Í dag
20.7.2007 | 23:34
Vaknaði ég svo seint að ég man varla eftir öðru eins.
Í dag fór ég í bankann.
Þar hitti ég yndislega kk. persónu.
Ég sagði honum að ég ætti að kyssa hann.
Hann horði agndofa á mig og sagði "HA"
Ég sagði "já frá henni Dísu"
DÍSU??
"JÁ
í FÓTBOLTANUM"
"Ha hen henn jájájá blessunin"
Ég kyssti á puttan og sett'ann á hálsinn á honum.
Karlkrúttið ljómaði og sagði "Hún var seig á vellinum..já..mikið mikið svakalega var hún seig"
Veit að fáir munu átta sig á að ég sé að skrifa þetta en það gerir ekkert til.
Nú er ég að undirbúa mig að fara á ættarmót held samt að ég fari ekki af stað úr þessu fyrr en í fyrramálið.
Það þarf nátt'la að kyssa marga á morgun og segja "jújú ég hef það FÍNT sko...því til sönnunar fleigji ég Eyjadisknum í tækið og tek fjögur létt spor,
sest niður á næstu þúfu og syng sem aldrei fyrr.
Segi Gunnu eða bara þeim er næst mér stendur að gramsa í töskunni minni og gá hvort sé ekki breser...humm jú ég vilji rauðan sko
(ég á bara einn rauðan og hann verður líka það eina áfenga sem ég mun drekka þarna)
fyrir utan nátt'la rauðvínið og pasóað og strohið í heita kakóimu fyrir svefninn.
Ættarmót þetta eru afkomendur Nonna og Veigu,móðurömmu minnar og afa míns.Þau áttu 12 börn sem öll eru búin að marg-margfalda sig.
Ég var að fá fréttar af vettvangi.....fólk er óðum að tínast á svæðið....
Fékk tilfinningu fyrir að ég láti nægja að syngja og spjalla og KEYRI svo heim næstu nótt....
Í kvöld greip ég fiðrildi og mundi þá að ég er enn ekki búin að fá hjólið sem ég óskaði mér í barnatrúnni.
Eigið góðan laugardag.
Athugasemdir
Alltaf jafn gaman að kíkja á þig. Gleðigjafi á blogginu sem og annars staðar. Alltaf sama Sollan.
Góða ferð og góða skemmtun -og verður ekki eins og einn lítill steinn með á heimleiðinni.
FiðrildaknÚs
Lisa 21.7.2007 kl. 00:39
Ójú Lísan mín það verða allavega 2-3 steinar
Stundum er ég svo hissa hvað þú lest útúr mínum skrifumen samt ekkert skrítið.
Lövlöv
Solla Guðjóns, 21.7.2007 kl. 00:47
Lestrarnaemni ..... Skemmtu zér vel í fadmi aettarinnar! Alltaf svolítid gaman ad sjá breytt andlit og nýja einstaklinga!!!!!!
Komdu aftur til mín Dísa! Helgi er flottur ...... takk dotlan mín
www.zordis.com, 21.7.2007 kl. 08:32
"(ég á bara einn rauðan og hann verður líka það eina áfenga sem ég mun drekka þarna)
fyrir utan nátt'la rauðvínið og pasóað og strohið í heita kakóimu fyrir svefninn."
Híhíhíhíhí.... Þú ert svo mikið krútt!!! Knús og kossar
Ester Júlía, 21.7.2007 kl. 10:07
góða skemmtun. ég var að fá rosa flott hjól !
hef óskað þess lengi.
Ljós til þín
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 21.7.2007 kl. 11:00
Góða skemmtun Solla mín.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 21.7.2007 kl. 13:51
Góða skemmtun og helgi og og og.....
Heiða Þórðar, 22.7.2007 kl. 00:29
Hvað er KK persóna? Þegar maður segir KK í Svíþjóð, þá er það sama og knull-kompis... ef þú skilur hvað það þýðir
Gunnar Helgi Eysteinsson, 22.7.2007 kl. 23:45
HAH?? er ekki viss en hef sterkan grun sérstaklega ef kk.persóna er til staðar
Solla Guðjóns, 23.7.2007 kl. 00:25
Æðisleg mynd af þér sæta
Var ekki gaman?
Lísa 23.7.2007 kl. 01:13
Júhú allt í vinslu
Solla Guðjóns, 23.7.2007 kl. 01:24
alltag gaman að fara á ættar mót ( eða svollis)
Margrét M, 23.7.2007 kl. 14:09
Tilkynning til alla blogg-vini!
Ég ætla að vera smá hallærislegur og senda mína tillögu um betra blogg til vefstjóra blogg.is. því vill ég spyrja þig um að kíkja á þetta rugl mitt og segja þína skoðun með því að kjósa á vinstri dálk. Ef þú ert búinn að kjósa eða hefur engan áhuga á þessu… þá skil ég þig.
Gunnar Helgi Eysteinsson, 23.7.2007 kl. 17:40
Ég svaraði á hinni færslunni JÁ...ég er sérstaklega sammála með þetta að geta ekki séð færslur hjá öllum bloggvinum í stjórnborði og eins með að skuli alltaf standa nýtt þó ekki sé nýtt blogg.
Solla Guðjóns, 23.7.2007 kl. 18:33
Kurr kurr .......
www.zordis.com, 23.7.2007 kl. 19:26
Knúsíkrús frá Hafnarfirði
Elín Björk, 23.7.2007 kl. 23:14
Knús
Vatnsberi Margrét, 24.7.2007 kl. 12:21
Hæ dúlla og góða skemmtun á ættarmóti, takk fyrir allar kveðjurnar frá þér til mín
See U later
Sigrún Friðriksdóttir, 25.7.2007 kl. 11:52
Bráðum kemur annar laugardagur ........ laugardagur til lukku og segðu mér sögu, já segðu mér frá, hvað er bak við hurðina fram i forstofu? Knússlur og þreyttar tásssslur!
www.zordis.com, 25.7.2007 kl. 20:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.