Sjarmatöll og skessur

Já við fræga fólkið sko ÉG OG MAGNI OG WOODT ALLEN áttur afmæli í gær......!!! Takk Þórdís mín að hafa skálað fyrir mér í gær .arna í suðurhöfum........................................................................................................................................................

153059Hinn dæmigerði Bogmaður er athafnamaður sem þarf hreyfingu, líf og fjölbreytni. Honum er illa við vanastörf og verkefni sem ekki eru ögrandi. Hann fær leið á því sem hann kann og veldur of auðveldlega. Að sama skapi á hann erfitt með að sitja lengi kyrr á sama staðnum. Hann þarf svigrúm og frelsi. Allt það sem þrengir sjóndeildarhring hans, festir hann niður og hindrar hreyfingu orkar þvingandi á hann.

 

 

Þekkingarleit                              ,,Ollasak 47.ára"

Eitt sterkasta einkenni Bogmannsins er fróðleiksþorsti. Hann vill kynnast heiminum, þráir þekkingu og vill hafa yfirsýn yfir margvíslegustu málefni. Hann nýtur þess að ferðast, læra og fást við verkefni sem víkka sjóndeildarhring hans.


Eirðarleysi

Þrátt fyrir áhuga á þekkingu eru sumir Bogmenn lítið fyrir langskólanám og þá sérstaklega nám sem er einhæft og afmarkað. Þetta má ekki túlka á þann veg að öllum Bogmönnum leiðist skólaganga. Það er ekki rétt, því margir njóta þess að svala forvitni sinni í fjölbreyttu námi og taka slíkt fram yfir einhæf störf á vinnumarkaði.


Hreyfing og stórhugurHreyfing og stórhugurHreyfing og stórhugur

 . Hver svo sem áherslan er nákvæmlega þá er Bogmaðurinn oftast stórhuga og takmarkalítill í hugsun og gerðum.


Bjartsýni

Bogmaðurinn er að öllu jöfnu jákvæður, hress og bjartsýnn. Hann er þægilegur í umgengni og þykir skemmtilegur félagi. Hann er lítið gefinn fyrir að búa til vandamál og vill sjá og sér bjartari hliðar tilverunnar. Hann er því oft líflegur og hressilegur. Það er oft sagt um Bogmanninn að hann sé heppinn. Það er líklega vegna þess að hann er glaðlyndur og því finnst fólki gaman að gera honum greiða. Einnig fer hann víða, prófar margt og er opinn fyrir tækifærum. Hann þorir að breyta til og takast á við ný verkefni.


Fjölbreytni

Til að viðhalda lífsorku sinni og endurnýja hana þarf Bogmaðurinn að búa við fjölbreytta lífshætti. Hann þarf að skipta reglulega um umhverfi, ferðast og vera frjáls, eða þarf að minnsta kosti að hafa það á tilfinningunni að hann geti gengið út hvenær sem er. Höft og vanabinding leiða til þreytu, nýjungar skapa lífsgleði og auka kraft hans.

Þegar talað er um 'Bogmanninn' og Bogmann', er átt við þá sem fæddust þegar Sólin var í Bogmannsmerkinu. Þeir einstaklingar sem fæddust á þeim árstíma hafa 'hjartað' í þessu merki, eða grunneðlið og lífsorkuna.

Staða Tunglsins í merki segir til um tilfinningar, staða Merkúrs um hugsun, Venusar um ást og samskipti, Mars um framkvæmdir, Rísandi merkis um framkomu og staða Miðhimins um (þjóðfélags)markmið. Hver einstakur maður er í nokkrum stjörnumerkjum og þess vegna eru gerð stjörnukort, en ekki bara fjallað um stjörnumerkin.


Ástæðan fyrir því að tvö stjörnumerki geta byrjað og endað á sama degi, er sú að Sólin sem ákvarðar merkin, fer á milli merkja á mismunandi tímum frá degi til dags og ári til árs. Hún á því til að vera í tveimur merkjum sama daginn.

Hinn raunverulegi sólarhringur er 23 klst. og 56 mínútur, sem skýrir þessar færslur og er m.a. ástæða þess að við höfum hlaupár á 4. ára fresti. Ef þú ert í vafa um það í hvaða stjörnumerki þú eða ástvinur þinn er, þá getur þú gert stjörnukort: 




« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Bogamennirnir í mínu lífi eru dásamlegt fólk.  Fékkstu stjörnukort?  Oh, það var gaman að skála fyrir þér!  Væri til í að skála alla daga fyrir þér í kampavíni en þá væri maður sennilega kominn með leið á bubblunum .......... hehehe   Sæt mynd af þér ..... 

www.zordis.com, 2.12.2006 kl. 21:16

2 Smámynd: www.zordis.com

Bogamennirnir í mínu lífi eru dásamlegt fólk.  Fékkstu stjörnukort?  Oh, það var gaman að skála fyrir þér!  Væri til í að skála alla daga fyrir þér í kampavíni en þá væri maður sennilega kominn með leið á bubblunum .......... hehehe   Sæt mynd af þér ..... 

www.zordis.com, 2.12.2006 kl. 21:16

3 Smámynd: www.zordis.com

Dobble Trobble þessi Zordis í dag!

www.zordis.com, 2.12.2006 kl. 21:17

4 Smámynd: Solla Guðjóns

of mikið kampavín elskan

Solla Guðjóns, 2.12.2006 kl. 23:57

5 Smámynd: www.zordis.com

nei alls ekki of mikid.  Af sumu faer madur ekki nóg en zad verdur ad vidurkennast ad í zetta skipti zá er klaufinn Zordis ad verka, blá edrú!  Enn tími til ad baeta úr zví ... 

www.zordis.com, 3.12.2006 kl. 00:44

6 Smámynd: Elín Björk

Til hamingju með afmælið í fyrradag, vona þú hafir átt góðan dag!!
Knús**

Elín Björk, 3.12.2006 kl. 17:10

7 identicon

Til hamingju með afmælið elsku bestasta Sollan mín

Þú er langflottasta 47 ára kerlingin sem ég hef komist í tæri við - þú ert eins og 10 ára á myndinni litla krÚsÍdÚllan þín.

Kv.Lísa

lisa 4.12.2006 kl. 08:40

8 Smámynd: Solla Guðjóns

Takk stelpurnar mínar,sjálfar eru þið yndislegastar og bestar

og gaman gaman að sjá nafnið þitt aftur rúslan mín  hreinlega fær eitthvað til að lifna við í mér........................Ertu komin með tengingu aftur?

Stærsta KNÚS til ykkar allra.

Solla Guðjóns, 4.12.2006 kl. 14:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband