"FJANDAKORNIÐ AÐ MÉR"

Eins og amma María heitin myndi segja.

En ég var að fá póst frá einhverju dæmi

sem ég var að grufla í um daginn.

EEHHHH var að reyna að dánlóta fótósjopp.

Jájá ég er bjartsýn og ekkert

er ómögulegt fyrr en annað kemur í ljós.Smile

Nema hvað pósturinn inniheldur tilkynningu

um að netfangið mitt hafi hlotið

hæsta vinning í einhverju blabla

500.000.euros.

Hvergi stendur hvernig á að greiða mér þetta en mér er boðoð að kaupa eitthvað hjá þeim  og  drægist verðið frá vinningsupphæðini.

Og fjandakornið að mér...mig langar að prófa.......

Hvað mundu þið gera?????

Ég hef áður fengið svipaða póst og þá þurft að borga til að fá vinninginn sem hefur ávallt verið mikið lægri en að ofan getur.....þeim hef ég eytt en "fjandakornið að mér". 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolla

Fyrst vil ég óska þér tilhamingju. Ég persónulega myndi hunsa þetta, en það er freistandi að prófa. Athugaðu hvort að einhverjir sem þú þekkir hafi fengið þetta líka. 

Bestu kveðjur 

Kolla, 26.8.2007 kl. 13:05

2 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Ég er alltaf að fá póst um að ég hafi unnið  hitt og þetta. Þann póst opna ég aldrei.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 26.8.2007 kl. 13:24

3 Smámynd: www.zordis.com

Éttu úldinn hund frekar en að gera þetta!

En hvað segir yfirdúllusnúllupjöllukrúsin mín ... "Æj ég er í stuði, er að reyna að slíta mig frá tölvuöndinni"  Smjúts á þig ........

www.zordis.com, 26.8.2007 kl. 13:38

4 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Ef þeir fara að biðja um kennitölu og númerið á bankareikningnum þínum skaltu bara gleyma þessu.

Sigríður Sigurðardóttir, 26.8.2007 kl. 22:13

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég myndi henda þessu í ruslið.  Hér er greinilega verið að plata þig ljúfan mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.8.2007 kl. 01:18

6 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ekki spurning... hentu þessu í ruslið! Þetta er plat!

Gunnar Helgi Eysteinsson, 27.8.2007 kl. 08:05

7 Smámynd: Margrét M

hendessu  strax í ruslið  ekkert múður

Margrét M, 27.8.2007 kl. 09:10

8 identicon

Elsku dúllan

láttu mig bara frekar fá kortanúmerið þitt og ég skal fara erlendis og spreða fyrir þig

þetta er jafn glatað fé einsog að freistast til að kaupa eitthvað hjá þeim :P

sigrún huld 27.8.2007 kl. 10:36

9 identicon

SOLLA!!!

Ekki láta glepjast. Það er svo sannarlega ekki allt gull sem glóir.

Fjandakornið ...

Lísa 27.8.2007 kl. 12:19

10 Smámynd: Solla Guðjóns

Ok...hendi honun án þess að opna linkinn sem ég átti að opna til að fá frekari upplýsingar........Langaði bara að vita hvað þið hefðuð gert

Solla Guðjóns, 27.8.2007 kl. 12:34

11 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

NEI !!!!

það þarf að passa sig, ég hef líka fengið upphringingar frá einhberjum löndum um að ég hafi unnið vinninga ferð til karabíen !!

þvílíkt bull !!!passpaa dúlla

AlheimsLjós til ykkar

Steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 27.8.2007 kl. 16:41

12 Smámynd: Vatnsberi Margrét

Til hamingju með stelpuna um dagin

Vatnsberi Margrét, 27.8.2007 kl. 16:46

13 Smámynd: www.zordis.com

  berfættustripluknús!

www.zordis.com, 27.8.2007 kl. 19:46

14 Smámynd: Elín Björk

Hmmm, ekki láta freistast.... þetta er pottþétt alltíplati.....

Klem

Elín Björk, 27.8.2007 kl. 21:51

15 Smámynd: Solla Guðjóns

áðan elskan

Solla Guðjóns, 28.8.2007 kl. 01:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband