Tilgangur lífsins????????????

Þess vegna eru karlmenn hamingjusamari

Menn hafa lengi velt því fyrir sér hvort kynið sé hamingjusamara, karlar eða konur. Nokkrir bandarískir hugsuðir hafa sett fram tuttugu ástæður fyrir því að karlar séu hamingjusamari. 1. Við höldum eftirnafninu okkar. 2. Brúðkaupsundirbúningurinn sér um sig sjálfur. 3. Bifvélavirkjar segja okkur sannleikann. 4. Sama vinna, hærri laun. 5. Hrukkur auka á karakter. 6. Brúðarkjóll 300 þúsund, smókingleiga 5000 krónur.

7. Fólk horfir aldrei á brjóstið á okkur þegar við erum að tala við það. 8. Það er gert ráð fyrir því að við ropum og rekum við. 9. Símtöl taka 30 sekúndur. 10. Við vitum hitt og þetta um skriðdreka. 11. Við þurfum aðeins eina ferðatösku fyrir fimm daga frí. 12. Við getum opnað krukkur. 13. Nærbuxur kosta 500 kall, 3 í pakka.

14. Þrjú pör af skóm er meira en nóg. 15. Við erum ófærir um að sjá krump í fötum. 16. Sama hártískan endist í áratugi. 17. Við þurfum ekki að raka okkur fyrir neðan háls. 18. Eitt veski, eitt skópar, sami litur, allt árið. 19. Við ráðum hvort við látum okkur vaxa yfirskegg. 20. Við getum gert jólainnkaup fyrir 25 ættingja, á aðfangadag, á 45 mínútum.

Já heimurinn yrpi ansi litlaus og leiðinlegur án kvenna!!!!!!!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Veit ekki með yfirvara skeggið ..... ég er föst í danskri mengun um karlmenn og yfirvaraskegg!

Annars eru sumir karlar bara kúl með yfirvaraskegg og ekki að ástæðulausu að það er nefnt með öðru nafni "snípatryllir" ....   well, well, hef það ekki lengra!

Knús til þín prinsessa! 

www.zordis.com, 13.1.2007 kl. 12:24

2 Smámynd: Elín Björk

Hahaha, já þetta er mikið rétt..... en ekki vildi ég skipta samt ;)

Knús til þín*

Elín Björk, 13.1.2007 kl. 12:45

3 identicon

svei mér þá, ef ég er ekki bara karlmaður ... úff

Lisa 13.1.2007 kl. 13:40

4 Smámynd: Ólafur fannberg

búinn að raka af mér snipatryllirinn hehehe

Ólafur fannberg, 13.1.2007 kl. 16:25

5 Smámynd: Solla Guðjóns

Hahaha

Solla Guðjóns, 13.1.2007 kl. 23:37

6 Smámynd: www.zordis.com

Lísa !!!!  Ég er lifandi dæmi um sjónvitni og staðfesti hér með að þú ert ekki karlmaður!  Ó boy, sko!  Er ekki geðv. léttir þegar karlmaður rakar sig???  Saman ber þegar maður spinnur lopann af leggjum sér!  Ég held að málshátturinn eins og glænýr túskildingur hafi verið óspart notaður eftir rakstur!

www.zordis.com, 14.1.2007 kl. 08:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband