Oftast er þetta spurning um athygli.

Það eru takmörk fyrir öllu.Ég á mjög gott með að skilja fólk og skil að það eru 2 hliðar á hverju máli.Jafnvel 3.Og sú 4.að lyginni meðtaldri.

Það er auðvelt að halda friðinn þegar maður skilur þarfir,væntingar,hæfileika og takmark fólks.

Einnig hvað það getur verið dæmalaust takmarkað og sér ekki út fyrir ramma síns sjálfs.En ég á mjög bágt með að skilja svoleiðis fólk.Kannski er það ég sem er svona takmöruð þrátt fyrir allt.

En lygar og getgátur get ég engan vegið liðið.Þá er ég ekki að tala um svona smá hvíta lygi.

En hvar eru mörkin milli hvíts og svarts.....sumir halda sig við annað hvort.

Grátt er það líklega og grátt er ekki gott.

Eitt ættu þó allir að átta sig á AÐ SÁ SEM LÝGUR VEIT ÞAÐ.SÁ SEM ER LOGIÐ UPP Á VEIT ÞAÐ LÍKA.SÁ SEM ER SÖGÐ LYGIN VEIT ÞAÐ ÞVÍ MIÐUR EKKI AÐ ÞETTA ER LYGI OG DÆMIR AÐ SJÁLFSÖGÐU ÚT FRÁ ÞVÍ.

Ég er að vona að einhver lygari álpist inn á síðuna.

ATT000405Hættum að ljúga !!!!!!

Ég virka örugglega í vondu skapi með þessari færslu en svo er ekki.Er eiginlega á fortíðarflippi

og sæl minninga um sveitaböll og þetta lag.

 

Þegar ég settist við tölvuna ætlaði ég að fara að sýna ykkur hvað ég er mikill skógarhöggsmaður.

En hiitt poppaði einhvern vegin upp.

Ein tvær skógarhöggsmyndir samt

guffi og eitthvað 038

guffi og eitthvað 040

Ég þurfti að nota stiga svo sko var ákafinn svo mikill að ég

klippti í sundur snúruna á hekkklippunumATT1192408014

Vitið þið um betri afsökun?

ATT119240704


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

eeeeeeeeeelska þetta lag!! Vildi að þú hefðir kíkt á ballið - við hefðum getað tekið "léttan" snúning

Þú ert frábær

Hrönn Sigurðardóttir, 12.5.2008 kl. 15:07

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

...ó - ég gleymdi mér finnst alveg ferlega gaman að ljúga..... bara ekki svona lygum

Finnst þú ennþá frábær

Hrönn Sigurðardóttir, 12.5.2008 kl. 15:08

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Þess vegna á maður aldrei að dæma neinn fyrr en maður hefur sjálfur hitt viðkomandi og getur gefið sér sína eigin mynd af fólki......

Erfitt samt en ef allir reyndu.......... 

Hrönn Sigurðardóttir, 12.5.2008 kl. 15:10

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

og nú er ég hætt

Hrönn Sigurðardóttir, 12.5.2008 kl. 15:10

5 Smámynd: Solla Guðjóns

Mér finnst líka gaman af svona prakkara lygi  sem engan skaðar.....er ég ekki frábær

Solla Guðjóns, 12.5.2008 kl. 15:17

6 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Við erum öll lygarar...

Gunnar Helgi Eysteinsson, 12.5.2008 kl. 16:07

7 Smámynd: Solla Guðjóns

Já segðu Gunni

Solla Guðjóns, 12.5.2008 kl. 16:34

8 Smámynd: Kristberg Snjólfsson

Ertu að segja alveg satt að þú klipptir þetta ?

Kristberg Snjólfsson, 12.5.2008 kl. 17:23

9 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Yndisleg færsla og lagið, mæ god, fór bara á fortíðarflipp, takk fyrir þessa fjörlegu færslu, þrátt fyrir lygina, góð áminning, lygin bankar alltaf á þótt síðar verði.  Knús til þín elskuleg.

Ásdís Sigurðardóttir, 12.5.2008 kl. 17:40

10 Smámynd: Solla Guðjóns

Já Krútti ég klippti bæði trén og snúruna í sundur.....var meira að segja að vanda mig alveg svakalega mikið að klippa hana ekki.Smá neistaflug og rafmagnið fór af húsinu og allt

Já Ásdís hún hún dinglar þegar minnst varir.

Solla Guðjóns, 12.5.2008 kl. 17:47

11 Smámynd: www.zordis.com

Snillingur!  Grímsævintýri eru víst uppspuni frá upphafi til enda ....  Ertu með eitthvað gott í "lyga"pottinum?  Eða er það slæmt!

Jæja dúlla, það var nú ýmsu logið uppá kjéddlingu í gamla daga og það var leiðinlegt fyrst og svo varð mér skítsama.  Þeir sem vilja hella sér og hrella alla með lygasögum eiga bara bágt.

knús á þig dúlla!

www.zordis.com, 12.5.2008 kl. 18:34

12 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Æ, hvað þú ert dugleg elskan, "lagið flott", en lygar þoli ég ekki og þá meina ég meintar skaðlegar lygar, og það getur verið dýrkeypt að gefa fólki tækifæri, er búið er að vara mann við, sumir eru bara þannig að ekki er hægt að þekkja þá því miður.
                          Knús til þín Solla mín
                                 Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 12.5.2008 kl. 18:38

13 Smámynd: Solla Guðjóns

Það er hætt við því Milla mín.

Þórdís í lygapottinum kraumar eitthvað bévítans bull

Solla Guðjóns, 12.5.2008 kl. 21:35

14 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Dugleg mín, heheheh hitt poppaði upp, það er rosalega mikils virði að reyna að halda sig við sannleikann.   Ég þoli heldur ekki lygi, og lygamerði.  Give me five

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.5.2008 kl. 22:37

15 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Þetta með hvítu lýgina, það getur jafnvel gert einhverjum gott en annars þoli ég ekki lygar og dylgur.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 13.5.2008 kl. 01:47

16 Smámynd: Solla Guðjóns

Þið hafið lög að mæla og Gesil hérna fæðu þína

Solla Guðjóns, 13.5.2008 kl. 09:10

17 Smámynd: Dísa Dóra

Ég hét því fyrir nokkuð mörgum árum að ég ætlaði ekki að ljúga framar - hét þessu eftir að ég ákvað að koma út úr skápnum með hvernig mínu sambandi við minn x hafði verið háttað.  Laug mig oft á tíðum bláa til að leyna því ástandi - já stundum er maður furðulegur

Knús til þín flotti hekkklippari (kannast við það að klippt sé í sundur snúar á slíku tæki)

Dísa Dóra, 13.5.2008 kl. 15:28

18 Smámynd: Margrét M

sko ef ég hefði ekki nennt að klippa meira þá hefði ég bara slökkt á vélinni

Margrét M, 14.5.2008 kl. 08:32

19 Smámynd: Svala Erlendsdóttir

hehe. snúran í sundur og rafmagnið af húsinu

Svala Erlendsdóttir, 14.5.2008 kl. 08:43

20 Smámynd: Solla Guðjóns

Hvað gerir ekki örvæntingar full kona Magga Nein nú er ég að ljúga

Solla Guðjóns, 14.5.2008 kl. 08:59

21 Smámynd: www.zordis.com

www.zordis.com, 14.5.2008 kl. 09:13

22 identicon

Maður ætlast nú eiginlega til þess að þú klippir snúruna í sundur, þú ert nú einu sinni þú   

Heiðbjört 14.5.2008 kl. 11:34

23 Smámynd: Solla Guðjóns

JÁ SYSTIR

Solla Guðjóns, 14.5.2008 kl. 21:01

24 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Klipptir sundur snúruna á hehehe.... hekk-klippunum.....hehehe.  Bara snilld....ef þú ert ekki að LJÚGA.  Þú verður að kenna múttu þetta.  Þolir ekki að klippa hekk....er frábær afsökun.

  Knús á þig.

Sigríður Sigurðardóttir, 14.5.2008 kl. 23:19

25 Smámynd: Vatnsberi Margrét

Þér líkt að ráðast í verkið með krafti og aðeins meir ;)

Knús og kossar

Vatnsberi Margrét, 15.5.2008 kl. 17:37

26 Smámynd: Tiger

  Hahaha .. ég gabba fólk á hverjum degi og í hverju bloggi og hverri athugasemd. Elska að gabba fólk - en hata lygi.

Knús á þig ljúfan góða og eigðu ljúft kvöld.

Tiger, 15.5.2008 kl. 18:53

27 Smámynd: Gunnar Páll Gunnarsson

Ég lýg alltaf. Lýg ég?

Gunni Palli kokkur 

Gunnar Páll Gunnarsson, 15.5.2008 kl. 20:55

28 Smámynd: Solla Guðjóns

Hummm kokksi allavega núna

Solla Guðjóns, 15.5.2008 kl. 23:33

29 identicon

fann allt í einu rosaleg afyrir aldrinum - þetta lag er svo gamalt - minnir mig á ákveðið ball í Hvolnum og ekki orð um það meir -

Lilja systir 17.5.2008 kl. 00:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband