Tvær heiðurskonur eiga
20.5.2008 | 00:38
afmæli í dag.
Önnur þeirra er Steina bloggvinkona okkar.
Mýrdælingur sem býr í danaveldi.
http://steina.blog.is/blog/steina/
Til hamingju með daginn elskan
Hin er svo G.Þóra Davíðs(Gudda gamla bjalla)
Talan hennar er flott.....
Ég var búin að skrifa heilmikið um hana,af nógu er víst að taka
En
eins og oft áður var eins og eitthvað kæmi mér til að ýta á rangan takka.Núna ýtti ég inn einhverjum á músinni
héðan í frá ætla ég að vista hvert einasta orð.
Þóra mín þú varst heppin þarna.
Ég gróf þessa upp af okkur og köllunum og Eddu heitinni.
Langt síðan ?????
En í staðin fyrir allt sem hvarf færð þú hérna all svaðalega endurminningu frá mér
Njóttu
Geðveikt alveg...
Þegar ég var að finna þetta lag heyrðist í gerpinu mínu...."á HVAÐÐÐ ert þú eiginlega að hlusta"
Potturinn okkar kom á pallinn á föstudaginn og er ég búin að ná að sulla í honum tvisvar og er ég algerlega sannfærð um að hann sé peningana virði.Ég átti gott samtal við gerpið í pottinum í kvöld,samtal sem ég hefði aldrei svo mikið sem hugsað til að nefna þegar ég var 15..Mér finnst mjög þægilegt hvað unglingar eru opnir í dag eða er það ég og aðrir foreldrar sem eru opnari en okkar?Ég held bæði..... betra.
Ég er mjög mikið að vinna þessa dagana en kíki á ykkur eftir bestu getu...sem mér sýnist verða lítil....hér var skilið eftir moldarhlass fyrir mig um helgina...þannig risa knús á línuna
og
TIL HAMINGJU STELPUR.
Athugasemdir
Til hamingju
Heiða Þórðar, 20.5.2008 kl. 00:43
Til hamingju með þessar svaka fínu afmælisstelpur! Þessi mynd er nottl. snilld verð ég að segja .... þvílík beibís!!
Pottur er góður og ætli það sé ekki sambland af því hvað börn og foreldrar mætast meir á miðri leið en áður, eða hvernig hægt er að orða það. Mínir foreldrar eru það ungir að sumt fannst mér óþægilegt að ræða en tímarnir eru skemmtilegir ef við bara njótum þeirrra!
Knús inn í daginn þinn vinnukona!
www.zordis.com, 20.5.2008 kl. 06:09
Þórdís myndin er tekin kvöldinu eftir að myndin sem ég sendi þér var tekin.Manni munaði ekkert um að skella sér á SLÚTT tvö kvöld í röð í þá daga
Solla Guðjóns, 20.5.2008 kl. 08:18
hahahahah hrikalega flottir strákarnir.......... Sjáðu buxurnar þeirra
Hrönn Sigurðardóttir, 20.5.2008 kl. 09:19
Já Hrönn þetta er manni í barnsmynni......Gunna sagði .....þeð er ekkert skrítið að þú dansir svona asnalega og fílir útvíðar buxur...
Solla Guðjóns, 20.5.2008 kl. 11:18
Vá það er komið að því - til hamingju með vinkonu okkar, Gudda er komin á Elló manstu- og les sennilega ekki blogg akkúrat núna en hún verðu að sjá og hlusta á þetta lag - af hverju langar mig til Eyja með þeirri gömlu allt í einu? Sé ykkur í kvöld.
Lilja ennþá bara 49 20.5.2008 kl. 11:48
Til hamingju með afmælið stelpur eigið glæsilegan dag.
Kveðjur Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 20.5.2008 kl. 12:04
Heyrist þið allar vera á hættulega hrífandi aldri.
Og sem ég hef alltaf sagt, konur eru fallegar...ALLAR!
Magnús Geir Guðmundsson, 20.5.2008 kl. 13:02
lilja já akkúrat.....eitt af því sem ég skrifaði VAR að hún ku vera flutt á ELLIHEIMILIÐÉg heyrði því líka fleygt að Jói lögga muni sækja hana heim í tilefni dagsins og keyra hana í hjólastól um plássið
Solla Guðjóns, 20.5.2008 kl. 14:32
þú ert frábær að vanda
Margrét M, 20.5.2008 kl. 15:52
Frábært myndband og til hamingju með afmælin Steina og Gudda.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 20.5.2008 kl. 17:35
Til hamingju með vinkonurnar - og heita pottinn þinn! Passaðu þig bara á að soðna ekki í kvekendinu...
Knús á þig ljúfan og eigðu æðislegan dag.
Tiger, 20.5.2008 kl. 18:29
Knús og kram
Vatnsberi Margrét, 20.5.2008 kl. 21:17
Við ætlum að hittast "nokkur" á föstudaginn - hefðirðu áhuga á að vera með?
Hrönn Sigurðardóttir, 21.5.2008 kl. 09:46
Auðvita vil ég vera með....fer samt eftir því kl.hvað?
Solla Guðjóns, 21.5.2008 kl. 10:29
sendu mér meil á hronns@nett.is þá færðu sko að vita ALLT!
Meira að segja hvort guð er með síma...
Hrönn Sigurðardóttir, 21.5.2008 kl. 11:12
Hrönn greinilega að skipuleggja eitthvert "Safaríkt samkvæmi"!?
En þú mín ágæta ert komin inn um dyr míns dýrlega kvennabúrs, samþykkt eftir grandskoðun, mál, hæð og þyngd á hreinu!
Magnús Geir Guðmundsson, 21.5.2008 kl. 15:55
Skyldi MGG eiga svona buxur eins og kyntröllin eru í á myndinni .... Zarf ad prjóna á Fjallid .......
Djö ad vera hérna megin vid haflínuna og föstudagurinn ad renna upp ....
Annars bara gód, samt búin ad kaupa mér kjól fyrir föstudaginn lovjú!
Senjora Ramon 21.5.2008 kl. 17:44
Senjora þú verðu með okkur í anda pjólan mín
Solla Guðjóns, 21.5.2008 kl. 22:21
Ooooo Bay City Rollers. Nostalgia!
Knús á þig.
Sigríður Sigurðardóttir, 21.5.2008 kl. 22:35
Neineinei, SEnjoran getur alveg gleymt slíkum pælingum, mín vopn eru ekki af efnis- eða ofbeldisheimi, en Star Wars var nú samt skemmtilegt bíó!
Magnús Geir Guðmundsson, 22.5.2008 kl. 01:34
Afsakið, ruglaðist aðeins, en maður verður nú stundum að bulla svolítið! En á nei ekki slíka flík heldur, því miður!
Magnús Geir Guðmundsson, 22.5.2008 kl. 01:39
Það er bara gott að rugla og bulla stundum....bæði betra
Solla Guðjóns, 22.5.2008 kl. 01:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.