Myndar hjón.

IMG_0035Mr.og Mrs.B )))

Heiðbjört litla systir og eiginmaður hennar Baldur Þórsson.Skínandi hamingjusöm á brúðkaupsdaginn.

Sorrý þetta með hrísgrjónin í rúminu ykkar,við systur réðum bara ekki við okkur.

Ps.við höfum nú oft verið verri en þetta.

 


Ja hvort ég þurfi að blogga?Var manni Komið á óvart? ÓJÁ

 174697146

Nýliðin dagur 29.apríl .

Það var margt að ske í dag og ber þar hæst óvænt brúðkaup.

Litla systir og Baldur voru að gifta sig.

Baldur átti afmæli.Fyrir nokkrum dögum spurði Heiðbjört mig hvort ég nennti að baka tertu fyrir Baldur,þau ættluðu að bjóða í hádegissnarl þegar hann ætti afmæli og honum langaði svo í svona Sollutertu.Og auðvita var það ekkert mál þó hann ætti nú ekkert fimm eða tug afmæli,við erum svo oft að koma saman systkynin og öll afmæli eru merkileg hjá okkur.  Þar  sem ég var með matargesti í gærkvöldi og líka vinnuhelgi hjá mér þá nennti ég ekki að fullgera tertuna,bað Pálmason í morgun að fletja fyrir mig marsípanið meðan ég væri í Herjólfi.

Ég gerði nú bara eitthvað í fljótheitum enda hafði ég lítin tíma, átti að vera mætt um það leiti sem ég var að skríða uppúr DALLINUM

þannig Heiðbjört og Baldur þið voruð heppin að ég skrifaði ekki á tertuna:ÞETTA ER ENGINN GALDUR BALDUR en það hafði ég hugsað mér að gera því á síðustu sem ég gerði fyrir þennan brúðguma dagsins stóð:þetta er enginn aldur Baldur.

Við Pálmason straujuðum í Hafnarfjörð með tertuna og aðra til í skottinu.Heiðbjört var ferlega fín þegar hún kom til dyra og ljósmyndari smellti af í gríða og erg.

Og ég alveg:Vá hvað þú ert flott er verið að gifta sig eða hvað???

Kom auga á prestinn....og vá þurfti ég að buna útúr mér...,,ný komin úr Dallinum berfætt með táfílu og svita" sleppti með kúk í bandi ..loks hætti ég að tala og hinir að ansa.....og athöfnin hófst í stofunni þeirra.

Ekki laust við tár á hvarmi.Þetta var yndislega sætt.

Falllegt óvænt brúðkaup í hádegisverðarboði.

Frábær dagur.Síðasta sem ég heyrði frá Frú Heiðbjörtu var að hún sendi eftirfarandi sms til okkar systra laust fyrir miðnætti:

Djö...fávitarnir ykkar!!

Þíð skuldið okkur helling af hrísgrjónum!!

Það var ekki gott að fá nokkur upp í boruna!!

Má bjóða ykkur í hrísgrjónagraut.

Mr:B og Mrs Heiðbjört

Ykkar skál.

En dagurinn var ekki alveg farsæll fyrir alla í þessari frábæru ætt.Anton Freyr Betuson hoppaði heldur mikið á trampoíni og er í þessum orðum  á leiðini heim af slisó með gifs upp að hné.

En ég á að vera farin að sofa fyrir löngu.


Rolling Stones-tónleikar á Spáni

Er þeta ekki rétt hjá þér Þórdís??????

                   Rolling20Stones                

Er ekki málið að drífa sig og

missa sig

á tónleikum með þessum snillingum?

EKKI SPURNING

     

Í samstarfi við nokkra aðila á Costa Blanca svæðinu er búið að skipuleggja heljarinnar tónleikaferð þann 30. júní næstkomandi á Rolling Stones á Spáni. Þeir Íslendingar sem staddir verða á Costa Blanca svæðinu eiga búna möguleika á að skella sér á þessa tónleika. Einnig eru laus sæti í flug til Alicante í kringum þessa dagsetningu og getum við aðstoðað með gistingu fyrir þá sem það vilja. Nánari upplýsingar um tónleikana og skipulagða hópferð frá Costa Blanca má sjá nánar hér.  

 

Reyndi fyrir 4-5 árum að hitta Jagger á Ísafirði.Þá var ég stödd á ættaróðalinu Eyri í Skötufirði og heyrðum við á "gufuni" að kallinn væri á Ísafirði og við systur héldum ekki vatni yfir að vera aðeins um klukkustundar akstur frá.Þannig að við rúlluðum upp andlitinu,heltum bjór í kallana og "skuttluðumst "á Ísafjörð.

En Jagger sá við mér og flúði út í Vigur eða yfir á Hesteyri.

En það er nú saga að segja frá þessari ferð og kemur hún kanski seinna.

Nú er málið að spara og komast til Spánar.........

 


Halló

Segið þið bara ekki allt gott?


MJÖG ATHYGLISVERT.

Þó fyrr hefði orðið.

Vonadi eru sveitarfélögin opin fyrir þessu.

mynd
Elísa R. Ingólfsdóttir

Fréttablaðið, 20. apr. 2007 09:51


Bætum skólastarfið í heild

Í þessari viku fer fram aðalfundur Félags íslenskra skólafélagsráðgjafa. Félagið er fagdeild innan Félagsráðgjafafélags Íslands og hefur það að markmiði að stuðla að kjörskilyrðum nemenda á hverjum tíma. Þessu markmiði hyggst félagið ná með því að efla faglega umræðu skólafélagsráðgjafa og styrkja stöðu þeirra innan skólakerfisins.

Nú þegar eru félagsráðgjafar starfandi í grunn- og framhaldskólum landsins. Þeir vinna á heildrænan hátt með nemendum, fjölskyldum, kennurum, stofnunum sveitarfélagsins og öðrum sem tengjast einstökum nemendum og skólastarfinu. Menntun félagsráðgjafa er fólgin í að greina vanda, veita ráðgjöf og upplýsingar um félagsleg samskipti og erfiðleika, vinna með samskipta- og tilfinningaörðugleika og samræma þjónustu innan og utan skólans.


 



mynd
Andrea Guðmundsdóttir
Markmið skólafélagsráðgjafa er að bæta skólastarfið í heild, skólagöngu nemenda og tilfinningalega og andlega velferð þeirra. Nánd skólafélagsráðgjafa við nemendur grunnskólans veitir möguleika á snemmtækri íhlutun gagnvart vandamálum nemandans og fjölskyldu hans. Samskiptavandi foreldra og barns, hjónaskilnaðir, veikindi, einelti, kvíði og depurð eru m.a. áhrifavaldar á líðan barna í skóla.

Skólafélagsráðgjafar eru lykilstarfsmenn skólans í barnaverndarmálum og vinna náið með félagsþjónustu sveitafélaganna við úrlausn þeirra. Skólafélagsráðgjafinn er mikilvægur tengill milli heimilis og skóla í nánu samstarfi við kennara barnsins.




mynd
Júlíana Jónsdóttir
Í samfélagsumræðunni síðustu mánuði hefur meðal annars verið rætt um Vinaleiðina, úrræði sem boðið er upp á í nokkrum skólum til að sinna þörf barna og unglinga fyrir stuðning og ráðgjöf í persónulegum málum. Í því sambandi viljum við vekja athygli á kunnáttu skólafélagsráðgjafans til að sinna þessum málaflokki. Einnig viljum við vekja athygli á löngum biðlistum í ýmis úrræði tengd börnum og unglingum, t.d. hjá skólasálfræðingum og á Barna- og unglingageðdeild. Þetta sýnir fram á þá miklu þörf sem til staðar er í íslensku skólakerfi fyrir aukna þjónustu eins og þjónustu skólafélagsráðgjafans.

Á næstu vikum mun Félag íslenskra skólafélagsráðgjafa, í tengslum við Félagsráðgjafafélag Íslands, senda öllum skólastjórum í grunn- og framhaldsskólum landsins ásamt formönnum fræðslunefnda sveitarfélaganna bréf þar sem gerð er grein fyrir sérstöðu skólafélagsráðgjafa og þeirra störfum.


Höfundar eru félagsráðgjafar.

Fyrst birt: 20. apr. 2007 06:00



 


jgjjjjghk

Mikil kátína er búin að einkenna nýliðin dag.

Fór í R-vík með Gunnu og Söru,þær voru á búðarrápi og að hitta Harra frænda og vin hans og þóttu ekki vinsælt að vera með mömmu gömlu svo ég var bara að einhverfast þarna í Smáralindinni.Skoðaði margt,ferlega er skemmtileg tíska núna,er alveg að fíla hana-10.kg og ég fer í hvað sem er.

Fór á eina kaffistaðinn þarna og fékk mér Svissmokka og horfði á fólkið æða fram og til baka OOG hafði gaman af.

Lítill strákpjakkur kom hlaupandi og lenti á hnésbótum föður síns sem lá við falli.Smile:$

Kona æddi áfram og rak tærnar í og hálf hvolfdist fram fyrir sigSmile:$

Útlendingur með úfið hár flækti puttana í hárinu þegar hann ætlaði að renna í gegnum þaðSmile:$

Ég var alveg á mörkunum að missa mig í hláturskast hvað eftir annað,það er gott að hlægja svona innan í sér ef maður passar að taka ekki kaffisopa í öflugustu hviðunumSmile:$

Svo var líka pirrað fólk,ánægt fólk,ungt og lífsglatt fólk,sprækir unglingarHeart

Börnin mín eru mér mjög hjartfólgin og ofarlega í huga mínum núna

ég elska þessi tvö óendanlega mikið.

Nýbúin að ná því að hún hafi fengið tölvu og Jón Þór mjög svo áhugasamur o g sara Lind fylgist með

Sara litla frænka er með þeim þarna.

Eigið góðan sunnudag og

BÆÍBILI


Meira um okkar "frábæra" heilbrigðiskerfi.

Ég get ekki orða bundist eftir að hafa séð þessa frétt í gærkvöldi

http://www.visir.is/article/20070420/FRETTIR01/70420082

Er þetta virkilega svona???

Hvern anskotan eru stjórnmálamenn að pípa nú rétt fyrir kosningar.

Ef einhver þeirra mindi biðja þjóðina afsökunar á hvernig komið er fyrir heilbrigðis og félagsmálakerfinu............og lofa úrbótum...þá mundi ég ja ég veit ekki,,, hugsanlega þora að kjósa þann aðila.

 

Ég er svo virkilega sammála frændanum.Að vera með sýnileg mein eins og beinbrot er eitthvað sem allir taka eftir og allir leita til læknis útaf og viðkomandi fær viðeigandi meðferð við af því það er áþreifanlegt.

Að ver andlega veikur er djöfullegt ástand sem engin gerir sér grein fyrir nema að hafa reynt það.

Að sitja á púðurtunnu allan sólarhringinn

að vera alltaf eins og á hálum ís

vita ekki hvort næsta skref sé öruggt

verð ég svona alla tíð

að vera haldin þvílíkri hræðslu við ástand sitt

næ ég að halda út daginn-nóttina

ég vil ekki vakna,ég get það ekki,ég vil bara sofa,þá gerist ekkert,en ég get ekki sofið.

Í annan tíma getur sjúklingurinn gert allt,

keypt hús á 2.kl.t.

Þrifið loftin,veggina,gluggana,teppaherinsað,þvegið gardínur og hengt út í 10.stig gaddi og brjáluðu roki.

Allt verður ekkert mál,þetta er bara lítið dæmi,

'EG ER AÐ TALA UM MIG. 

Svona var ég.

Ég hef unnið vel í sjálfri mér með aðstoð geðlæknis og lyfja og minni eigin skinsemi.

Þetta er engin leikur.

Maður þarf að kunna sín takmörk og lifa við það

að maður er sjúklingur.

Af þessari reynslu minni af andlegum sjúkdómi og að hægt sé að halda honum í skefjum með réttri hjálp og skinsemi

leifi ég mér að verða alveg argandi kolbrjáluð

þegar ég heyri fréttir af svona meðferð á andlega veikum sjúklingi.

Þetta er ekki bara skammarlegt

þetta er vanþekking og heimska stjórnvalda.

Svo er bara knús á línuna og eigið góðan laugardag.

BÆÍBILI.


SSSólin komim hærra á loft.

Ekki laust við að röddin sé rám í dag því ég lét mitt ekki eftir liggja að taka hraustlega undir söng Helga BJörns á tónleikum SSSólar í gærkvöldi.

Þetta ver náttla geðveikt(ESTRO)

Helgi eins og spastískur brjálæðingur á sviðinu með 10.manna hljómsveit á bak við sig.

Ollasak missti sig gjörsamlega þegar Björn Jörundur stökk inná sviðið og allt í einu hafði ég bara ekki nóg pláss.

Þvílík stemming allir dansandi og syngjandi.

Silvía Nótt tók eitt lag með Helga.Hún var ferlega flott.

Hinn eini einstaki uppáhalds minn KK tók líka lagið.

Helgi lét okkur lengi bíða eftir laginu Húsið og ég,svo lengi að ég var farin að halda að ég hafi verið svikin.

Þegar það loks kom ættlaði allt vitlaust að verða,hann söng bara smá part úr laginu fólkið í salnum söng og ætluðum við bara alls ekkert að hætta.

Mér finnst rigningin góóðð............................

 

STEMMARINN VÁ !!!!!!

Verð að minnast á hvað baksviðið var flott og látið fitta við hvert lag með skjávarpa.

Það var verið að taka tónleikana upp svo kanski verða þeir sýndir á enhverri stöðini og þá ætla ég að skikka dótturina til að horfa á til að sýna henni að svona var víst dansað í GAMLA DAGA.Henni finnst ég nefnilega stór skrítin þegar ég tek sporið hérna heima með ímyndaðan gítar eða nota annan fótinn á mér sem gítar og læt öllum illum látum.Veit að einhver ykkar kannast við svoleiðis tilburðiGrin

En sumarið er komið  svn' á það að vera.......................................... og megi það veita ykkur gleði.

BÆÍBILI.


Álpaðist inn á þetta og dró

27

6 stafir

Þú hefur vissulega lagt þig fram og unnið af alhug þegar litið er til fortíðar. Nú er komið að því að þú njótir erfiðisins.

Sigur og velferð eru einkunnarorðin hér því þú hefur sýnt þolinmæði í verki og hugsun og á sama tíma unnið heiðarlega fram að þessu. Viðurkenning fyrir vel unnin störf bíður þín.

Langanir þínar verða uppfylltar og góðar fréttir berast þér innan fárra daga.

© 2007 Spámaður - Ingunn ehf.

 


SSSÓL

Er ekki viðeigandi að kveðja veturinn með Ísfirðingnum

Helga Björns og hljómsveit hans

SSSÓL?

Við systur ætlum að skella okkur út að eta

og síðan á tónleika hjá þeim.

ÚJÉ,,,,,,,,,,, það verður villt trillt

kvöld framundan.

Annars dreymdi mig all svaðalega og vaknaði við eigin óhljóð

langt á undan klukkunni,

ekki laust við að smá hnútur sé að reyna að fá inngöngu

en ég er hörð á því að meina honum að

trufla mig.

Ég er meira en tilbúin að kveja þennan vetur

með bros á vör.

Veturinn kendi mér margt,sem sett hefur verið í reynslusekkinn

en úr honum þarf að kasta smá.

Í vetur eignaðist ég ykkur bloggvininaInLove

og já það skeði ýmislegt í vetur,gott og slæmt eftir því hvernig maður kýs að lýta á málin.

BÆÍBILI OG KNÚS Á LÍNUNA.

Það eru til englar
Það eru fleiri en tuttugu englar í heiminum.

Tíu sofa friðsamlega á skýjunum,
níu spila á hörpu og einn les núna þetta blogg.


Halló!!

síðasta tilraun...........gerði þeta öðruvísi en þá var þetta svo óskýrt að textinn sást ekki.
Þá er bara að skella inn þessari
og vita hvort það virkar 
sub_17869

 

 


Ég er löngu búin að uppgötva þetta

Ánægð að sjá þetta og mæli með eftir farandiSmile

Vísir, 06. apr. 2007 11:11


Borgar sig að blunda

Þið sem vitið ekkert betra en að blunda eilítið á daginn hafið fengið nýtt vopn í báráttunni fyrir réttindum dagsvæfra. Samkvæmt nýrri rannsókn ætti fólk að jafnaði að leggja sig þrisvar sinnum á viku yfir daginn, hálftíma í senn. Þetta á jafnt að auka afköst sem og gleði í vinnu. Og vinnuveitendur ættu að íhuga þetta alvarlega líka, því að talið er að síþreyta kosti bandarísk fyrirtæki eitt hundrað og fimmtíu milljarða á hverju einasta ári.

En já veit það er ekki á allra færi að koma þessu við

og svo

STÓRT KNÚS Á LÍNUNA


Vill einhver halda því fram að heilbrygðis og félagsmálakerfið séu í lagi?

Hvað segið þið þá um eftirfarandi.

Ég á dóttur sem þarf á sálfræðimeðferð að halda í hverri viku

Hún þarf lík nauðsinlega í tannréttingar

Sálfræðitíminn kostar 8000.kr

Að keyra fram og til baka Þorlálshöfn/Reykjavík/Þorlákshöfn

kostar 2000.kr

Þetta gerir 500.000.kr.á ári

og

ekki króna endurgreidd

þar sem sálfræðingar eru ekki á samning hjá tryggingastofnun

Ég er einfaldlega í þeirri að stöðu að þurfa að velja á milli sálarástands barnsins míns

eða bjarga tönnunum hennar

og þar með útlit

en framtennurnar ganga meira og meira fram

og eru að verða mjög áberandi lýti

sem aftur kemur niður á sálarástandi hennar

Tannréttingar kosta hvorki meira né minna í hennar tilfelli en

1.100.000.kr

og jújú fæ víst um 300.000.kr endurgreitt í einhverjum áföngum.

Ef heilbrygðismálin væru í lagi fengi stelpan mín aðstoð inni á BUGL og við þyrftum ekki að borga hálfa miljón á ári til að vinna í hennar kvíða.

Læt svo filgja einn í lokin áður en ég fer að skrifa alveg brjál....

Ekki fretar mús eins og hestur þótt rauf rifni :)

Eigið svo góða helgi.


Það var mikið!!!!!!!!!!!!!!!!!

Hef aldrei skilið afstöðu lánastofnana og ekki síður stjórnvaladla til fólks í greiðsluerfiðleikum.Lánastofnanir eru tilbúnar að skuldbreyta þannig að lánið/lánin komist í skil og kostar það sitt.En það breytir samt engu.

Lánastofnanir eru ekki tilbúnar með neina fyrirgreyðslu ef skuldari hefur lennt á skuldalista rauða/svarta listanum.Og þar af  leiðandi á skuldari sér enga viðreysnarvon.Sem bitnar svo ábyrgðarmanni.

það er mér gleðiefni að félagsmálaráðherra er að fatta raunveruleikan.

Vil samt taka fram að ég á í mjög góðu samneyti við bankan minn.


mbl.is Félagsmálaráðherra: Mikilvægt að tryggja rétt skuldara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef á mig er logið

SET 2,ELDRI FÆRSLUR HÉR VEGNA PÆLINGA UM VINSKAP .

                Gamla árið hvaddi ollasak með hvelli.Sá hvellur hefur valdið mér ýmsum heilabrotum um lífið og tilveruna,hvað mannfólkið er misjafnt að upplagi og misjafnar áherslur hvers og eins.Við erum jú eins misjöfn og við erum mörg,og ber að virða það,jafnt sem skoðanir annara þó manni finnist þær ekki kannski ekki alltaf réttar.Skoðanaskipti eru af því góða svo fremi að þau séu heiðarleg.En hversu langt getur fólk gengið,hvar er þessi hárfína lína fyrir rökfærslu,milli meiðinga,sannleika og liga.Hvernig fólk er það sem alltaf er tilbúið að trúa því versta og færa í stílinn!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! alveg sama um hvað ræðir,en þó sérstsklega ef það snertir það sjálft???

ER ÞAÐ FÓLKIÐ SEM ÞARF AÐ SKÍLA SJÁLFUM SÉR MEÐ ÞVÍ AÐ SVERTA AÐRA

Hversu lengi eða hvenær á maður að þegja yfir sannleika til að særa ekki vini sína og hvað á maður að láta langt yfir sig ganga sökum þessa.

Sjálf veit ég það ekki,

EN ÉG VEIT NÁKVÆMLEGA EINS OG ALLIR AÐRIR HVENÆR ER Á MIG LOGIÐ

SÁ SEM LÍGUR VEIT ÞAÐ LÍKA

ÞETTA VITUM VIÐ ÖLL.

Þröngsýnir hrokagikkir sem sjá ekkert nema svart og ja kannski hvítt verða  alltaf til.

Misskilningur verður alltaf til.

Heiðarleg manneskja leitar svara við vafasömum atriðum en býr þau ekki til og ber á borð fyrir aðra.

Ollasak er að komast í ham  þið vitið þegar á að krifja allt til mergjar en lætur staðar numið!!!

Bæíbili          

Nennti ekki að blogga en eins og Þórdís mín segir dagurinn verður eins góður og þú villt hafa hann Kissing  og eins þið hinar dúllusarnir mínir,(( hinar mínir)))))sem þekkið mig svo vel og lesið mig eins og  feitt leturKissing.Takk.Lilja systir mín sem er ekki bara systir,,Þú ert mín albesta vinkona!!!!!Takk fyrir samtalið í gærkvöldi og hjálpina við að finna sjálfa mig afturKissingÞað var gott að gríta og brjóta það sem brjóta þurfti.Gott að þú sannfærðir mig.Skapið varð mikið léttara.Þú sagðir við mig í fyrrradag sys,að hver fligi eins og hann væri fiðraður og ég sagði strax ,,að það mætti nú vængstifa suma" og hlógum við að þessu,þá var ég ekki búin að geta talað um ÞETTA sem ég ætla ekki að þegja um lengur.Í dag finnst mér ekki þurfa að vængstífa neinn því eins og þú segir þá flígur hver eins og hann er fiðraður...........lending veit ekki.........lengd veit ekki.......veit bara að illafiðruðum er hætt við brotlendingu og reyna endalaust að hefja sig til flugs EN ekkkkki á mínum vængjum PUNKTUR.

Ollasak sem nennti ekki að blogga er semsagt búnin að endurheimta sjálfa sig.Til í að taka ekki þegandi á móti hvaða viðbjóði sem er.Verst er þó að sama hvað ég segi þá bæti ég ekki aðrar manneskjur,það verður hver að sjá um sig OG NÚ SÉ ÉG UM MIG. og vinkonur mínar og vinir ég ætla að leggja mig til kl.17.Ráðast síðan á ísskápinn og henda úr honum )))  riksuga jólatréð í 10.skipti upp,svo verð ég heima eða  skrepp til einhverrar ykkar....veit ykkur langar að vita og mig langar að segja frá,,,en það verður ekki sett á prent 

                                 Eigið góðan dag og út með GÆRUNA

                                                           BÆÍBILI

Í dag 9. apríl.

Um þetta leiti sem þessar færslur eru skrifaðar var komið mjög illa fram við mig og mína fjölskyldu af fyrrverandi"kunningjum"

og mjög góðum vinunum

og

það var sárt.

Ég get ekki litið þetta fókl sömu augum í dag.

Mér þykir þó enn mjög vænt um þau,

hef heimsótt þau,reynt að spjalla um

ÞETTA

Ég hef gert mjög mikið fyrir þessa fjölskyldu og þótti öðrum alveg nóg um.

Ég hef verið sálusorgarinn.vinkonan sem alltaf var til staðar,trúnaðarvinur,sú sem endalaust gat bætt á sig,reyndi alltaf að peppa upp,gerði mjög margt sem aðrir eru ekki vanir að gera og gekk þar af leiðandi mjög nærri minni eigin fjölskyldu.

Ég get ekki fyrirgefið ÞETTA vegna þess að fólkið skilur ekki hvað það er búið að gera mér og mínum.

Við hittust stundum en það verður alderi samt ekki

fyrr en hver og einn er tilbúin að líta í eigin barm

og sjá sjálft sig og hina líka.

Ég hef verið að fara í gegnum sorg útaf þessu

og jah einn fjölskyldumeðlimur sagði getum við bara ekki gleimt þessu.


GLEÐILEGA PÁSKAHÁTÍÐ

image1

HVERSU TORTRYGGIN GETUR MAÐUR EKKI VERIÐ???????????

Í dag bönkuðu 2 ungir menn uppá hjá mér.

töluðu ensku,voru með penna og blað og bók.

spurðu hvort þeir mættu spyrja mig nokkura spurninga.

Ég sagði bara nei ég talaði ekki ensku

annar þeirra sagðist þá tala íslensku og ég fór nú bara að hlæja og spurði hvað viljið þið?

Þeir voru með gátlista um hvað mér fyndist um krossfestinguna,upprisuna og hvort ég héldi að Jesú mundi vilja koma aftur ef hann endurfæddist.

Að ræða þessi mál í dyragættini,við einhverja ja ekki eldri en 16 var bara ekki á dagskránni,en þeir voru ýtnir og vildu láta mig skrifa nafn,heimilisfang og netfang svo þeir gætu nú sennt mér einhverjar síður og dótarí.

'Eg varð tortryggnari en allt og í staðin fyrir að neita að skrifa

gaf ég upp seinna nafnið mitt

annað nafnið á pabba(hét 3 nöfnum)

átti heima á Hrauney 32,sem er ekki til.

olla@hotmail sem er nátla bull,

en svona er ég stundum.

Útaf dottlu.

2003-08-30-10b

Pálmason minn er núna búin að vera í 13 daga á Reyðarfirði og kemur ekki í frí fyrr en á miðvikudagskvöld.

Bít á jaxlinn og þykist njóta þess að vera grasekkja.

image0077

Gleðilega  páska og

BÆ Í BILI


Held það bara

Að ég slappi af yfir páskana

horfi á handbolta í beinni

sem er sko engin afslöppun þegar ég á í hlut

Ísland-Pólland í dag

bikar6

Bjögvin Páll er annar markvörður íslending

á mótinu.

Fóstur-haha-ömmu-spes-minn.

Og auðvitað verð ég kolbrjáluð allan leikinn.

En drengnum er ýmislegt til listsa lagt

bakaði t.d.þessa

og þessa

Fyrir ferminguna hennar Gunnu um daginn.

Áfram Ísland

Áram Bjöggi

bæíbil


Er það málið??????

Að hafa blá umferðaljós í Þorlákshönf?


Hvað????????????

er eiginlega í gangi á þessari síðu ??'byrtast bara 5.m´n. gamlar færslur.Skil ekkiW00t

Hvað er að þessu mbl.is bloggi í dag?????

Hjá öllum bloggvinum stendur nýtt.

Á minni síðu kemur upp 2.mánaða gamlar færslur og líka hjá Þórdísi.Hjá öðrum koma upp síðustu færslur og stendur nýtt hjá öllum og var ég glöð að sjá að hjá þeim sem hefur liðið svoldill tími milli blogga væru komnir aftur og æddi ég beint þangað,en nei kerfið er eitthvað að plata okkur allaveg mig.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband