Ætlaði að segja það......
29.1.2009 | 22:55
Ég hringdi í Árna í gærdag frekar æst..
Hæ þaðerbúiðaðstelabílnum!!!!!!
HA??
Jáh hann er ekki í skúrnum....
Nú er hann þá ekki úti.......??
Árni!!!!! ég er að segja þér að það er búið að stela bílnum skliuriHA??
Núnú ? Hvar er Jón Þór ????
JónþÐÐ ????????.........ég fékk kast......geðveikt hláturskast....
Hver andskotinn er að þér ??
IHH hérna...... ég sendi Jón Þór með Gunnu í bæinn til tannréttingarþúveist Á BÍLNUM..........
Það er ekki oft sem veðrið hér í bæ leifir snjónum a sitja kyrrum.
Ég skrapp út fyrir með myndavélina í morgun..
Myndir teknar upp úr kl 8
Myndir teknar um ellefu leitið
Stína við hliðina var bar kát þó hún þyrfti að fjarlægja mikinn snjó af bílnum.
Séð út botnlangann
Trén í garðinum mínum eru svo há að það rétt sést í húsið
svo var farið bakvið á pallinn
Eigið svo albesta föstudag til þessa.
SWinnnng
Athugasemdir
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 30.1.2009 kl. 01:14
Solla mín...svona byrjaði þetta hjá Gaua frænda.....

......
flottar myndirnar þínar......enda búið að vera svona póstkortaveður undanfarið.....
góða helgi..
Fanney Björg Karlsdóttir, 30.1.2009 kl. 01:17
Ha? Hvað byrjaði hjá Gauja frænda.....

Solla Guðjóns, 30.1.2009 kl. 01:21
Hahahaha þú ert svo fyndin vinkona. Shit hvað ég hefði verið til í að vera fluga á vegg og verða vitni að því þegar þú fattar hvar bíllinn er. Eða nei........... hefði bara viljað vera þarna. Dýrka þig hjartað mitt og hlakka mikið til að taka rúnt og skoða pallinn hjá þér um leið og ég fær kaffi.
Lovjú tú píses sko
Tína, 30.1.2009 kl. 06:58
Svona kemur bara fyrir eina konu sem ég þekki! Þú ert nú alveg milljón.
Geggjaðar myndir og mér verður kaldara á tásunum að sjá snjódýrðina. Einn engil takk!!!
Síðasta myndina er æði!!
www.zordis.com, 30.1.2009 kl. 07:31
Hahahaha ég þekki svona bílatínslumál alltof vel hahahahaha
Ekkert smáflottar myndir Solla mín
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.1.2009 kl. 11:41
hahahah Nú hló ég eins og skessa!
Ferlega flottur snjórinn úti núna! Glampar allt og glitrar eins og ég búi í ævintýralandi
Hrönn Sigurðardóttir, 30.1.2009 kl. 12:47
Knús og kærleikur til þín.... :=)
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 30.1.2009 kl. 21:20
skemmtilegar myndir
Margrét M, 1.2.2009 kl. 09:57
he he --stela bílnum
Margrét M, 1.2.2009 kl. 09:59
Já Magga ég á það til að láta stjórnast af fyrstu hugdettu

Solla Guðjóns, 1.2.2009 kl. 10:08
hahahahahaha þú ert yndisleg skellibjalla
Fallegar myndirnar og sýna einmitt þetta yndislega fallega veður sem verið hefur hér undanfarna daga
Dísa Dóra, 1.2.2009 kl. 23:07
Mjög skemmtilegar myndir hjá þér - vetrardýrðin í sinni flottustu mynd. Það getur verið ótrúlega fallegt þó kuldinn sé allsráðandi - ekkert síður en að sumri.
Kisskiss skottan mín ..
Tiger, 2.2.2009 kl. 15:14
Hahaha! Solla krútt! ég kannast við svona bíladæmi ;)
Æðislegar myndir. Vá hvað veðrið er búið að leika um okkur :)
Lísa 2.2.2009 kl. 16:39
Knús og krúttkveðja í Höfnina, fallegar myndir.
Ásdís Sigurðardóttir, 3.2.2009 kl. 22:44
Flottar vetrarmyndir
Kunningjakona mín fór niður í bæ að versla á bílnum og gleymdi hvar hún lagði honum. Endaði með að það þurfti hjálp lögreglunnar að finna bílinn
Auður Proppé, 4.2.2009 kl. 16:39
Æðislegar myndir Solla mín.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 4.2.2009 kl. 20:25
Hrikalega illa stolinn bíll.......
...ertu búin að taka sjálfa þig á beinið fyrir að ræna svona bílnum frá sjálfri þér
. Tapaði sjálf vatnskönnu úti á sólpalli í fyrrasumar...bísnaðist lengi dags yfir óprúttnum þjófum og bófum í hverfinu
...og skellti mér svo í ísskápinn 4 tímum seinna og fékk mér vænan slurk af ísköldu vatni úr "stolinni" vatnskönnunni inni í ísskáp
: Er þetta svona "Þorlákshafnarminni-eitthvað", Solla?
Sigríður Sigurðardóttir, 5.2.2009 kl. 17:44
Flott mynd af múttu í snjó!
Sigríður Sigurðardóttir, 5.2.2009 kl. 17:45
Ég veit ekki Sigga.Einn mér kær rmbdist hvað hann gat að setja kaffikönnuna inn í ísskáp og sá úr Mýrdalnum
Já mamma þín var bara spræk þarna um morguninn
Solla Guðjóns, 5.2.2009 kl. 17:54
Kvitt og knús í kuldanum
Anna Ragna Alexandersdóttir, 6.2.2009 kl. 11:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.