Skildi þetta vera hannað með mig í huga......

veitti ekki af einum svona

http://mbl.is/mm/frettir/togt/frett.html?nid=1295777

Ungmennin mín stóðu mig af því á sunnudagskvöld að aka einstefnugötu á Selfossi...mikið grín gert af GÖMLU kreisí... bölvaðir ormarnir....hefði verið gott að vera á einum slíkum þá og snúa á liðiðGrin

Svo í morgun lét bíllinn eitthvað bjánalega þegar ég var að bakka út úr bílskúrnum...illur grunur læddist að mér...martröð flestra kvenna...sprungið...argggghhh....Pálmason því ertu ekki heima hjá þér kall??..hvernig heldurðu að þetta fari með neglurnar maður??

Katlan í kellunnni krældi á sér og fór mín hamförum eins og Korntopp myndi orða það...og skipti um dekk.

Pálmason var búin að vara mig við þessu dekki...sem hreinlega væri að spænast upp humm útaf DOTTLU...sem styður enn frekar að ég þarfnast svona farartækis.

BÆ Í BILI

null

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Solla Guðjóns

Bílar og kvenfólkhumm

Solla Guðjóns, 9.10.2007 kl. 15:10

2 Smámynd: Margrét M

því segirðu bílar og kvenfólk -- skil ekki   það ætti að vera eitt af verkefnum í ökuskóla að læra að skipta um dekk, það eru allt of margir sem kunna það ekki. en jú það getur skemmt neglurnar he he, sé ekki fyrir mé rað þú látir það á þig fá .

Margrét M, 9.10.2007 kl. 15:49

3 identicon

Hehe neglurnar. Þið ættuð að sjá Ollusöku þegar hún lætur snjóskaflana finna fyrir sér, þá er sko mín í essinu sínu. kveðja Beta sys

Beta sys 9.10.2007 kl. 16:40

4 Smámynd: Solla Guðjóns

Magga bara oggu hnit til Guðmundar fyrir að fara ekki að ræða konur og bíla

Solla Guðjóns, 9.10.2007 kl. 17:36

5 Smámynd: Solla Guðjóns

Umm já Beta djö...verður gaman á jeppaskrímslin ef ég finn skafla í vetur..úja.

Solla Guðjóns, 9.10.2007 kl. 17:39

6 Smámynd: Sigrún Friðriksdóttir

Hahah frábær bíll, sé þig alveg fyrir mér á þessum

Sigrún Friðriksdóttir, 9.10.2007 kl. 18:06

7 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Hmmmm, skyldum við geta fengið hópafslátt ef við pöntuðum nokkur svona farartæki nógu margar saman.  Veðja þú hafir verið flink á dekkinu, Solla.  Iss skítt með nokkrar neglur.  Verra þetta með bakkið.......

Sigríður Sigurðardóttir, 9.10.2007 kl. 19:43

8 Smámynd: Solla Guðjóns

Sigga sko það eltir mig einhver fja..óheppni í dag......dekkið sem ég setti undir var loftlaust þegar ég ætlaði út seinna í dag...endaði yfir hjá systir þinni...því ég eiðilagði tjakkinn líka...jöss. Nú vil ég fá svona svifbíl eða bara eitthvað ekki með dekkjum...

Solla Guðjóns, 9.10.2007 kl. 20:10

9 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Til hamingju með að hafa skipt sjálf um dekk. Það leika það sko ekki allar eftir þér.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 10.10.2007 kl. 14:04

10 Smámynd: www.zordis.com

Súper Sollan lætur ekki að sér hæða og æðir áfram í hvaða verki sem er ...

Er það stjarna, er það steinn eða SÚPER SOLLAN ...

Knússlur á þig elskling ... en hvað á ég að senda þér í pósti! Emilaðu dúlls!

www.zordis.com, 10.10.2007 kl. 17:02

11 Smámynd: Vatnsberi Margrét

Þú ert ekki lengi að redda hlutunum ef þarf ;)

Vatnsberi Margrét, 10.10.2007 kl. 17:06

12 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Til hamingju

Gunnar Helgi Eysteinsson, 10.10.2007 kl. 18:00

13 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Sollan mín, þú átt alla mína samúð.  Er svona ekta "ájts..æ, þar braut ég nögl og skar næstum af mér þumalinn-dekkjaskiptari"!  Vona að systir hafi getað reddað þér.  Hún er bara nokkuð snjöll í dekkjunum, ef út í það er farið.

Sigríður Sigurðardóttir, 10.10.2007 kl. 20:14

14 Smámynd: Solla Guðjóns

Sigga!! engar neglur brotnar..hafði vit á því að klippa þær áður...ennn systir þín lánaði mér tjakk.....því ja ég opinbera ekki hvað ég gerði

Solla Guðjóns, 10.10.2007 kl. 21:08

15 Smámynd: Aðalheiður Friðriksd. Jensen

Þú ert bara frábær súper kona  sá það þegar ég kom í heimsókn til þín í sumar , skreitir köku og bjóst til rósir og allt bara meðan var beðið eftir því .

Knús og klemm dúlla 

Aðalheiður Friðriksd. Jensen, 10.10.2007 kl. 21:16

16 Smámynd: Solla Guðjóns

Fer alveg að fara hjá mér Gaman að heyra í þér Dúfa......ja mikið að gera þann daginn...

Solla Guðjóns, 10.10.2007 kl. 21:32

17 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Flottur bíll, en ég vildi ekki aka honum á vegum landsins, stóru bílarnir myndu ekki einu sinni hægja á sér þegar þeir mættu mér, bara aka beint yfir mig

En ég var hér í minni vinnu í fleiri sumur á landrower með stórri kerru aftan í, ég gat bakkað út úr hvaða stæði sem var, og ég hef þurft að taka að mér að bakka fyrir karlpening sem ekki kann að bakka með kerru aftan í.

Og ég hef oft þurft að skipta um dekk.  Við getum það nefnilega alveg, en það er bara miklu auðveldara að "láta"  strákana gera það hehehehe.... leyfa þeim að leika hetjur og finna til sín, eins og við reyndar gerum í mörgu.  Það eru nefnilega ekki konur sem eru ljóskur, þó sumir haldi það endalaust.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.10.2007 kl. 10:58

18 Smámynd: Kolla

Maðurinn minn hefur skilning fyrir því að ég geti ekki gert svona hluti. Þess vegna erum við í félagi sem heitir NAF , en ég held að það sé svipað og FÍB. En þeir koma og skifta um dekk fyrir mig að kostnaðarlausu ef á þarf að halda. Bara snild

Knús 

Kolla, 11.10.2007 kl. 18:24

19 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

það er alveg ömurlegt þegar svona skeður !

bið að heilsa pálmasyni !

AlheimsLjós til þín 

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 12.10.2007 kl. 16:54

20 Smámynd: Heiða  Þórðar

Góðar kveðjur til þín ljúfust.

Heiða Þórðar, 14.10.2007 kl. 23:12

21 Smámynd: Ester Júlía

Þessi bíll er æðislegur!!!!!!  Oh hvað ég væri til í einn svona krúttbíl!  Þá á ég krútthund, krúttkött , krúttbörn og krúttbíl.  Jú og auðvitað krúttkarl líka .

Dugleg að skipta um dekk, það eru nefnilega ekki allar konur sem láta vaða í það sko!   

Knús og kossar til þín

Ester Júlía, 15.10.2007 kl. 14:25

22 Smámynd: Solla Guðjóns

Ég læt mig sko hafa það...ég fengi svona tilfinningu að ég væri ófrjáls ef ég kæmist ekki eitthvað útaf sprungnu dekki......og það er bara svo krútlegt að vera með sorgarrendur undir höndunum Ester...skondrast svo í búðina og ,,Ja ég var sko að skipta um dekk.......

Solla Guðjóns, 15.10.2007 kl. 16:43

23 Smámynd: Ólafur fannberg

hehehehe

Ólafur fannberg, 15.10.2007 kl. 16:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband