Örg kona

ætti ekki að blogga.

Örg kona sem hefur engan

til að arga á.

Örg konan er örg

því fátt gengur á framlöppunum.

Hoppaði galvösk fram úr

í morgun.

Vakti krakkana....já fleirtala.

Því Betubörn eru hér hjá mér meðan

foreldrarnir spóka sig DK.

 

Kom ungviðunum í skólann.

Tók saman og tróð í uppþvottavélina.

Dútl og dund...

Tek eftir að uppþvottavélin

hjakkar í sama farinu og vill ekki stoppa.

Æði í bílskúrinn

flýg inn með verkfærakassann.

Allt leit út eins og maskínan hefði yfirfyllt sig.

Aftur í bílskúrinn  og sker bút af garðslöngunni

sýg upp vatn og auuuuuuujjjj.

en allt við það sama.

Byrja að skrúfa

já.

Rétt eftir kvöldmat ákvað ég að gefast upp

á maskínunni.

Læt renna í vaskinn

Ennn get ekki opnað bjévítans

maskínuræksnið

og

get ekki enn!!!!

Full af óhreinu leirtaui.

Dagurinn snérist um margt annað.

Neyðarástand í húsi sonarins.

(sem hefur náttla vit á því eins og karl faðir hans að vera sem lengst í burtu,eða á Reyðarfirði)

Ég spændi á Selfoss að kaupa einhverja vatnslása og

leigja höggbor.

Sem gekk nú ekki andskotalaust fyrir sig.

Var ekki með vísað á mér og þá neitaði afgreiðslu-kallinn

að láta mig fá borinn.

Töfrar mínir höfðu engin áhrif...

Þannig að Katla gaus

bað um að náð yrði í Agga verslunarstjóra

sem er góður vinur minn

nei

gaurinn hættur.

Katla seig og kreisti út úr sér

"Hvað heldur þú að ég sé að vilja með að æða hingað uppeftir og fá leigðan bor...staðgreiði hann bara...

Kallinn gafst upp sagist bara hafa verið að reyna að ná mér upp en benti jafnframt á stórt skilti sem á stóð að tæki væru ekki leigð nema gegn kortatryggingu.

Ég er svo grandalaus að mér datt ekki í hug eitt einasta augnablik að mér og öðrum væri ekki treyst.

Á morgun kemur nýr dagur,á morgun verð ég að fá rafvirkja,á morgun þeysi ég á Selfoss að skila þessum bor.

Ég er glöð þó ég hafi ekki náð að arga til Reyðarfjarðar.

Ég er lang lang glöðust yfir því að

á

ég

myndina

Rósir

RÓSIR

eftir Þórdísi.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Flott mynd... Til hamingju

Gunnar Helgi Eysteinsson, 19.10.2007 kl. 10:08

2 Smámynd: Vatnsberi Margrét

Skemmtilegur dagur eða þannig.

Myndin er æði

Vatnsberi Margrét, 19.10.2007 kl. 11:18

3 identicon

Aumingja maðurinn að lenda í þér. En myndin er flott. Sjáumst á morgun.

Heiðbjört 19.10.2007 kl. 15:22

4 Smámynd: Kristberg Snjólfsson

Humm góður endir flott mynd

Kristberg Snjólfsson, 19.10.2007 kl. 16:06

5 Smámynd: Ólafur fannberg

flottur endir á Kötlugosi

Ólafur fannberg, 19.10.2007 kl. 16:49

6 identicon

Þetta er æðisleg mynd  og æðislegur dagur heiri ég.. 

Maggý Jónsdóttir 19.10.2007 kl. 17:44

7 Smámynd: Ingvar

Úfffff !!!!!!!!! Maður er hálf miður sín eftir þennan lestur  

 Annars......kveðjukvitt !!

Ingvar, 19.10.2007 kl. 18:57

8 Smámynd: Kolla

Flott mynd. Ég vona að þetta reddist alt hjá þér á morgun :)

Kolla, 19.10.2007 kl. 20:01

9 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Hey, varst þú konan sem var á orginu úti á svölum, og komst í fréttirnar þegar löggan keyrði henni upp í Heiðmörk til  að garga út "gosorku"?  Bíð spennt eftir að heyra af örlögum uppþvottavélarinnar.  En er þetta ekki alveg týpískt þegar maður hefur gesti......þá bilar ALLT!

Sigríður Sigurðardóttir, 19.10.2007 kl. 21:01

10 Smámynd: Ingvar

Náðir þú að opna uppþvottavélina með höggbornum ????????????????

Ingvar, 19.10.2007 kl. 23:16

11 Smámynd: Svala Erlendsdóttir

Úff... einn af þessum dögum. Náðir þú að laga vélina? Hey, en svaka flott mynd

Svala Erlendsdóttir, 19.10.2007 kl. 23:53

12 Smámynd: Solla Guðjóns

Heiba honum var engin vorkun...þúst ég gýs misjafnlega og þarna var bara svona brosgos

Ingvar að þú skulir ekki hafa álfað þessu út úr þér fyrr....en það er búið að opna það gerðum við tvær jafnþrjóskar en ekki beint fagmannlegar

En uppþvottaburstinn verður notaður þar til ´Pálmason kemur heim........

Solla Guðjóns, 20.10.2007 kl. 01:04

13 identicon

Hey þarna er komin skýringin  heyrði nefnilega að það hefðu mælst einhverjar hræringar á jarðaskjálftamælunum hér á Selfossi í vikunni, en það var þá bara KötluSollugos

Ragnheiður Ástvaldsdóttir 20.10.2007 kl. 06:28

14 Smámynd: www.zordis.com

Hey ég gleymdi náttl að vera sammála þér með fuglinn og þetta. Meina þetta með börnin og yndisleik þeirra !

Er bara hér í tilhlökkunargírnum sko.

love love love

www.zordis.com, 22.10.2007 kl. 15:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband