Misjafn sauður í ekki svo mörgu fé.......................
28.10.2006 | 13:22
Margret mín er að lenda í óskemmtilegum aðstæðum núna(sjá mydogs).
Ég lennti í svipuðum aðstæðum fyrir svona 11-12.árum.Þannig var að ég var með vísa sem ég missti mig með og lenti í innheimtu hjá lögfræðingi.Mamma mín ábyrgðarmaður á tryggingarvíxlinum.Ég fór og gerði sátt um málið,fékk kvittanir í hvert skipti sem var greitt og að lokum fékk mamma kvittun fyrir fullnaðargreiðslu,hvernig sem á því stóð,en ekki ég.OK.málið dautt.2.árum seinna bankar gamall karl uppá hjá mér að færa mér stefnu sem var reyndar ekki á mínu nafni en minni kenitölu og mínu heimilisfangi.Ég hringdi í lögfræðinginn og missti mig þegar fullyrt var að ég skuldaði þetta ennþá,ja upphæðirnar pössuðu einu sinni ekki saman heldur.Mamma mín kom svo með mér til lögfræðingsins.Í ljós kom að gerðar höfðu verið 2.kröfur á mig útaf þessu visadæmi og tók það helvítis fræðinginn 2,ár að fatta það.En hvað veit ég.Ekki rukkun eða tilkynnig um ógreidda skuld eða neitt,BARA allt í einu stefna.Mamma mín var hörð hjá lögfræðins-fjandanum,fékk niðurfelldan innheymtu og löfræðikostnað........................HALLÓ.........VAR EKKI BÚIN,ÞETTA BYRTIST ÓVART.MÁLIÐ VAR SKO EKKI DAUTT ÞARNA
Sú gamla bað um að fá tryggingavíxilinn og vildu þau senda hann,en mamma vildi hann núna og eftir langa leit fékk hún hann.
En vá eftir einhvern tíma 1-1 1/2.ár fékk ég aftur stefnu útaf þessu.
Með víxilinn og kvittanirnar í poka mætti ég á tilsettum tíma hjá sýsla,og fórum við Karl Gauti yfir málið,Enginn lét sjá sig fyrir hönd stefnanda,svo Karl hringdi í lögfræðinginn og var það ansi hávært samtal.Karl Gauti færði eitthvað inní stóra skruddu,vélritaði,ljósritaði,notaði svo neongulan áherslupenna yfir atr.eins mætti ekki,krafan tilefnislaus,málinu vísað frá........
Þið ættuð að geyma allar kvittanir sem ekki eru greiddar í banka.
Maður veit aldrei nær Tyrkinn kemur.
BÆÍBILI
Athugasemdir
Það er töggur í kerlingunni í henni móður þinni! Mjög leiðinleg svona mál og erfitt að losan þótt maður sé búinn að gera allann pakkann og það á réttann hátt. vonum að Margréti takist að koma þessari rukkun fyrir kattarnef ......
www.zordis.com, 28.10.2006 kl. 14:44
Fúl svona mál, en gott að þetta leystist hjá mömmu.
Elín Björk, 29.10.2006 kl. 11:15
mamma þín er hörku gella ;)
Vatnsberi Margrét, 29.10.2006 kl. 18:48
Já, hún er sko hörkugella, búin að ala upp hörku nagla og eðal nælur!
Og síðan ekki söguna meir!
Allt náttla brjálað að gera þar sem Mr. Pálmason svífur yfir Eyjahrauninu.
www.zordis.com, 29.10.2006 kl. 21:06
Næsý pæsý endalok!
www.zordis.com, 30.10.2006 kl. 10:14
Vegna háværra kvartana í gærkvöldi ætla ég að kvitta hér með fyrir mig. Víst les ég bloggið þitt vænan mín græna, nenni bara ekki oft að kommenta :/ Takk fyrir gærkvöldið, við þurfum að gera þetta oftar! Velja samt veitingastað þar sem við getum verið vissar um að það sé til matur og drykkur! Heyrumst!
Kveðja, Heiðbjört
Heiðbjört 30.10.2006 kl. 10:33
Solla Guðjóns, 31.10.2006 kl. 00:19
HÆ Solla bolla Íguðanna bænum breyttu um lit og letur. Sjónin farin að gefa sig kveðja Gudda.
Gudda 31.10.2006 kl. 20:32
HÆ Solla bolla Íguðanna bænum breyttu um lit og letur. Sjónin farin að gefa sig kveðja Gudda.
Gudda 31.10.2006 kl. 20:32
Þóra mín,,,Mér finnst þetta flot núna Notaðu gleraugun þín en jú kannski að ég breyti.....
Solla Guðjóns, 1.11.2006 kl. 17:54
kanski annad blogg .......HA OLLASAK?
www.zordis.com, 1.11.2006 kl. 18:39
Er þetta aldurinn eða hvað??? Ég á mjög erfitt með að lesa þetta og ég er alltaf með gleraugun á nefinu.
kvðeja Unnur.
Unnur 1.11.2006 kl. 19:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.