VÁ nú er ég bara að byrja. Það er skondið,ég hef verið að biðja Gunnuu að gera svona síðu fyrir mig síðan fyrir jól,en fór svo bara að fikta mig dálítið áfram og viti menn, eins og þið eflaust vitið, þá var þetta ekkert mál. Málið er kannski að ég veit hreint ekki hvað ég á að skrifa,en samt: Tveir síðustu sólarhringar eru búnir að vera ansi viðburðarríkir hjá mér og skemmtilegir.Á föstudaginn fékk ég S.O.S.frá Lilju systir,og auðvitað jújú ,ég bara redda þessu.Málið var að hún var að fara með fólkið í vinnunni hjá henni í óvissuferð á laugardagsmorguninn í Krísuvík,Selvog og Stokkseyri með viðkomu hér í bæ.Hún var búin að fá Jóa Davíðs(bróðir Þóru Davíða) sem gait,hann er alveg frábær,þau voru búin að fara og fela landa í einhverjum helli ,búa til hrafnshreiður og sitthvað fleira....Nema hvað hún með alla sína skipulagshæfileika gleimdi að liðið þyrfti að fá að borða.S.O.S-ið hljómaði eitthvað á þessa leið,, djö.nú er ég í djúpum..getur þú gert kjötsúpu fyrir svona 20 karla,þ.e.a.s.ef við komumst einhvers staðar inn til að borða". Ég strauaði í búðina og fékk ALLT í kjötsúpu,fór til Betu og fékk stóra pottin,borðstofustólana hennar,djúpu diskana og skeiðarnar.Smá hreppaflutningar. En þar sem þetta var óvissuferð frá a-ö þá vildi Lilja náttúrulega koma Jóa á óvart og bað okkur stelpurnar (mig,Vigdísi og Þóru)að klæða okkur upp á,sem þíðir hjá okkur, hárkollur og mikinn varalit + eitthvað skondið að vera í.Sem sagt á föstudagskvöldið bjó ég til kjötsúpu í tveim 10ltr.pottum.Í hádeginu á laugardaginn mætir Þóra hjá mér með hinn ótrúlegasta búnað.Allt í einu erum við fallnar á tíma,náum í Viggu og Röggu sem keirði okkur upp á sand að DOLOSINUM,þar sem við biðum eftir rútunni í grenjandi slagveðri.Loks kom rútan ½ tíma á eftir áætlun,ég upp með pilsið og út með löppina.Við í rútuna og upphófts nú mikið fjör og þokkalega íktur gálugangur hjá okkur stöllum sem gerði... vá lukku....skemmtilegast var að sjá Jóa alveg orðlausan en það hef ég aldrei upplifað fyrr...Jæja GÁLAN ég sem var á leiðinni heim úr ÞÓRSKAFFI....bauð öllum þessum körlum og 4 konum í partí heim til mín....en þar beið þeirra bara kjötsúpa.Þetta var rosa gaman..Liðið hélt svo á Stokkseyri um 15.30...Og hey já koma sér í annað dress og skella sér í fertugs afmæli uppá Kjalararnes ..en höfuðverkur af verstu gerð .....verkjapillur....höfuðverkur..fór ekki í afmælið.Fór samt í Hafnarfjörð og náði í Gunnu og Natalíu. Sunnudagur: vakna með hálsbólgu og kvef ...en varð að skella mér í ömmuhlutverkið,bara gaman.Lilja og Vigga mæta svo hér uppúr kaffi glærar í gegn eftir afmælið......hér var komin ró og friður um kvöldmatarleitið og nú þarf sko að skúra.EHEHE VISSI EKKI HVAÐ ÉG ÆTTI AÐ SKRIFA. |
Athugasemdir
Svo er náttúrulega hægt að fara í dagbókina og skoða bullið sem sagt var í byrjun bloggferilsins
Solla Guðjóns, 3.3.2007 kl. 03:39
Solla min. Kvitt fyrir þetta. gaman að sjá fyrsta bloggið.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 3.3.2007 kl. 11:31
Kvitt og eigðu góða helgi dúlla knús og klemm
Aðalheiður Friðriksd. Jensen, 3.3.2007 kl. 12:16
Ahahaha skemmtilegt blogg
Knús og klemm frá mér
Sigrún Friðriksdóttir, 3.3.2007 kl. 16:23
Ollasak rakkaripak
Og hvad á svo ad gera í kvöld?
www.zordis.com, 3.3.2007 kl. 20:56
Bara lónlíast og svoll
Solla Guðjóns, 3.3.2007 kl. 21:18
Gaman að rifja upp:)
Vatnsberi Margrét, 4.3.2007 kl. 13:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.