Solla þúrt me ljóddar TÆR..

Sagði litla þriggja ára skrípið hún Natalía Diljá við mig í gær þar sem ég hringaði lappirnar undir mér í sjónvarpssófanum og ekki nóg með það hún hrillti sig og labbaði í burtu og tautaði oggisslett.....snéri svo við og sagði... Solla þú verður að fara í bað......humm ég kíkti undir annan fótinn og sá að ég var þokkalega óhreyn á fætinum......það upplýsist hér með fyrir þá sem ekki þekkkja mig að ég geng alltaf berfætt og er ekkert að fara í skó þó ég stökki út með ruslið eða á snúruna eða bara út í smók.....Samt undantekningar ef ég fer á skemmtistaði eða eitthvað svoleiðis og eins núna í kuldanum hef ég verið í sokkum annars verður mér svo asskoti illt í fótunum..

Aldrei datt mér í hug að ég mundi blogga um mínar forljótu tær........

Þetta var bara svo mikil snilld að heyra og sjá krakkann.

Rokið er að hlæja að mér og jafnvel mana mig að koma út og setja upp séríur á bílskúrinn og kringum anddyrið.....eitthvað sem var á áætlun fyrir mánaðarmót.

Þar sem ég er ekkert endilega eins og aðrir og rokið er að bulla í mér er ég að fara út með hamar og tilheyrandi því nú skulu tendruð ljós........

Ef þið heyrið fréttir í hádeginu.......kona hátt á fimmtugsaldri í Þorlákshöfn fauk úr Eyjahrauni út að sundlaug....konan hafði í fórum sínum hamar og forláta jólaljósaslöngu.......stigi var fastur við ljotar tær konunnar..........

JÁ ÞAÐ ER FRÉTT UM MIG.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Láttekkisonna ...... Ég er ein af þessum berfættu konum.  Nú getum við stofnað klúbb berfættra kvenna !!

Knús á þig og rokið og hamarinn og ljósin í bænum ... er eitthvað betra en að skella sér í heitan pott ef þú tekur flugið?

www.zordis.com, 4.12.2007 kl. 10:16

2 Smámynd: Kristberg Snjólfsson

 altaf að hlusta á börnin fara í bað kona  

Kristberg Snjólfsson, 4.12.2007 kl. 10:46

3 Smámynd: Margrét M

yndisleg þessi börn ..

Margrét M, 4.12.2007 kl. 14:27

4 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  "Ljótar tær sáust á sveimi yfir Þorlákshöfn í dag.  Ljósum prýddar með stigaræskni á fljúgandi fart í eftirdragi"!  Fjölmargir hringdu inn til lögreglu og létu vita af "sýn" þessari.  Eru nú "20 geðlæknar með hjúkrunarliði" á leið austur fyrir fjall, að gera "neyðarkönnun" á  hrakandi geðheilsu Þorlákhafnarbúa!

  Var þetta annars ekki í fréttum í dag?

Sigríður Sigurðardóttir, 4.12.2007 kl. 19:47

5 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Gunnar Helgi Eysteinsson, 4.12.2007 kl. 20:03

6 Smámynd: Solla Guðjóns

Ástandið hér austan fjalls er þannig að ekki sést sjónvarp,örugglega ekki heldur útvarp.......meina sko sést alveg útvarp en heyrist ekki.

Ég stóð mig asskoti vel í stiganum,veðrið réði hvergi við mig.......þannig engar fréttir til að lífga upp

á sálartetur þorlákshafnarbúa

Solla Guðjóns, 4.12.2007 kl. 20:22

7 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Hahah . Vonandi urðu tærnar hreinar í lauginni. Ég geng svona á sokkunum um allt og er líka stundum með ljóta botna. Stelpan litla var frábær.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 4.12.2007 kl. 20:28

8 Smámynd: Elín Björk

Hahaha  Frábær þessar elskur! Og gott að þú ert heilu og höldnu eftir ljósaupphengiríið
Knús til þín sæta

Elín Björk, 5.12.2007 kl. 00:11

9 Smámynd: Aðalheiður Friðriksd. Jensen

Þú er ótrúleg og alltaf gott að viðra tærnar annað slagi líka

Knúss og klemm

Aðalheiður Friðriksd. Jensen, 5.12.2007 kl. 08:41

10 Smámynd: Svala Erlendsdóttir

hehehe.. ótrúlega hreinskilin lítil stelpa. Kanski best að þvo tásurnar fyrir jólin

Svala Erlendsdóttir, 5.12.2007 kl. 09:27

11 Smámynd: Ólafur fannberg

góðar táslukveðjur

Ólafur fannberg, 5.12.2007 kl. 10:03

12 Smámynd: Vatnsberi Margrét

Knús tásulína

Vatnsberi Margrét, 5.12.2007 kl. 16:13

13 Smámynd: Heiða  Þórðar

hehehe, yndisleg lesning.

Heiða Þórðar, 6.12.2007 kl. 02:04

14 Smámynd: Ingunn Jóna Gísladóttir

Börnin er barasta yndisleg, hrein og "tær" og ekkert að skafa af sínum hugsunum. Krútlegur pistill, kveðja Ingunn

Ingunn Jóna Gísladóttir, 6.12.2007 kl. 11:43

15 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gott að geta veitt tilhlýðilega upplýsingar ef svo skyldi fara Solla mín

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.12.2007 kl. 13:52

16 Smámynd: www.zordis.com

Haaaalllllllóóóóóóóóó .....  8 des og styttist í allt trummsi!

Ég er að leita að jóla-andanum á fullu  

www.zordis.com, 8.12.2007 kl. 20:50

17 identicon

hahaha

 þú ert bara eins og ástralir, ganga um flest allt berfættir

xx

Kristjana Engliráð Sigurðardóttir 8.12.2007 kl. 21:29

18 Smámynd: www.zordis.com

 það væri lag að vera með svonnna hollýwúdd glitrandi vink kalla þegar kona droppar svona inn í leit að nýjum fréttum!

Knússl á þig tássla!

www.zordis.com, 9.12.2007 kl. 11:20

19 Smámynd: Sigrún

hitt litlu sætu skvísuna í RL-VÖRUHÚSI lol í gær var bara feiminn við mig þessi náta svo sæt !!!

verð að koma og hitta hana hjá þér ekki fór mikið fyrir því að hún væri feiminn við mig þegar ég gekk með Auðunn Ara

Sigrún, 10.12.2007 kl. 11:42

20 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

dóttir mín er svona líka ! skil þetta bara ekki, mér er alltaf kallt á tásunum.

Ljós til þín

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 10.12.2007 kl. 21:55

21 Smámynd: Gunnar Páll Gunnarsson

Þú ættir bara að sjá mínar tær!

Gunni Palli kokkur. 

Gunnar Páll Gunnarsson, 10.12.2007 kl. 22:35

22 Smámynd: Daníel Haukur

Hahaha, ég hló upphátt að þessu bloggi:D

Ekki samt fara út í óveðrið, þú getur orðið lasin Solla mín;)

Sjáumst

Daníel Haukur, 11.12.2007 kl. 00:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband