,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,

Jájá ég fékk uppreysn æru á fimmtudaginn.Æru sem ég sjálf hef aðallega verið að meiða og jújú svo sem margir aðrir.Þannig er,fyrir ykkur sem ekki vitið,að mætingar dótturinnar í skólan hafa verið stórt vandamál í gegnum tíðina.Það stórt að hvorki ég né hún höfum náð að yfirstíga það.GrátaÞað er ekki þannig að hún segi nei ég fer ekkert í skólan.Hún bókstaflega verður veik.Kannski um kvöldið þegar hún er að fara að sofa,kanski um miðja nótt oftast þó á morgnana,henni er flökurt og með höfuðverk og oftar en ekki ælir hún,jafnvel frammi í forstofu á leiðinni út.Þetta er búin að vera stór ráðgáta sem erfitt hefur verið að finna lausn á.

Ég segi ráðgáta því Gunna er frábær krakki,kát og skemmtileg,réttsýn og með háa siðferðisvitund,yndislega blíð og góð við alla þó hún standi svo sem á meininguni,hún er umvafin vinkonum og vinum,henni líður vel í skólanum þegar hún er þar.Ég veit hún er ekki fullkomin,hver er það.En þetta eru hennar stóru kostir.

Starfsfólk skólans sem hefur haft með hana að gera,skólasálfræðingurinn,tveir læknar,við foreldrarnir og bróðir hennar höfum öll lagst á eitt að koma þessu ástandi í réttan farveg,jafnvel bekkjarsystkyni hennar eru að hvetja hana,yndislegu þau.

Það er öllum ljóst sem inn í málunum eru að hún er haldin miklum kvíða,sem tengist ýmsu öðru líka en skólanum.Erfiðara hefur verið að finna lausn á honum,lyfjameðferð hefur ekki verið að skila tilætluðum árangri né sálfræingsviðtöl og önnur ráð.HissaSumir hafa gefið mér þau ráð að sparka í rassinn á henni og láta hana ekki komast upp með þetta,við þá vil ég segja ,,fariði sjálf með barnið ykkar ælandi og veikt í skólann og hvert sem er fyrir mér"Öskrandi

Ég fór í fyrsta tíma á fimmtudaginn  í meðferð sem G er að fara að byrja í í næstuviku.Í miðju spjalli fór ég að segja honum hversu ómöguleg ég væri,væri búin að ala þetta upp í henni og blablabla...Fræðingurinn rétti upp hendur og þaggaði niður í mér og sagði,,þú bjóst ekki til þennan kvíða,hún bjó ekki til þennan kvíða,það býr enginn til kvíða....HA? er þetta ekki mér að kenna,ekki henni,en af hverju??????.Fræðingurinn sagði,,kvíði ER KVÍÐI,við byrjum að vinna með dóttur þína á þriðjudaginn"Þrjú tonn samtals fuku af hjartanu og mínum ringlaða heila.Innst inni vissi ég samt að þetta ástand er engum um að kenna,það var bara svo gott að fá staðfestingu á þvíBrosandiKoss

P.S.Þórdís ég hef fulla trú á þér!Þó þú gætir ekki ráðið í fyrirsögn síðustu færsluHlæjandiHitti þig vonandi þegar þú kemur

EIGIÐ ÓÐA HELGI OG GÓÐA.KossTIL YKKAR.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

KVÍDI er hraedilegur og erfitt ad reyna ad stjórna honum! Gangi ykkur rosalega vel. Ég stefni á ad hitta vinahóp á Íslandi og vaeri til í gódan sopa med gódum konum. Dreymdi ad vid Lísa vaerum ad leita ad Margréti í Gardinum! Aha ....

En zegar gaettin er opnud zá eru líkurnar á breytingu og bata meiri! Er med ykkur í huga!

www.zordis.com, 2.9.2006 kl. 14:02

2 Smámynd: Vatnsberi Margrét

Það er alltaf gaman að fá uppreisn æru :) En kvíði getur verið erviður fjandi, sendi góða strauma á ykkur mæðgur

Vatnsberi Margrét, 3.9.2006 kl. 17:13

3 Smámynd: Elín Björk

Úff já kvíðinn getur skemmt æði margt! Gangi ykkur vel í þessari vinnu, ég hef grun um að hægt sé að ráða allavega einhverja bót á honum. Kveðja frá Spáni.

P.S. Var ekki Rockstar í nótt? -Hvernig fór eiginlega?

Elín Björk, 6.9.2006 kl. 15:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband