HAHAHAHA

Bara fyndið

Drukkinn maður gengur inn á bar þar sem mótorhjólagengi heldur til, sest við barinn og pantar sjúss.

Hann lítur í kring um sig og sér þrjá mótorhjólatöffara sitjandi við borð.

Hann stendur upp, staulast að borðinu, hallar sér fram, horfist í augu við stærsta, illvígasta mótorhjólatöffarann
og segir: "Ég kom við hjá ömmu þinni í dag og ég sá hana á ganginum kviknakta. Maður minn, hún er stykki sem stingandi er í!"

Mótorhjólatöffarinn horfir á hann og segir ekki orð. Félagar hans eru undrandi, því hann er hörkunagli og er vanur, að efna til slagsmála út af litlu tilefni.

Sá fulli hallar sér yfir borðið aftur og segir: "Ég fékk það hjá ömmu þinni og hún er góð í rúminu, sú besta sem ég hef nokkur tíma prófað!"

Félagar mótorhjólatöffarans eru að verða alveg brjálaðir úr reiði, en mótorhjóla töffarinn segir ekki orð.

Sá fulli hallar sér yfir borðið einu sinni enn og segir, "Ég skal segja þér svolítið annað, drengur minn, ömmu þinni fannst það helvíti gott!"

Þá stendur mótorhjólatöffarinn upp, tekur um axlirnar á þeim fulla,

Horfist í augun á honum og segir...........

"Afi,....... Farðu heim, þú ert fullur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Friðriksdóttir

Ahahahahahahahah  ég hló mig í hel úps nei ekki alveg hehehe frábær brandari dúlla og takk fyrir öll sætu og góðu kommentin frá þér

Risaknús

Sigrún Friðriksdóttir, 2.4.2007 kl. 13:54

2 Smámynd: Margrét M

he he þessi er góður 

Margrét M, 2.4.2007 kl. 14:52

3 Smámynd: Kristberg Snjólfsson

Kristberg Snjólfsson, 2.4.2007 kl. 16:00

4 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Ég er enn hlæjandi.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 2.4.2007 kl. 19:37

5 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

ljós til þín

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 2.4.2007 kl. 20:21

6 Smámynd: Ester Júlía

AAAAAAAhahahahahahahaha........ég dey...hahahahaha

Ester Júlía, 2.4.2007 kl. 21:56

7 Smámynd: Ólafur fannberg

Ólafur fannberg, 3.4.2007 kl. 00:06

8 identicon

hahaahahahaha

Kristjana Engliráð Sigurðardóttir 3.4.2007 kl. 09:26

9 Smámynd: Sigrún Friðriksdóttir

Takk fyrir kveðjuna og knúsin dúlla það er sko alltaf hægt að stóla á orminn í þér

Risa knús og kossar

Sigrún Friðriksdóttir, 3.4.2007 kl. 21:45

10 Smámynd: Haukur Nikulásson

Haukur Nikulásson, 5.4.2007 kl. 01:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband