Vitið er ekki meira en Guð gaf þeim .....
20.4.2009 | 17:58
var pabbi minn heitinn vanur að segja þegar fólk var að fara með fleipur(fleipur á nú tíama máli gæti útlagst sem ljótur kjaftagangur um málefni sem fólk hefur ekki hundsvit á og litla vitneskju um og býr þar af leiðandi til allskyns bull og róg í kringum það,bætir í og giskar á,út frá sínum innri manni ) Oftast hef ég látið allt bull og blaður sem vind um eyru þjóta og hugsað þessi orða hans pabba míns.Því ég veit nákvæmlega hvenær á mig er logið (sá sem það gerir veit það líka og þarf bara að díla við sína samvisku)Ég furða mig samt ávallt á því af hverju fólk hefur bara ekki samband og spyr um hlutina áður en það byrjar að þvaðra og bulla um þá (ég geri það oft....viðurkenni að það er stundum vandræðalegt en ég veit þó hvernig málið snýr og hef orð viðkomandi fyrir því og málið er dautt,ef marka má viðkomandi).Mér finnst það einfaldlega hreinlegast.
Þetta er orðinn langur inngangur hjá mér svo nú sný ég mér að efninu 
Það er þessi rætni kjaftagangur sem grasserar í næstu húsum og víðar í pleysinu um Gunnu dóttur mína og hennar skólagöngu.
Um þessa dekurrófu sem allt fær og allt má OG ÞARF EKKI AÐ MÆTA Í SKÓLA EF HÚN SEGIST FINNA TIL Í LITLA PUTTA.
Ég veit hver rótin að þessum kjaftagangi er.
Nú ætla ég að leiða ykkur í sannleikann um hennar skólagöngu og... svo getið þið skammast ykkar ......eða ekki.
DYSLEXIA !!!
veit einhver hvað það er ??
Dyslexia er lesblinda. Lesblindan er afleiðing ákveðinnar tegundar hugsunar og ákveðinna viðbragða við ringltilfinningu og ráðþroti. Það er algengur misskilningur að hún felist einungis í stafa- og orðavíxlun.
Skynvilla sem gerir allan lestur og skrift að algjörri martröð.
(tekið af Lesblinda-Lesblinda.is)
Hér á eftir koma helstu einkenni þeirra sem eru með Dyslexiu.
Ég geri ath.semd við það sem á við Gunnu með rauðu.
Um það bil 10 af eftirfarandi einkennum má sjá í fari flestra lesblindra. Einkennin getaverið breytileg frá degi til dags og mínútu til mínútu. Traustasta einkenni lesblindra er óstöðugleikinn. x
Almennt
- Virðist skýr, mjög greindur og vel máli farinn en slakari í lestri, skrift og stafsetningu en jafnaldrar almennt.
- Já....
- Stimplaður latur, vitlaus, kærulaus, óþroskaður, barnalegur, leggur ekki nógu hart að sér eða með hegðunarvandamál.
- Ekki stimpluð vitlaus,óþroskuð,barnaleg eða með hegðunarvandamál .....en allt hitt
- Er ekki ,,nógu langt á eftir” eða ,,nógu slakur” til að fá aðstoð í skóla.
- Hún hefur fengið mikla og góða aðstoð í gegnum árin..og samband milli mín og skóla verið mjög gott .
- Er með háa greindarvísitölu en útkoma á bóklegum prófum er léleg. Útkoma á munnlegum prófum er betri en á skriflegum prófum.
- Jebb
- Telur sig heimskan, og hefur lélegt sjálfsálit. Felur eða hylmir yfir veikleika sína með snjöllum aðferðum; kemst auðveldlega í tilfinningalegt ójafnvægi út af lestri eða prófi í skólanum.
- Jahá
- Býr yfir miklum hæfileikum í listum, leiklist , tónlist, íþróttum, meðferð véla, frásagnarlist, sölumennsku, viðskiptum, hönnun, byggingarlist og verkfræði.
- Virðist detta út eða gleyma sér oft í dagdraumum; týnist auðveldlega eða missir tímaskyn.
- Margt af þessu á vel við hana
- Á erfitt með að halda athyglinni; virðist of- eða vanvirkur (dagdreyminn).
- Jújú
- Lærir best með því að framkvæma, sjá, gera tilraunir, athuga, skoða og með sjónrænum áreitum.
- Já
Sjónskynjun, lestur og stafsetning
- Kvartar yfir svima, höfuðverk eða magaverk meðan verið er að lesa. ÓJÁ
- Bókstafir, tölur, orð, raðir eða munnlegar útskýringar valda ruglingi hjá viðkomandi.
- Heldur betur
- Endurtekur, ruglast á, bætir við, sleppir úr, víxlar stöfum, orðum og tölustöfum í lestri.
- JÁ JÁ já
- Kvartar yfir að finnast eða sjá stafi og texta hreyfast meðan á lestri og ritun stendur.
- jÁ
- Virðist eiga við sjónræn vandamál að stríða þó svo að augnlæknir finni ekkert að augunum og sjóninni.
- Mjög athugull eða vantar dýptar- og jaðarskyn.
- Les og endurles með litlum árangri varðandi lesskilning.
- jEBB
- Stafsetur samkvæmt hljóðaaðferð. Stafsetning mjög misjöfn.
Heyrn og mál
- Hefur mjög góða (of mikla) heyrn; heyrir hluti sem ekki hafa verið sagðir eða sem aðrir hafa ekki heyrt; öll hljóð trufla viðkomandi.
- hehe já
- Á erfitt með að koma hugsunum sínum í orð; talar í ókláruðum setningum; hikar; stamar undir álagi; mismælir sig þegar notuð eru löng orð eða víxlar setningarhlutum, orðum og atkvæðum þegar hann er að tala.
- Já það er alveg að koma fyrir
Ritun og hreyfifærni
- Á í erfiðleikum með ritun eða að skrifa eftir upplestri; blýantsgrip óvenjulegt, rithönd misjöfn eða ólæsileg.
- Klunnalegur, léleg samhæfing, lélegur í bolta- eða hópíþróttum; á í erfiðleikum með fín- og/eða grófhreyfingar; bíl-, sjó- eða flugveikur.
- Getur verið jafnhentur og ruglast oft á hægri/vinstri, yfir/undir.
- Sumt af þessu á við
Stærðfræði og tímastjórnun
- Á erfitt með að segja til um tímasetningu, stjórna tímanum, læra hluti þurfa að vera í ákveðinni röð (vikudagana, mánuði, margföldunartöfluna o.fl.), eða að vera stundvís.
- Já næstum allt þetta
- Notar puttana eða önnur brögð við útreikninga í stærðfræði; veit svörin við dæmunum en getur ekki sýnt útreikning á blaði.
- Jebb
- Kann að telja en á erfitt með að telja hluti og eiga við peninga.
- Getur reiknað talnadæmi en á erfitt með orðadæmi; á í erfiðleikum með algebru og flóknari stærðfræði.
- Það eru orðadæmin sem eru verst.
Minni og hugsun
- Man mjög vel það sem hann hefur upplifað (langtímaminni), staði og andlit.
- Já
- Man illa atburðaröð, staðreyndir og atriði/upplýsingar sem viðkomandi hefur
- ekki upplifað.
- Hugsar aðallega í myndum og tilfinningum, ekki með hljóðum eða orðum (lítið innra tal).
Hegðun, heilsa, þroski og persónuleiki
- Sérstaklega óskipulagður eða áráttukennt skipulag.
Getur verið trúðurinn í bekknum, vandræðagemsi eða of hljóður.
- Óvenju bráð- eða seinþroska (tala, skríða, ganga, reima skó).
- Óvenju fljót til
- Fær oft eyrnabólgu; viðkvæmur fyrir mat (mataróþol), aukaefnum og
- efnavörum.
- Eyrnabólgur já... ég er að sjá það í fyrsta skipti að það tengist
Sefur mjög fast eða mjög laust; vætir rúmið lengur en eðlilegt telst.
- Sterk réttlætistilfinning; tilfinninganæmur; með fullkomnunaráráttu.
- Já mjög svo... sérstaklega réttlætiskenndin
- Mistök og einkennin aukast verulega ef viðkomandi kemst í uppnám, í tímaþröng,
- við tilfinningalegt álag eða veikindi.
- Ójá
Það eru engin smáræði sem þessi stelpa hefur þurft að díla við.
Í 2.-3.bekk var farið að bera mjög á seinlæsi hjá henni og hún sett í sérkennslu í lestri.
Þá fór einnig að bera á miklum veikindum hjá henni sem aðallega einkenndust af uppköstum á kvöldin,nóttunni og á morgnana,yfirliði,höfuð og augnverkjum.þrisvar var hún send á bráðamóttöku með ofboðslega kviðverki og of háan blóðþrýsting.Ég var alltaf með hana hjá lækni.Það er búið að rannsaka hana hátt og lágt og ekkert finnst.Hún er búin að fara í speglanir, ómskoðanir alskyns blóðprufur og ekkert hefur fundist að henni..það er búið að gefa henni lyf við hinu og þessu...þau hafa engu máli skipt.
Hún var hjá skólasálfræðingnum sem greindi hana með aðskilnaðarkvíða frá okkur foreldrunum og heimilinu og kyngdi ég því,því hún var mikið háð mér.
Það sem ég áttaði mig ekki á þá var af hverju var hún ekki með þennan aðskilnaðarkvíða þegar hún var á leikskóla.?
Mér leist ekkert á þróun mála og sérstaklega ekki hvernig mæting og lærdómurinn gengu fyrir sig ...í 7.bekk fór ég með hana í Lesblindusetrið og þar var hún greind með dyslexyu.
En grunnskólakerfið á Íslandi gerði ekki ráð fyrir lesblindu nema að til voru hljóðbækur (sem betur fer eru þessir hlutir að breytast í dag og á ég stóran þátt í því ásamt dyggum stuðningsmönnum og þakka ég þeim innilega fyrir stuðninginn og að berjast með mér )
En greiningin ein og sér hefur lítið að segja.Gunna hélt áfram að vera með þessi veikindi.
Loks komst hún að hjá barnageðlækni sem var fljótur að finna út hvað væri að:
Ofsakvíði gagnvart skóla hafði þróast með skólagöngunni þar sem hún réði illa við öll verkefni vegna lesblindunnar.
Þegar hugurinn réði ekki við kvíðann tók líkaminn við með fyrrgreindum afleiðingum.
Geðlæknirinn kom henni að hjá sálfræðingi og ávannst töluvert þar.En þar sem við þurftum að sækja þetta til R.vík. og borga brúsann sjálf urðum við að hætta í þeirri meðferð.10 þús. á viku var einfaldlega of mikið fyrir budduna okkar þá.
Hún er á kvíðastillandi lyfjum núna og er búin að vera í viðtölum 2-4 sinnum í mánuði á BUGL í 1/2 ár og er að læra að höndla kvíðann.Meðulin eru líka að gera sitt gagn.Hún er svo til hætt að æla og allt gengur miklu betur.
Já hún komst inn á BUGL eftir 4 ára bið !!!! Hugsið ykkur !!! Þvílíkt kerfi !!!!
Mér finnst sorglegt til þess að vita að fullorðið fólk sé að bulla um hana og jafnvel eiðileggja það sem við erum búin að vera að byggja upp í gegnum árin.
Ég er mjög stolt af stelpunni minn og hvernig hún berst á hverjum einasta morgni við fjandans kvíðann.
Ég vil taka það fram að kennarar og skólastjórnendur velkjast ekki í vafa um veikindi Gunnu.Enda hafa þau þurft að sitja 2.fundi 3 síðast liðin ár með fræingunum sem hafa verið að vinna með hana.
Í
lokin langar mig að setja hér smá dæmi um það hvernig lesmál og annað virkar fyrir þá sem eru með Dyslexiu.




Ég vona að það hafi heppnast að setja þetta inn.
Knús á línuna 
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (38)
Núna veit ég
1.3.2009 | 21:24
af hverju hlutirnir koma ekki af sjálfu sér....
Það þarf ekki frekari fræði en stjörnuspána mína....
sjáið bara...
Þú er hugsi yfir einhverju í dag. Einsettu þér að halda jafnvægi á milli einkalífs og starfs og þá koma hlutirnir af sjálfu sér.
Vandamálið er sem sé að ég er ekki að vinna.......
Segið svo að ég nenni ekki orðið að blogga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Halló !!
23.2.2009 | 09:42
Það er ekta mánudagur í mér.
Lengri verður ekki þessi færsla því það er mánugadur.
BLIKK 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
HAHAHA...
13.2.2009 | 12:12
Hann gefst ekki upp þessi maður……Geir og Grani tóku af honum þokulúðurinn sem hann var með í mótmælunum fyrradag en hann mætti með nýjan lúður og nýja tækni við Seðlabankann í morgun…….sjá hér fyrir neðan……….......
Í boði Jóns Péturs.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Jújú Pési frændi....
11.2.2009 | 20:39
~~~~~~~
~~~~
Lexía 1:
Maður fer í sturtu rétt í þann mund, er konan hans er að ljúka sinni og dyrabjallan hringir.
Konan vefur um sig handklæði og hleypur til dyra.
Hún opnar hurðina og úti stendur Biggi úr næsta húsi.
Áður en henni tekst að koma upp orði segir Biggi: "Ég gef þér hundraðþúsund ef þú lætur handklæðið falla".
Hún hugsar sig um smá stund og lætur svo handklæðið falla og stendur nakin fyrir framan Bigga. Eftir nokkrar sekúndur lætur Biggi hana fá hundraðþúsund og fer.
Konan vefur handklæðinu aftur utan um sig og fer aftur inn.
Þegar hún kemur inn á bað spyr eiginmaðurinn: "Hver var þetta?"
"Þetta var Biggi í næsta húsi", svarar hún.
"Frábært", segir maðurinn, "nefndi hann eitthvað um þessi hundraðþúsund sem hann skuldar mér?"
Boðskapur sögunnar:
Ef þú deilir mikilvægum upplýsingum varðandi lán og áhættu með hluthöfum tímanlega geturðu verið í aðstöðu til að koma í veg fyrir óþarfa afhjúpun
*******
Lexía 2:
Prestur bauð nunnu far. Hún settist inn og krosslagði fætur, sem varð til að bera fót hennar.
Presturinn missti næstum stjórn á bílnum. Eftir að hafa náð stjórninni aftur, strauk hann hendinni laumulega upp eftir fæti hennar.
Nunnan sagði þá: "Mundu eftir Orðskviðunum 10:4".
Presturinn dró að sér hendina, en þegar hann skipti um gír strauk hann hendinni aftur upp eftir fæti hennar.
Aftur segir nunnan: "Mundu eftir Orðskviðunum 10:4".
Presturinn afsakaði sig og sagði: "Fyrirgefðu systir, holdið er veikt".
Er þau renna í hlað við klaustrið andvarpar nunnan þunglega og fer sína leið.
Þegar presturinn kemur í kirkjuna flettir hann upp Orðskviðunum 10:4. Þar stóð: " Snauður verður sá, er með hangandi hendi vinnur, en auðs aflar iðin hönd".
Boðskapur sögunnar:
Ef þú ert ekki vel upplýstur í starfi þínu gætirðu misst af stórkostlegum tækifærum

~~~~~~
~~~~~
Lexía 3:
Sölumaður, ritari og deildarstjóri eru á leið í mat þegar þau finna fornan olíulampa.
Þau nudda lampann og út kemur töfraandi. Andinn segir: "Ég veiti hverju ykkar eina ósk".
"Ég fyrst! Ég fyrst!", segir ritarinn. "Ég vil vera á Bahamaeyjum á hraðbát algerlega áhyggjulaus". Og púff! Hún er horfin.
"Næst ég! Næst ég!", segir sölumaðurinn. "Ég vil vera á Hawaii að slaka á með einkanuddara og endalausar birgðir af Pina Colada og ástinni minni". Og púff! Hann er horfinn.
"Allt í lagi, það er komið að þér", segir andinn við deildarstjórann.
Deildarstjórinn segir: "Ég vil að þessi tvö verði komin aftur á skrifstofuna eftir mat".
Boðskapur sögunnar:
Alltaf láta yfirmanninn tala fyrst.
Knús á línuna .

Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Ætlaði að segja það......
29.1.2009 | 22:55
Ég hringdi í Árna í gærdag frekar æst..
Hæ þaðerbúiðaðstelabílnum!!!!!!
HA??
Jáh hann er ekki í skúrnum....
Nú er hann þá ekki úti.......??
Árni!!!!! ég er að segja þér að það er búið að stela bílnum skliuriHA??
Núnú ? Hvar er Jón Þór ????
JónþÐÐ ????????.........ég fékk kast......geðveikt hláturskast....
Hver andskotinn er að þér ??
IHH hérna...... ég sendi Jón Þór með Gunnu í bæinn til tannréttingarþúveist Á BÍLNUM..........
Það er ekki oft sem veðrið hér í bæ leifir snjónum a sitja kyrrum.
Ég skrapp út fyrir með myndavélina í morgun..
Myndir teknar upp úr kl 8
Myndir teknar um ellefu leitið
Stína við hliðina var bar kát þó hún þyrfti að fjarlægja mikinn snjó af bílnum.
Séð út botnlangann
Trén í garðinum mínum eru svo há að það rétt sést í húsið
svo var farið bakvið á pallinn
Eigið svo albesta föstudag til þessa.
SWinnnng
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
Pési frændi..
27.1.2009 | 15:57
Þessi var að koma aftur út á
vinnumarkaðinn eftir 30 ára fjarveru .......
Myndskeiðið er aðeins í 4 sekúndur svo þú þarft að fylgjast vandlega með.
Ef þú ert undir fertugu þá er ekki víst að þú skiljir þetta.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Er ekki málið að rokka inn í föstudaginn......
22.1.2009 | 23:56
Status quo!!! er það ekki einhvern veginn þannig sem staðan er
Blingg
Bloggar | Breytt 23.1.2009 kl. 00:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Fyrir ykkur sem eruð að fylgjast helgarævintýrinu mínu
21.1.2009 | 23:30
Þá hefur viðkomandi gengið frá sínum málum og met ég hann mikils fyrir það.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Mótmælin ,,myndir af vetvangi teknar upp úr miðnætti
21.1.2009 | 04:01
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Það er kominn tími til að segja frá því að (framhaldsfærsla)
20.1.2009 | 23:35
leigubílstjórinn talaði við mig á sunndaginn og sagðist endurgreiða mér og var það gert strax í gærmorgun.
Ég vildi bara láta dýrið kveljast dáldið þ.e.a.s.hafi hann snefil af samvisku.
Þetta er ekki lengur mitt mál nema af því leiti að ég vil fá að vita hver þetta er.EKKI TIL AÐ SEGJA YKKUR ÞAÐ NÉ NEINUM ÖÐRUM HELDUR TIL AÐ HREINSA AÐRA GRUNAÐA.Ég er orðin nokkuð viss að þetta var enginn af heimagöngunum mínum.Lýsingin passar ekki við neinn þeirra.
Í gær átti að kíkja á upptökur úr öryggismyndavélum á 800 Bar.Vitni sem átti símann sem bíllinn var pantaður úr er til staðar.
Ég skráði mig í þennan hóp á Facebook.

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
ER nema von að allt sé upp á rönd.....
20.1.2009 | 09:27
*******
Var að fá þennan sendan.
*****
þegar konu eina bara að. Spurði hverju þeir væru að velta vöngum yfir.
Aaaaa, við eigum að finna hæðina á stönginni en við erum ekki með neinn
stiga. Aaaaa, heyrðist frá konunni, opnaði tösku sína, tók út
skiptilykil, losaði stöngina upp, lagði hana niður, tók nú upp málband
og mældi stöngina: 5 metrar og 65 sentimetrar, og hélt hún síðan á
braut.
Eftir stóðu þeir félagar skellihlægjandi: Er þetta ekki dæmigert fyrir
konur, okkur vantaði hæðina en hún sagði okkur lengdina.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Nóttin,nóttin er til þess að......
18.1.2009 | 20:13
Þvílík nótt !!!
Krakkarnir báðir að heim og við hjónakornin ein aldrei slíku vant.......
Neinei það var ekkert villt kynlíf út um allt hús.
Pálmason fór meira að segja á undan mér inn í bæli og eins og húsbændum er tamt þá skellti kallinn í lás.......ég hélt reyndar að ég væri húsbóndinn......en ja.......
Eitthvað saknaði hann mín og kom fram og við fórum út að reykja og ég lokaði náttúrulega hurðinni..
Djöfullinn LÆSTURU..
nei lokaði bara..
Við sem sé lokuðum okkur úti um 2 leitið í nótt.....sem betur fer var svefnherbergisglugginn opinn og Árni er nettur....
Nóttin
var
nú
rétt
að
byrja.
Síminn vakti okkur upp úr fimm held ég.
Halló ..
Röddin...góða kvöldið ég er leigubílstjóri.......getur verið að ég hafi verið að keyra son þinn heim
Hálfsofandi....það veit ég ekki....
Hún útskýrir málið.
Segist hafa keyrt strák hingað.Hann hafi farið að húsinu og komið strax aftur og sagst þurfa að fara inn bakdyrameginn til að ná í kortið sitt.
Ha??? og já og nei hann er ekki hér........ég er að klæða mig bíddu...
Ég æði út á tásunum og við bílstjórinn sem var kona leituðum í kringum húsið .....enginn......ég hringi í soninn sem svaraði ekki.......ég hringi heim til besta vinar hans........og á fleiri staði en hann hafði hvergi komið......
Bílstjórinn lýsti þeim er hún hafði keyrt og gat sú lýsing vel átt við soninn......
Nývöknuð "móðirin" hugsar sitt og fer í panik.........djö hefur hann dottið svona rosalega í það að hann sé orðin brjálaður.........hann sem á að vinna á morgun.........
Hann gat ekkert annað en verið orðin brjálaður...því hann hagar sér einfaldlega ekki svona ALDREI.
Eina sem ég sá í stöðunni var að borga bílinn.....7500 KALL
Þegar bílstjórinn var farin fór ég að hringja í soninn... ..komin hálfa leið yfir um..... hringdi og hringdi og loks svaraði hann.
Ég argaði á hann ...hvar í andskotanum ertu ???
Bíddu ...skiljið þið ekki neitt..........HA? ég sagði bæði þér og pabba að ég myndi gista á Selfossi í nótt......
Já ég veit en hvar ertu ??????
Í sófanum hjá ....... uppi á Selfossi.........
Ég sem sagt var að vekja hann......ég sagði honum hvers vegna......
Þetta gat engan veginn passað.
EINHVER SKULDAR MÉR 7500 kr
Ég hringdi í leigu bílastöðvarnar á Selfossi og hafði loks upp á bílstjóranum.
Því næst hringdi ég í lögguna.....
JÁ ÞÚ ÉG KÆRÐI
ÞIG
Þegar ég svo vaknaði eftir lítinn svefn fór ég að skoða hvort ég sæi einhver spor og rakti mig áfram út af lóðinni og lengra..
JÁ ÞÚ NOTAR SENNILEGA SKÓ NR 42-3.
Ég hringdi aftur í lögguna......þá sömu sem eru svo duglegir að stoppa mig.........stoppa mig stundum 2x á sama 1/2 tímanum........þeir ætluðu að hringja en ..............veit ekki.
Ég veit á þessari stundu var leið fundinn til að bera kennsl á þrjótinn.
Mér leið mjög illa í nótt og morgun.......Mér finnst eins og sá sem vísar beint á húsið mitt viti þokkalega vel hver ég er og hvernig ég er.Manneskja sem hjálpar börnunum sínum þegar hún telur nauðsyn.
EN MAÐUR Á VÍST ALDREI AÐ BORGA FYRIR PAKKANN FYRR EN MAÐUR HEFUR TEKIÐ VIÐ HONUM.
Skítt með peninginn.....
Ég er sár út í þann er þetta gerði og ÉG FYRIRLÝT ÞANN SEM ÞETTA GERÐI
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Það er ekki svo erfitt að láta himininn brosa.
15.1.2009 | 10:26
Í þriðja skipti sem ég snúsaði klukkuna í morgun heyrðist önug rödd við hliðina á mér......
Getur þú ekki látið þetta þegja..
Á ég að grýta henni í vegginn.....
Ertu rugluð ??
Já.
Flisssss.
Eftir að hafa keyrt dótturina í skólann kíkti ég á m.bl og sá að Þ-Leggur frændi og hans menn höfðu haft í nógu að snúast.Sem er gott mál.Til að skemma ekki daginn lét nægja að lesa þá frétt.
Ég fót í staðinn að leika mér í tölvunni.Í gær birti ég mynd sem virðist hafa farið um víða veröld.Ég skellti henni inn bara til að setja eitthvað....
Hún er hér.
Ég ákvað í gær að það væri ekkert mál að láta hmininn brosa svona og prófaði
Bros yfir Sæfjallaströnd.
Þetta heitir feik.......
Það er eitthvað við þennan dag sem leggst einkar vel í mig......kannski af því ég mundi eftir að taka lýsispillu í gærmorgun
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
F
14.1.2009 | 13:38
Ég hef verið þrumulostin og sjóðandi bandbrjáluð yfir fréttum síðustu daga.Ég hef byrjað á 3 færslum....
Já ég kæmi því ekkert að í fáeinum orðum sem ég vildi tjá mig um.
Eitt er víst að almenningur veit ekkert í hvorn fótinn því er óhætt að stíga.
Tilla tá eða traðka.
En elskurnar mínar
ég
ætlaði bara að senda ykkur þetta
One in a million shot ... A smile from Heaven...
Send this smile to someone you want to bless today…
I just did.
Svo ætla ég að reyna að ná í skottið á ykkur öllum og kíkja á síðurnar ykkar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Vona að Bjarni sé að ríða á vaðið
5.1.2009 | 22:03
Þetta er nú einu sinni það sem ég og ÞJÓÐIN öll hafa talið að fjárglæframönnunum bæri skylda til að gera og það með réttu.Þeir eiga ekki neitt í þessum peningum og hafa aldeilis ekki unnið fyrir þeim.
Ekki bara skila starfs.l.s.launum heldur líka þeim óraunhæfu ofurlaunum sem þeir hafa skaffað sjálfum sér og öðrum og síðast en ekki síst fénu sem þeir fjárfestu með erlendis rétt fyrir hrun bankanna.
Ég tek ofan fyrir Bjarna í þessu sambandi.
Vona svo að einhverir af hinum hafi þann dug í sér að fylgja á eftir.
Ég veit.. ég er bjartsýn og bleik.
|
Endurgreiddi 370 milljónir |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
STÖÐ 2 !!!!! NÚ ER ÉG AÐ SPRYNGA
5.1.2009 | 00:19
AÐ GEFNU TILEFNI ER ÉG AÐ SKRIFA AFTUR UM STÖÐ 2.
Þeir loka kl 22 þannig að ég næ ekki í þá .Sendi þeim þennan póst í staðinn.
Hæjjjjj
ég er alveg að verða búin að fá mig fullsadda á að þið lokið alltaf hjá mér skellið bara lás á allt þegar áskriftarskil eru............
ég hef áður kvartað undan þessu símleiðis.
Nú er klukkan of margt til að ná sambandi við ykkur.þannig að stövarnar sem ég er með verða læstar þar til ég næ í ykkur á morgun eftir að vera búin að hrigja 5x og bíða í klukkutíma eða meira.....það er orðin spurning hver á inni hjá hverjum ....
Ég er í greiðsluþjónustu og ávallt hefur verið greitt á réttum tíma og hef ég verið ásrkifandi samfleitt í 2-3 ár.... svo takið þið upp á þessum andskota núna.
Í byrjun desember bloggaði ég um þetta .
Ég held ég þurfi að blogga aftur.
F.H Árna pálmasonar Kt.xxxxxxxxxxx sími xxxxxxxx
Sólveig Guðjóndóttir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Konan er andlaus...
4.1.2009 | 02:33
Hvorki haldin illum né sérstaklega góðum.....
Tóm
Það er ágætt að vera tóm og borða brauð með mysing kl 2.30 um nótt.
Ég hef ekki roð við ykkur bloggvinum.....
Nú er ég bara stopp...
og enn þá er ég stopp
En allavega er þetta vísir af lélegu bloggi.

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Samkvæmt þjóðskránni ( var mér tilkynnt af mbl.blog) heiti ég
30.12.2008 | 14:11
Sólveig María Guðjónsdóttir.
Eins og ég vissi það ekki
Það er það fyrsta sem stendur undir hausmyndinni minni þegar er búið að tvísmella á hana og hefur staðið síðan þessi síða varð til.
Ég er skírð í höfuðið á ömmu á Ísafirði, Sólveigu Steindórsdóttur heitinni og ömmu á Eyri, Maríu Herborgu Þorsteinsdóttur heitinni.
Hérna eru amma á Ísafirði sem síðan varð amma Veiga eftir að hún og afi fluttu í Hafnarfjörð og mamma mín Jóna Jóns.
Hérna er svo amma á Eyri ásamt dætrum sínum,
Heiðu,Maju og Þóru.
Ég er búin að staldra lengi við þessa færslu.
Hafsjór af minningum hrannast upp um þessar yndislegu ömmur mínar.Þær eru báðar bogamenn og ég fædd mitt á milli fæðingardaga þeirra.Ekki skrýtið að ég finni mig svo mikið í þeim báðum.
Elsku ömmurnar mínar ég finn fyrir ykkur og heyri fyrir mér raddirnar ykkar,fullar af hlýju,kímni,hlátri,ég sé brosin ykkar.
Æji snöggt.
Jæja þessi færsla átti að vera um það hvað mbl.blog var vinsamlegt að benda mér á hvað ég heiti !!
En ég er að fara í klippingu....gleimdi því alveg fyrir jólin eða réttara sagt jólin skullu á jafn óvænt og endranær
Svo þarf ég að þrifa bílinn að utan því jólin hjá mér eru ávallt annasöm og margar ferðir farnar og bíllinn ekkert nema Reykjavíku/salltpækill og eitthvað úr Árnessýslu býst ég við.Allavega náði Selfosslöggan að stoppa mig 2x á sama klukkutímanum.....ég bauð að sjálfsögðu upp á brjóstasýningu ef þeir næðu að stoppa mig aftur það kvöldið.......en þeir tóku ekki sénsinn 
Í augnablikinu langar mig óskaplega að fara út og saga svona 1.m.af trjánum hér við innganginn..
serían kæmi svo miklu betur út svoleiðis
.Sumir segja að ég sé smámunasöm
Ég vil þakka ykkur kæru bloggvinir og öðrum sem rekast hingað inn samfylgdina á árinu sem er að líða.
Og
óska ykkur
gæfu og farsældar
ást og friðar
og umfram allt
hamingju
á nýja
árinu.
Faðmur á línuna
Ég ætla að eyða 5 síðustu mínútunum af árinu í þögn og 5 fyrstu á nýja árinu..... trúlega met ef ég næ að þegja svo lengi innan um fullt fullt af fólki
Svo er aldrei að vita hverju kerling tekur upp á
Bloggar | Breytt 31.12.2008 kl. 13:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
GLEÐILEG JÓL !!
23.12.2008 | 17:14
Búin að borða skötu og súpa hveljur...þið hélduð að ég ætlaði að segja íslenskt brennivín...
Skatan sem handteruð er af Jonna frænda reif í svo kellunni lá við andnauð hvað eftir annað.
En hér er ég hress og spræk sem aldrei fyrr
og
óska
ykkur
gleðilegra
jóla.
Bloggar | Breytt 25.12.2008 kl. 01:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)


mydogs
zordis
systa
zoti
heidathord
hronnsig
disadora
christinemarie
steina
korntop
arnysig
bestust
blavatn
jorunn
danielhaukur
ingvarg
topplistinn
bubot
estro
krutti
fanneybk
gunnipallikokkur
meistarinn
dufa65
kollaogjosep
kristjanas81
jonara
lindalinnet
milla
nonniblogg
radda
rannug
tigercopper
ellasprella
olafurfa
sigrunfridriks
totad
kop
skessa
skordalsbrynja
svala-svala
prakkarinn
torduringi
samma
unnurerla
asdisomar
annaragna
himmalingur
kara84
brahim
boi
draumur
konnster














