Jæjaa
28.2.2008 | 09:57
Konan er (hress) og kát að vísu með eina kvefpestina enn
Í gærkvöldi og eitthvað fram á nótt kyngdi niður snjó........þannig að í morgun var farið á blússinu útúr bílskúrnum hálfan botnlangann eða svo..rölt svo til baka því bílskúrshurðaropnarinn/lokarinn dreif ekki þaðan sem ég var komin.
Rölti svo aftur í bílinn sneri við og lagði af stað sem leið lá út götuna.....en Pólverjarnir á horninu voru búnir að festa sig svo ég varð að stoppa og komst ekkert að stað aftur......fyrr en þessar elskur ýttu mér....
Ég hef alveg einstaklega gaman af svona vafasömu færi
Hann Gunnar bloggvinur Svíafari er búin að opna lista fyrir vinsæl blogg.
Þið finnið hann hér á síðunni undir skemmtileg blogg og þið ýtið á til að komast á síðuna og þar finnið þið skemmtileg blogg um allt og ekkert.......lífið og tilveruna og svo fr.v.Þar getið þið líka skráð ykkur á þennan lista.
Flott hjá þér Gunni.
Svo af því það er komin álíka mikill snjór og um daginn þá skelli ég inn nokkrum myndum síðan þá.
Allt tiltækt var notað
Trén mín snævaþakin við húsið mitt.
En bæ í bili.
Athugasemdir
yndisfagur hvítur og friðsæll morgunn.
Svala Erlendsdóttir, 28.2.2008 kl. 10:07
Æi ég vill fara að fá sólina er búinn að fá nóg af vetrinum
Kristberg Snjólfsson, 28.2.2008 kl. 10:33
Alltaf gaman að lenda í festum, er það ekki annars?
flottar myndir.
Kveðja Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 28.2.2008 kl. 12:37
Já það snjóaði alveg svakalega í gærkvöldi!
Við erum að plana bloggkjéddlingahitting - við stelpurnar hér á horninu. Viltu vera með? Ætlum að hittast á Kaffi Krús einhvern næstu daga. Láttu mig vita ef þú hefur áhuga
Hrönn Sigurðardóttir, 28.2.2008 kl. 12:43
Snjór og meiri snjór ... hefði viljað sjá þig taka botnlangann á fartinu !!!!
www.zordis.com, 28.2.2008 kl. 13:20
Bara komin heilmikill snjór hjá þér Solla mín, gaman að þessum myndum.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.2.2008 kl. 13:34
Klukkan fjögur nk. þriðjudag á Kaffi Krús! Vertu velkomin
Hrönn Sigurðardóttir, 28.2.2008 kl. 14:53
Hey já ég kem!!!.þakka þér fyrir
Solla Guðjóns, 28.2.2008 kl. 15:33
Ég sé þig fyrir mér koma á "blússinu" Maður er nú ekki að láta einhverja skafla stoppa sig, nema í þeim séu Pólverjar. En mér finnst greinilega ekki nóg um snjóinn í byggð, því ég ætla að skella mér á fjöll um helgina ásamt 49 öðrum kjells. Jebb bara konur. Þar værirðu góð sko. Sjáumst, kveðja Beta sys
Beta sys 28.2.2008 kl. 16:25
Já Beta systur vorar eru búnar spyrja hvort ég sé ekki að fara að skella mér með þér.....en ég held að það verði of mikið fyrir mig.......mér finnst nefnilega ekkert rosa gaman ef ég er ekki þokkalega á jafnsléttu..En gangi þér vel....veit þú fílar þetta......
Solla Guðjóns, 28.2.2008 kl. 18:13
Missti af fjörinu hjá þér í morgun,var sjálf í basli á horninu en sá engan pólverja.flottar myndir .kannast við svipinn á sumum.bestu kv.við á 17
arný 28.2.2008 kl. 18:55
Já Árný börnin á myndini muna vera börnin þín og eitthvað þeim tengt.......þau voru svo sæt í snjónum um daginn og leifðu mér sko alveg að taka myndir af sér....mér finnst snúllinn alger dúlla með babmintonspaðann
Knús yfirum.
Solla Guðjóns, 28.2.2008 kl. 19:15
Æðislegar myndir, alltaf gaman að lenda í ófærð
Ásdís Sigurðardóttir, 28.2.2008 kl. 21:03
Hlakka til að hitta þig í næstu viku
Ásdís Sigurðardóttir, 28.2.2008 kl. 21:06
Hey ert þú ein af Selfossgellunum??? Verður Radda líka???
Solla Guðjóns, 28.2.2008 kl. 21:23
Vá en snjórinn. Þetta er sko alvöru vetur.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 28.2.2008 kl. 22:55
VÁ það er eins og þú búir í útlöndum Hjá mér er komið vor og túlípanarnir farnir að spretta upp
Risa knús til þín frá mér dúlla
Sigrún Friðriksdóttir, 28.2.2008 kl. 23:44
Já hjá þér Sugrún er ég eiginlega þi útlöndum þó það sért þú sem ert í útlöndum.Það er skafrenningur akkúrat núna og fyrirséð vandræði í fyrramálið.Knús til Noregs.
Solla Guðjóns, 28.2.2008 kl. 23:54
Iss, hér er bara smá föl, miðað við ykkur. Verð samt að fara á blússi upp á bílaplan hjá mér, svo bíllinn festist ekki í innkeyrslunni! Gott að löggan er ekki að fylgjast með þessu aksturslagi.
Heyrðu er ekki einhver af mínu ættfólki á vetrarmyndunum hjá þér?
Láttu þér batna kvefið.
Sigríður Sigurðardóttir, 29.2.2008 kl. 19:04
Játs Sigga ég var í reykjavíkurhrepp í dag og þar er nú bara smá sýnishorn af snjó ef snjó skildi kalla .........ljótur og skítugur í allri umferðinni.
Þú munt vera móðursystir þessara barna.
Solla Guðjóns, 29.2.2008 kl. 22:00
Flottar myndir og takk fyrir auglýsinguna
Gunnar Helgi Eysteinsson, 1.3.2008 kl. 00:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.