Ég er löngu búin að uppgötva þetta

Ánægð að sjá þetta og mæli með eftir farandiSmile

Vísir, 06. apr. 2007 11:11


Borgar sig að blunda

Þið sem vitið ekkert betra en að blunda eilítið á daginn hafið fengið nýtt vopn í báráttunni fyrir réttindum dagsvæfra. Samkvæmt nýrri rannsókn ætti fólk að jafnaði að leggja sig þrisvar sinnum á viku yfir daginn, hálftíma í senn. Þetta á jafnt að auka afköst sem og gleði í vinnu. Og vinnuveitendur ættu að íhuga þetta alvarlega líka, því að talið er að síþreyta kosti bandarísk fyrirtæki eitt hundrað og fimmtíu milljarða á hverju einasta ári.

En já veit það er ekki á allra færi að koma þessu við

og svo

STÓRT KNÚS Á LÍNUNA


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Wow ... og ég sem tek mér ekki einu sinni matarhlé!  Ó boy, en það er til bóta ég er að byrja upp á nýtt á mánudag og þá verður yndislegt upphaf að veruleika!  Smúts á þig sæta vinkona!

www.zordis.com, 15.4.2007 kl. 16:05

2 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

þtta hljómar svo rétt !!

Ljós til þín

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 15.4.2007 kl. 16:24

3 Smámynd: Sigrún Friðriksdóttir

Risa knús og takk fyrir kveðjuna

Sigrún Friðriksdóttir, 15.4.2007 kl. 20:34

4 Smámynd: Ester Júlía

Wúps..ég var búin að skrifa athugasemd en ég sá að það voru tvær færslur um sama efnið og þú hefur væntanlega eytt hinni út.  Kallinn er alla vega vaknaður .. KNÚS

Ester Júlía, 15.4.2007 kl. 23:05

5 Smámynd: Solla Guðjóns

Sorrý Ester.Mér var greinilega mikið í mun að koma þessari grein að,tvöföld færsla,eyddi vitlausri en hér er...

Á ég þá að hætta að pirra mig á sofandi kalli í sófanum?  Ha...

Ester Júlía, 15.4.2007 kl. 14:52 Já fáðu þér frekar lúr dúlla

Solla Guðjóns, 16.4.2007 kl. 08:33

6 Smámynd: Ólafur fannberg

bjútiblundur virkar

Ólafur fannberg, 16.4.2007 kl. 08:39

7 Smámynd: Solla Guðjóns

Pottþétt fyrir bogamennSama hvað Guðmundur segir En á þessari stundu eru 4.Bogamenn í ath.s. Ég og þú og Guðmndur og Ester

Solla Guðjóns, 16.4.2007 kl. 08:46

8 Smámynd: Margrét M

ja hérna ,,ég myndi aldrey ná að sofna yfir daginn 

Margrét M, 16.4.2007 kl. 08:59

9 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Er eins og mamma legg mig ekki nema ég sé veik.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 16.4.2007 kl. 16:45

10 Smámynd: www.zordis.com

Þarf að æfa svona leggjur því ég hef það á orði að ég geti lagt mig þegar ég dey!  Hver veit nema að aðalleikarinn kalli mann á teppi ef svona heldur sem horfir!

www.zordis.com, 16.4.2007 kl. 20:09

11 Smámynd: Solla Guðjóns

Já það þarf að æfa svona leggjurNá að slaka,og dorma svo milli svefns og vöku,umla eitthvað rugl ef á mann er yrt.Setjast upp teigja eins og tígur og rymja eins og ljón,brosa og halda svo endurnærð allavega á sál,áfram það sem eftir lifir dags

Solla Guðjóns, 16.4.2007 kl. 21:15

12 identicon

Nákvæmlega.. alltaf sagt þetta! Æðislegt að sjá hvað maður lifir hollu lífi

Björg F 16.4.2007 kl. 22:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband