Ég er ástfanginn......
27.2.2008 | 18:39
Það var ást við fyrstu sýn
Þó hann hafi veitts að mér og látið ófriðlega við okkar fyrstu kynni
þá er ég alltaf jafn hrifin.
Í gærkvöldi þegar ég kíkti til hans tók hann mér fagnandi og
hreinlega lagðist kylliflatur við fætur mér.
Í gærkvöldi sleikti hann á mér tærnar.
Hann tilbiður mig EÐA það hélt ég.
Tvær konur bættust í hópinn.
Þó hann hafi mótmælt komu þeirra kröftuglega
þá var hann farinn að daðra við aðra þeirra fljótlega
mjög áberandi.
Afbírðisemin vall upp í mér,ég sparkaði af mér klossanum
og breyttist í ballerínu á svipstundu.
Með tælandi hreifingu nálguðust berar tær mínar ásjónu hans.
Hann hnusaði fyrirlitlega og gekk sperrtur í burtu.
Churt !!!!!!!!!.
Þetta er reyndar ekki hann Churt minn en mjög líkur honum og sama kyn silky terrier
Hvernig er annað hægt en að falla fyrir svo falllegu dýri.
Athugasemdir
Jedú minn hvað hann er fallegur, ég hefði skítfallið fyrir honum
Ásdís Sigurðardóttir, 27.2.2008 kl. 18:40
Hva, ertu komin í voffana?????
Ertu að fá þér tásleikju
www.zordis.com, 27.2.2008 kl. 18:43
Nei Kolla og Nonni eiga hann ChurtAlger dúlla
Solla Guðjóns, 27.2.2008 kl. 18:51
Flottur hundur það verður ekki langt þangað til þú verður farin í hundana
Kristberg Snjólfsson, 27.2.2008 kl. 19:35
Já Krútti leiðin virðist liggja þangað.mig langar líka voða mikið í Eins og Bombu.En hefur hún eitthvað stækkað síðan ég sá hana.....nærri komð ár?
Solla Guðjóns, 27.2.2008 kl. 19:44
Sætur og silkimjúkur... en meira bindandi en barn... kemst ekki með hann á Spánarstrendur, ónei
Ég fæ mér súkkulaðibita - eða plötu með þér í kvöld Solla mín
Knús
Elín 27.2.2008 kl. 20:45
Krúttleg færsla.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.2.2008 kl. 22:28
Meiri daðrarinn
Svala Erlendsdóttir, 28.2.2008 kl. 08:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.