Verð að bitta þetta!!!

BRÉF FRÁ HR. TIPPI:
 Ég, herra Tippi, fer hér með fram á kauphækkun með meðfylgjandi rökstuðningi:
 
Starf mitt felst í miklu líkamlegu erfiði. Ég vinn oft á miklu
 dýpi.  Ég tek áhættuna af því að reka hausinn inn fyrst í öllum verkum sem ég geng  í. Ég fæ ekki frí um helgar eða á hátíðisdögum. Ég vinn við rakamettaðar  aðstæður.
Ég fæ ekki borgað fyrir yfirvinnu. Ég vinn á dimmum
vinnustað  með lélega loftræstingu. Ég vinn við mjög hátt hitastig.
Það kemur  fyrir að  ég er krafinn um að vinna í bakgarðinum sem mér finnst ekki þrifalegasti  staður í heimi. Ég er iðulega krafinn um vinnuframlag þótt allir sjái að ég  er verulega slappur. Mér er skipað að fara ítrekaðar ferðir inn á þennan dimma og raka vinnustað þótt allir viti að það endar alltaf með því að ég kasta upp.
 Starf mitt gerir mig berskjaldaðan gagnvart hættulegum sjúkdómum. 
 Virðingarfyllst: Hr. Tippi SVAR FRÁ STJÓRN:
Kæri Hr. Tippi.
Eftir að hafa metið beiðni þína og farið yfir þau rök sem þú leggur fram hefur stjórnin ákveðið að hafna beiðni þinni af eftirtöldum ástæðum:
Þú vinnur aldrei í 8 tíma samfellt. Þú fellur iðulega út af og
sofnar í vinnunni, jafnvel eftir mjög stuttar vinnulotur. Þú hlýðir ekki alltaf skipunum stjórnandans. Þú heldur þig ekki alltaf á þínum vinnustað og það hefur oft sést til þín við að heimsækja aðra vinnustaði. Þú tekur aldrei af skarið í  vinnunni, og þarft þá á fullmikilli handleiðslu að halda. Þú roðnar alltaf  þegar þú ert beðinn að vinna. Þú hefur jafnvel mætt til vinnu með ostaslettur á hálskraganum. Þú skilur frekar subbulega við vinnustaðinn þegar þinni vakt lýkur. Þú ferð ekki alltaf eftir öryggisreglum eins og  t.d. þeim að vera í réttum hlífðarfatnaði við vinnu. Það vita það allir að þú  munt láta af störfum löngu áður en þú verður 65 ára. Þú getur ekki unnið tvöfaldar vaktir.
Þú átt það til að yfirgefa vinnustaðinn áður en þú hefur lokið því verkefni sem fyrir þig var lagt.
Og eins og allt þetta sé ekki nóg, þá er því við að bæta að þú hefur þráfaldlega sect á sífelldu rápi inn og út af vinnustaðnum, berandi tvo mjög grunsamlega poka.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

oj oj oj .... litla greyið, alltaf vælandi!  Gangi honum betur næst!

www.zordis.com, 12.11.2006 kl. 17:57

2 identicon

Það er nú varla hægt að hafa svona "gaura" í vinnu , sem "standa" ekki einu sinni átta tímana......hehe.............ööösssssss !!!!!!!!!!! 

Kv Beta sys

Beta 12.11.2006 kl. 21:41

3 Smámynd: Solla Guðjóns

Aumingi með hor bara hah

Solla Guðjóns, 13.11.2006 kl. 00:31

4 Smámynd: www.zordis.com

8 tímar, nokkuð fín frammistaða, spurning með að verðlauna góðann starfsmann, tala nú ekki um ef yfirmaðurinn fær svona rað .... júnó!

www.zordis.com, 13.11.2006 kl. 18:03

5 Smámynd: Elín Björk

Ostaslettur á hálskraganum.......

Elín Björk, 13.11.2006 kl. 21:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband