þarf maður ???
28.11.2007 | 12:03
alltaf að klára það sem maður byrjar á ???
Stundum ætti ég að láta hlutina eiga sig .....eða bara hætta.
Ég sem sé kláraði að eyðileggja tölvuna PUNKTUR.
Ég byrjaði á geymslunni og sá að ég hef ekki klárað að flytja ....
flutti samt fyrir nærri 3.árum í þetta hús.
Ég er ekki búin að klára geymsluna
því ég flutti mig yfir í bílskúrinn
og sá þá enn betur að ég er ekki búin að klára flytja.
Nú sit ég uppi með það að sjá eftir því sem ég gerði ekki strax.
Ég virðist geta gert flest það sem ég ættti ekki að gera.
Og allt nema það sem ég ætti að gera.
En ég fæ oft svo æðislega tilfinningu fyrir að nú skuli ég gera þetta eða hitt og helli mér í það.
Vandinn er að klára.
Herskár hugur minn segir mér "þú getur þetta víst"
En nú langar mig að hlaupa í öfuga átt.
Nú langar mig bara að faðma heiminn
Finna fegurð og fullkomnun.
Svífa um á bleiku skýi
og segja
"skítt með það"
Knús á línuna....
reyni að komast rúntinn....
Athugasemdir
Knús
Vatnsberi Margrét, 28.11.2007 kl. 12:48
Góð hugeleiðing. Það fer eftir havað maður ætlar að klára og summt er bertur ógert. Já að svífa á beliku skýi er líka nauðsynlegt með allri vinnunni.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 28.11.2007 kl. 12:52
Margrét M, 28.11.2007 kl. 13:26
Sko, kát kona byrjar auðvita á að gera 1000 svakalega mikilvæg atriði áður en hún byrjar að alvöru -og þá byrjar hún á öfugum enda -og að sjálfsögðu klárar hún á endanum... hvenær sem hann nú byrjar.
Klára? - Hún klárar hún ekki neitt - fer þetta ekki allt í hringi hvort eða er ...
Lísa 28.11.2007 kl. 17:02
Mér finst Lísa koma med góda skýringu ..... Hringavitleysa allt saman eda hvad?
Risa bílskúrs og geymslu kvedjur!
www.zordis.com, 28.11.2007 kl. 18:26
Byrja á endanum og enda á byrjuninni, er mitt mottó í tiltekt! Er eitthvað svo á móti því að gera alltaf eins og "á að gera"! Betra að gera þetta með mínu lagi, með dúndurmúsík í botni, aftur á bak og út á hlið. Þá er svo gaman að taka til! Nú svo eru það þá alltaf "skýin" sem hægt er að tylla sér á......nema mitt er kóngablátt með gylltu ívafi!
Sigríður Sigurðardóttir, 28.11.2007 kl. 18:44
Takk Guðmundur en Trausti mágur lét mig hafa skjá.....en allt ruglið sem ég gerði var fast í tölvunni og ekki mikið hægt að gera en það sem var hægt að gera er ég búin að gera......nefnilega stúta henni alveg....mágur skilur ekki þetta helvítis fikt á mér......hann segir að það hefði enginn og akkúrat enginn getað gert þetta nema ég.
Ég er að hugsa um ath hvort það er ekki einhvert tölvufyrirtæki tilbúið að ráða mig í vinnu við að stúta tölvum viðskiptavina.........
Jáhá stelpur við þekkjum þetta víst allar.....endar eða endar og borgar sig ekki að byrja
Solla Guðjóns, 28.11.2007 kl. 19:58
ég hef markmið
næ því
ég finn annað markmið !
það reyni ég
AlheimsLjós til þín
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 28.11.2007 kl. 20:59
Jæja krússlan mín, ertu tölvustútari .... lol
www.zordis.com, 28.11.2007 kl. 22:40
Knús. Veistu það Solla mín. Þetta reddast!
Lísa 28.11.2007 kl. 23:08
Heheheh þið eruð æði
Solla Guðjóns, 29.11.2007 kl. 08:13
Knús á þig Ollasak mín. Og þetta er svo flott færsla um að maður á að ljúka við það sem maður byrjar á. Annars hangir það bara yfir manni þangað til því er lokið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.11.2007 kl. 09:04
segi bara knús
Ólafur fannberg, 29.11.2007 kl. 09:16
Gunnar Helgi Eysteinsson, 29.11.2007 kl. 19:28
Þegar svona er - er best að loka bara dyrunum á geymslunni... og skúrnum og láta eins og þetta sé ekki til.... þar til þú verður reddí í næstu törn
KNÚS
Elín 29.11.2007 kl. 22:36
Hey, áttu afmæli á laugardaginn???? Hvað á að gera í tilefninu?
Elín 29.11.2007 kl. 22:37
Veit ekki Elín en ef ég verð ekki á einhverju flandri þá verður heitt á könnunni.........og kalt í ísskápnum.
Solla Guðjóns, 29.11.2007 kl. 23:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.