Það er alltaf gaman að halda upp á merk tímamót

Fermingin gekk eins og í sögu eins og lög gera ráð fyrir !

Þar sem einstakur hægagangur er á síðuni þá nenni ég ekki að setja myndir eða að blogga.

Vil fyrst og fremst þakka öllum sem hjálpuðu okkur :

Lilja yfirglúntra með öll sín hestöfl.

Linda mín sem allt í einu er búin aððí

Mamma mín ;ég geri bara þetta

Beta sys sendill töffari og trúður

Kata kellingin alltaf spærk jafnvel þó flensa hafi verið að skjóta hana í kaf

Þórunn sló hvergi af enda fékk hún oft bananatertu í æsku

Gudda gamla Bjalla var létt á löppini og dansaði salsa við uppþvottavélina og masseraði fram með fötin

Jón Þór að sjálfsögðu og Pálmason ótrulega drjúgir.

Daníel Haukur sáum söng

Þ.Víkingur spilaði undir á gítar

Atriðið var fyrirfram ákveðið

EEENNNNNNNN

af því þeir voru á staðnum

þá sko

fékk ég þá hugdettu að biðja þá að

skera kjötið.

Þessir gull falllegu glæsilegu drengir sögðu:

uhu og jájá

uhu varð að jái

og

ég sver það að þeir fullkomnuðu

falllega skreytt borðið.

Og síðast en ekki síst Jóna Björg mín

sem aðstoðaði Gunnu í stelpustússinu

keyrði hana í greiðslu og svona.

Svanlaug sem tók fermingarmyndirnar (sem ég á eftir að sjá.

Tengdó sem glerjaði upp veisluna

með glerílátum eftir

Gunnsu í Vík í Mýrdal.

Maddý og öðru eplaskurðarfólki.

Trúlega er ég að gleima einhverjum.

Þakka fyrir að eiga eins heilsteypta,heilbrigða og falllega dóttur og fermingar barnið er.

Þakka veðurguðunum að hafa látið sólina skína

eftir að hafa reynt að drekkja okkur á lei úr bílnum inn í kirkjuna.

Takk öllsömul fyrir að vera þið.

Ekki í fyrsta sinn sem Ollasak nennir ekki að bloggaGrin

Hey já umm takk fyrir að umbera pirring sem skaut upp kollininum í tíma og ótíma, kollurinn á mér einfaldlega þurfti á því að haldaWhistling


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Til hamingju með fermingarbarnið og vel heppnaða fermingarveislu.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 27.3.2007 kl. 20:35

2 Smámynd: Solla Guðjóns

Var að setja myndir í myndaalbúm undir fermingarundirbúningur

Solla Guðjóns, 27.3.2007 kl. 20:52

3 Smámynd: www.zordis.com

SSSsssssmússss á þig elsku Selvogs vinkona!  Til hamingju með sætu Gunnu og til hamingju með að vera þú!  Gaman að heyra að allt gekk vel .....

www.zordis.com, 27.3.2007 kl. 21:41

4 identicon

Takk fyrir mig. Ég borðaði á mig gat.

Flott fermingarbarn.

Flottir strákar þeir Daníel og Víkingur.

Kveðja Unnur

Unnur 27.3.2007 kl. 22:06

5 Smámynd: Ólafur fannberg

fermingarknús

Ólafur fannberg, 27.3.2007 kl. 22:20

6 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Kíki fljótt á myndirnar. Knús.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 27.3.2007 kl. 23:59

7 Smámynd: Vatnsberi Margrét

Til hamingju með skvísuna og takk fyrir okkur, æðislegur matur og veislan frábær

Vatnsberi Margrét, 28.3.2007 kl. 08:02

8 Smámynd: Margrét M

til hamingju með fermingarbarnið

Margrét M, 28.3.2007 kl. 10:49

9 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

til hamingju með barnið og þig.

ljós frá mér.

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 28.3.2007 kl. 14:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband