Þetta gæti ekki verið sannara.......
22.6.2008 | 13:07
Það vita þeir sem þekkja mig vel
Bogmaður: Þú vilt rumpa hlutunum af. Þeir sem taka hlutina alvarlega fá þér því alltaf verkin í hendur. Líklega skilur þú ekki hversu erfitt er fyrir aðra að hugsa eins og þú.
Ég er í helgarfríi...Fór í frí laust eftir miðnætti á föstudagskvöl.Auðvitað hugðist ég sigra heiminn alla vega hluta af honum ásamt því að hvíla mig vel þessa tvo daga!!!
Hverjum sem datt það í hug að mála útidyrahurðina mína og allar hurðarnar utan dyra sem eru 5 talsins..GULAR....var sko þannig þegar við keyptum húsið.....Ég held að Heiðaskottanmín hafi ekkert verið hér á ferð.En allavega er þetta búið að fara óskaplega í taugarnar á mér og byrjaði ég einhvern tíman um daginn að gluða ógeðslegu uppleysingarefni á útihurðina innanverða.....þetta íllaþefjandi eitur stóð ekki undir væntingum mínum
Í gær skyldi þessu rumpað af......
Í gær varð ég að fara á Selfoss eftir meira glundri.....síðan var bara að gluða nógu miklu á ......jájá....datt í hug að bjóða í mat..grilla....en hennti í staðin í ofninn.....ég mátti jú ekki vera að því að grilla....Mér datt í hug að ég yrði að taka pínnku til....þar sem yrðu matargestir En fyrst var það hurðin....ég réðst á'ana með spaða og subbaaði allt út í þessu ógeði......sem varð að seinnitíma vandamáli því... matargestur var mættur.
Seinna um kvöldið réðst ég með juðara á hurðina......fannst það nú ekki virka nógu hratt....því fór ég út í bílskúr til Mr.Pálmasonar og spurði......
"Hvernig á maður eiginlega að nota juðara ?
" Ja þú finnur það".......
Hvað er eiginlega orðið að þessum kall?????
Hélt að hann stykki til og hjálpaði mér...................................
Hann er víst búin að sjá við mér.......
Nú er spurning að byrja aftur að juðast......fara blogghringinn........og ekki segja neinum.......setja í uppþvottavélina eftir gærkvöldið.......svo á ég eftir að ......og líka hit og svo það........og og og .......
Ég er fædd með þessum ósköpun.......
Þó að tilveran sé lyst
koddu
út
að dansa
tvist.
Athugasemdir
hahaha svona fylgir líka að vera hrútur - enda bæði merkin eldsmerki
Þú ert nú alveg yndisleg og ótrúlegur kraftur í þér. Vona að þú finnir líka tíma í hvíldina sem þú ætlaðir um helgina.
Knús á þig skvís
Dísa Dóra, 22.6.2008 kl. 16:34
Skal gert.
Magnús Paul Korntop, 22.6.2008 kl. 17:07
Ég skal alveg tvista við þig, þú ert frábær skjóðan mín, farðu þér hægt og hvíldu þig líka.
knús Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 22.6.2008 kl. 20:00
hehehe alltaf nærðu mér á flug........
Hrönn Sigurðardóttir, 22.6.2008 kl. 23:54
Við erum EINS! Ég er N'AKVÆMLEGA svona! Kallinn minn skilur EKKI að ég þurfi alltaf að ráðast á hlutina á hvaða tíma sem mér dettur í hug og hamast svo þar til það er búið. Við erum td. búin að rífa upp grasið í garðinum og ætlum að setja hellur í staðinn. Kallinn minn segir svo um daginn : það er ekkert víst að við klárum þetta fyrr en næsta sumar........og ég alveg WHAT!!! ER EKKI Í LAGI??? Sko þó ég þyrfti að búa til hellurnar sjálf, saga þær og alles þá myndi ég gera það einsömul frekar en að bíða þar til næsta sumars!
Þú átt þjáningasystur
Bogamaðurinn.
Ester Júlía, 23.6.2008 kl. 09:24
NÆSTA SUMUR ESTER!!!!!!!!! Það er nógu erfitt að bíða til morguns
Hrönn!! í guðanna bænum farðu ekki að apa neitt eftir mér....það bara bull "að hálfnað verk þá hafið er"
Knús á ykkur öll og tvistum af lyst
Solla Guðjóns, 23.6.2008 kl. 09:51
Var einmitt að spá um daginn þegar ég var heima hjá þér, og þú ekki heima, hvað væri eiginlega með útlitið á hurðinni hjá þér, núna veit ég Það verður líklegast allt orðið fínt og flott næst þegar ég kem, hvunær sem það nú verður, en þá ætla ég líka að prufa pottinn og þú verður þá kannski heima? ... Heyrumst!
Heiðbjört 23.6.2008 kl. 14:15
Já systir Heiðbjört..ég fer að verða meira heimavið og þá förum við sko í pottinn eftir að þú gengur um nýuppgerðar dyr
Solla Guðjóns, 23.6.2008 kl. 17:00
set ég tvistinn út og breyti í spaða
gott hjá þér að setja í ofninn grillkjöt er samtlíka gott
tala nú ekki um Humar !
er pálmason í fríi ?? sumarfríi ??
Sigrún, 23.6.2008 kl. 20:18
Ég er líka bogamaður og skil þig velknús og bestu kveðjur
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 23.6.2008 kl. 20:58
Nei Systa mín Pálmason fer í fyrramálið...en við og sporðdrekarnir okkar eigum sko eftir að tvista í sumar....
Solla Guðjóns, 23.6.2008 kl. 21:12
Haha, þú ert kella í krapi heyri ég!
En ert ekki sjálf í golfinu?
Magnús Geir Guðmundsson, 24.6.2008 kl. 01:33
sé þig fyrir mér
Vatnsberi Margrét, 24.6.2008 kl. 12:57
Það er nú eitthvað bogið við þig heillin .... ehehehheehheheheh
knús á þig kjéddling!
www.zordis.com, 24.6.2008 kl. 17:42
veit esskan.......
Solla Guðjóns, 25.6.2008 kl. 00:03
júðari he he
Margrét M, 25.6.2008 kl. 11:50
Já þú ert nú alltaf á fullu sýnist mér. Meiri dugnaðarforkurinn.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 25.6.2008 kl. 21:18
Það var svo OFUR OFUR gott að fá svona knús í morgunsárið eða var það kannski bara hádegissárið lol
Sigrún, 25.6.2008 kl. 21:43
Já elsklingurinn minn við ættum að geta farið að hittast á heimavelli...þínum eða mínum hvað úr hverju.Ég er að minnka við mig vinnuna.....sjáumst heyrumst alla vega...Kleina.!!
Solla Guðjóns, 25.6.2008 kl. 21:53
Glundur, gluð og juð, bara vitlaust að gera hjá minni. Hafðu það gott mín kæra.
Ásdís Sigurðardóttir, 26.6.2008 kl. 20:07
Haha ... þú ert alger nagli kona. Ég er nú svolítið svona líka - vil rumpa hlutunum af sem fyrst - en stundum er ég að rumpa sirka 3 til 4 verkefnum af í einu og stundum er maður bara heppinn að lenda bara ekki í heljar klandri með allt klabbið.
Knús á þig skottið mitt og reyndu að róa þig sko ... ;) Hafðu ljúfa nótt og góða helgi framundan.
Tiger, 27.6.2008 kl. 00:14
GÚGÚ ....
Og svo kom helgin, enn eina ferðina.
www.zordis.com, 27.6.2008 kl. 07:35
knús inn í helgina Elskuleg
Brynja skordal, 27.6.2008 kl. 09:21
hihi
knús og kvitt!!
Kristjana Engliráð Sigurðardóttir 27.6.2008 kl. 09:52
Hahaha bara hin eina sanna Solla í hnotskurn. Ég er ekki búin að gleyma þér í stuði með Guði úti í garði að tvista (oftast eftir miðnætti) þegar við vorum nágrannar í denn.
Lísa fyrrum nágranni 27.6.2008 kl. 11:09
http://amotisol.blog.is
Krútta 27.6.2008 kl. 11:22
LÍSA granna mín...þá sjald að ég hef komist út í garð í sumar þá verður mér alltaf hugsað til þín...svo sterkt að ég hef sagt ..djö langar mig til LÍsu....Norðurbyggðarnæturdrottningar ávallt ferskar eftir miðnættiÞurfum að ger'eitthvaðí'essu...
Takk Magni,Heimir og félagar....búin að hlusta lagið.......lofar góðu
Solla Guðjóns, 27.6.2008 kl. 12:49
ég þekki þetta !!!
það hjálpar bara ekki alltaf
Kærleikur til þín
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 27.6.2008 kl. 19:03
Svona er þetta bara Solla mín, maður þarf að gera allt í einu, munur eða karlarnir, þeir geta bara GERT EITT Í EINU ekki satt Knús á þig inn í daginn. P.S. ég reyndi að faðma fjörðinn en varð öll hundblaut
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.6.2008 kl. 12:59
Ja, nú fer kella að geta skellt hurðum, þá þær eru ekki lengur sólgular og pirrandi!
Innlitskvitt mín kæra, netið enn út úr kú hjá mér.
Sigríður Sigurðardóttir, 29.6.2008 kl. 16:01
Hehe.
Knús frá norge
Kolla, 30.6.2008 kl. 21:13
Heiða Þórðar, 1.7.2008 kl. 00:38
Elín Björk, 1.7.2008 kl. 11:14
SOLLA!.....SOLLA!.....SOLLA!.....Hvar ert eiginlega?? Er Árni kannski kominn í sumarfrí?????
Systir Heiðbjört 1.7.2008 kl. 14:33
Nei Hippla Árni er ekki komin í frí......ég er komin heim úr vinnu í dag.......og sjáðu til litla.....það eru tvær hliðar á hverri hurð
Solla Guðjóns, 1.7.2008 kl. 15:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.