einusinni maður sem var ekkert sérlega ánægður með hvernig hann var útbúinn, þarna niðri. Hann var hreint út sagt alltof langur, alveg heila 50 cm!!!! Sem var alltof langt. Hann vissi ekki hvernig hann átti að snúa sér í þessu og fór því til nornar einnar til að fá hjá henni góð ráð.
Nornin hugsaði sig lengi um, áður en hún sagði: - Farðu inní skóginn og þú munt hitta frosk. Spurðu froskinn hvort hann vilji giftast þér. Ef froskurinn svara "nei" þá skreppur "vinurinn" saman um 10 cm, en ef hann svarar "já" vex hann um 10 cm. Þetta er alveg þess virði að prófa.
Maðurinn vóg og mat stöðuna, og fann svo út að það væri þess virði að taka sénsinn og prófa þetta! Hann gekk út í skóginn, fann froskinn og spurði:
-Viltu giftast mér?
Nei, sagði froskurinn.
Maðurinn hljóp heim, fór úr buxunum og mældi - jú "vinurinn" hafði virkilega skroppið saman. Nú mældist hann einungis 40 cm.
Manninum fannst nú að "vinurinn" mætti alveg vera aðeins styttri, svo hann hljóp út í skóginn aftur, hitti froskinn og spurði:
- Viltu giftast mér?
Nei, sagði froskurinn.
Maðurinn hljóp aftur heim til að mæla og nú var "hann" einungis 30 cm langur. "20 cm" hugsaði maðurinn, "20 cm væri alveg fullkomið" og með það sama hljóp hann út í skóginn aftur, hitti froskinn og spurgði:
- Viltu giftast mér?
Kæri vinur, svaraði froskurinn - ertu heyrnarlaus eða hvað?? Ég hef sagt þetta áður og nú segi ég það aftur: NEI, NEI og aftur NEI....ÚBS :s
Eigið góðan og óðan dag!!!!!
BÆÍBILI
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Söngvakeppnin og blikkljós bæarins!!!
15.2.2007 | 05:35
Nú stittist í úrslitin um hvaða lag íslendingar velja í Evrovisonkeppnina og sýnist sitt hverjum eins og vera ber.Sjálfri finnst mér Eiríkur Hauksson,eilífðartöffari og rokkhundur langbestur bæði í söng og á sviði og ja verður maður ekki líka að veðja á að norðmenn splæsi 10-12 stigum á hann,því það er nefnilega svoldið svoleiðis í JÚRÓ.Mér finnst reyndar lögin í ár bara nokkuð góð og grípandi og yrði alveg sátt við; Heiðu töffara(ekki Idol)Jónsa,Friðrik Ómar,Matta. Annars finnst mér skemmtilegra eða meira spennandi að fylgast með stigagjöfini.....Samt hafa lögin farið skánandi undanfarin ár. http://www.ruv.is/heim/vefir/eurovision/1/
OOOOOG nú ætla ég að æsa mig yfir einu umferðaljósunum hér í bæ.Í eitt einasta skipti síðan þau komu upp hef ég getað keyrt beint yfir.Og ekki nóg með það að ég sé alltaf í bið á rauðu ljósi heldur hef ég oftar en ekki lent í því að það sé bíll á undan og bíll að koma frá hægri eða vinstri,GRÆNA ljósið kemur,bíllinn á undan kemst yfir og það er komið gult áður en maður nær að fara af bremsuni.Þetta eru nú meiri andskotans BLIKKLJÓSIN eða þá að ég sé svona sérlega seinheppin sem ég náttúrulega oft er útaf DOTTLU......Held samt að það sé ekki málið í þessu tilfelli.
Eigið svo G-óðan dag eins og sumir segja.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Aldrei fór ég austur
13.2.2007 | 23:17
Gigtin hafði betur og fór ég hvergi á Kárahnjúka.Svo Pálmason lagði af stað í gærdag suður.Eitthvað var ég orðin leið á að bíða eftir karlinum kl.1.í nótt og fór bara að sofa,,,,,,,rumska svo einhvern tíman við að hann stóð yfir mér við bælið vavalaust að segja hæ.,.,.en mér brá svo hrottalega að ég greip lampann sem er úr kopar og marmara og reyddi til höggs,.,.,.,.,skermirinn fauk af þegar ég hitt Pálmason í mjöðmina,.,.,Eitthvað fékk ég að heyra að ég væri stórhættuleg í svefni(svosem ekkert í fyrsta skipti) Ég milli draums og vöku með ofsókaræði fékk hláturskast og gat rétt stunið upp "æ fyrirgefðu Árni minn ég er vakandi" Heyrði þá sagt svooona frekar köldum.,.,"ertaðreynaðdrepamig" "Hanee" gróf mig í koddan grenjandi úr hlátri.,.,.heyrði kallinn flissa og segja að ég væri alltaf janf kolrugluð...
Linda tengdadóttir,Árni,ég og Gunna(dóttirin) veit hreynlega ekki hver er léttgeggjaðastur í þessari familíu.Kanski bara þessi tvö Jón Þór(sonurinn)og Beta systir,,,,,,,,,,,,,Eða bara tíkin .........
Á ekki von á að nein tilræði verði hér á heimilinu í nótt....
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Hver????????????
12.2.2007 | 02:53
Verður 7000asti gesturinn???????
HALLÓ HÉR KEM ÉG...
Alltaf smá púkalæti í kelluni
Nú vitið þið sem ekki vissuð hvernig ollasak lítur út.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 03:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
jjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjj
11.2.2007 | 21:59
Hef átt betri helgi,gigtin heimsótti mig á fimmtudaginn og virðist ætla að vera þaulsætin að þessu sinni,er þó nokkuð oft búin að vísa henni á dyr.Þar sem að þetta var mín vinnuhelgi þá sleppti ég því að taka meðulin,því ég verð alltaf svo slöpp og sljóg af þeim og fæ brjóstsviða..Í þannig ástandi er einfaldlega ekki hægt að vinna þá vinnu sem ég vinn,kvalirnar höfðu betur og ég varð að taka meðul,þ,a.l,engin vinna.Var sæmileg í gærkvöldi en afleit í dag.
En nóg um það,eða nei þetta er að spilla helling fyrir mér,ég ætlaði nefnilega að fljúga á Egilsstaði annað kvöld og skondrast upp í Kárahnjúka til karlsins míns, sem er að koma í frí,og keyra með honum heim á þriðjudaginn,því hann er að koma á jeppa sonarins sem var bilaður á hnjúknum.Nú er bara að krossa fingur!!!!!
Nú ætla ég að fara að horfa á helgarsportið og ath.hvort þeir sýni ekki frá leik Fram og Vals í íslandsmótinu í handbolta.....Lélegi þáttur,greyndu bara frá úrslitunum.Ég sem ætlaði að sjá hann Björvin Pál markmann Framara spila,er lengi búin að reyna að hitta á leiki Framara,tekst alltaf að missa af þeim.
En þetta er hann Björvin Páll og Dagmar kærastan hans.Drengurinn er nefnilega svona fóstur-ömmu-barn hjá mér.Flottur strákur!!
Áfram Bjöggi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)