Einn til að létta lundina
26.9.2007 | 11:49
-----HRÓLFUR OG ERLA
Hrólfur og Erla voru vistmenn á geðsjúkrahúsi. Dag einn, er þau voru á
gangi við sundlaugina kastaði Hrólfur sér útí og sökk til botns. Erla
stakk sér útí laugina og bjargaði Hrólfi frá drukknun.
Þegar yfirlæknirinn frétti af björgunarafreki Erlu ákvað hann að
útskrifa hana af sjúkrahúsinu, þar sem hún væri greinilega búin að ná
snerpu og andlegu jafnvægi á ný.
Daginn eftir fór hann til fundar við Erlu til að boða henni fréttirnar
og sagði þá; " Erla mín, ég hef bæði góðar og slæmar fréttir að færa
þér! Góða fréttin er að ég ætla að útskrifa þig af spítalanum þar sem þú
hefur sýnt merki um bata, sem sýnir sig í því að þú bjargaðir honum
Hrólfi frá drukknun. Slæma fréttin er hins vegar sú að hann Hrólfur er
dáinn. Karlgreyið hengdi sig í beltinu sínu í gærkvöldi eftir að þú
hafðir bjargað honum.?
Þá sagði Erla; "Hrólfur hengdi sig ekki. Ég festi hann upp til þerris í
gærkvöldi. En hvenær má ég fara heim sagðirðu ??
Eigið góðan dag.
Athugasemdir
Þetta er hræðilega fyndið...
Gunnar Helgi Eysteinsson, 26.9.2007 kl. 11:54
góður
Vatnsberi Margrét, 26.9.2007 kl. 12:34
Greyið Hrólfur!
Ég las þennan í beinni fyrir Húna konung og við dilluðum hláturtaugum okkar!
www.zordis.com, 26.9.2007 kl. 14:39
Góður
Kristberg Snjólfsson, 26.9.2007 kl. 18:14
góður
Ólafur fannberg, 26.9.2007 kl. 18:16
Jórunn Sigurbergsdóttir , 26.9.2007 kl. 20:41
Ógisssslega fyndið
Heiða Þórðar, 28.9.2007 kl. 12:30
Þessi er svartur en ekki hægt annað en að hristast úr hlátri
Svala Erlendsdóttir, 28.9.2007 kl. 13:40
þetta var.... já ógeðslega fyndið..!!
xx
K
Kristjana Engliráð Sigurðardóttir 29.9.2007 kl. 08:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.