Vona að Bjarni sé að ríða á vaðið

Þetta er nú einu sinni það sem ég og ÞJÓÐIN öll hafa talið að fjárglæframönnunum bæri skylda til að gera og það með réttu.Þeir  eiga ekki neitt í þessum peningum og hafa aldeilis ekki unnið fyrir þeim.

Ekki bara skila starfs.l.s.launum heldur líka þeim óraunhæfu ofurlaunum sem þeir hafa skaffað sjálfum sér og öðrum og síðast en ekki síst fénu sem þeir fjárfestu með erlendis rétt fyrir hrun bankanna.

Ég tek ofan fyrir Bjarna í þessu sambandi.

Vona svo að einhverir af hinum hafi þann dug í sér að fylgja á eftir.

Ég veit.. ég er bjartsýn og bleik.

 


mbl.is Endurgreiddi 370 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hansína Hafsteinsdóttir

Spor í rétta átt (dropi í hafið) en ekki bjartsýn á að fleiri fylgi í kjölfarið.

Hansína Hafsteinsdóttir, 5.1.2009 kl. 22:18

2 Smámynd: www.zordis.com

Það koma vonandi fullt af siðferðisljúfum forkálfum í kjölfarið!

www.zordis.com, 5.1.2009 kl. 22:29

3 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

úff skil ekki svona fjárhæðir. Spor í rétta átt segir Hansína. það held ég líka.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 5.1.2009 kl. 23:34

4 identicon

Mér sýnist Bjarni vera að ríða Íslendingum  -  svartur á leik

Krímer 6.1.2009 kl. 00:30

5 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Vonandi var þetta bara fyrsta afborgun hjá honum Bjarna, og svo koma allir hinir barónarnir í halarófu og borga og borga   Trúlegt ?   NEI

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 6.1.2009 kl. 00:41

6 Smámynd: Kristberg Snjólfsson

Er hann ekki bara að reyna að fá okkur til að líta á hann sem góða manninn ? okkur veitir svosem ekki af aurunum, en þetta er bara svo lítið, ef að ég tæki mark á þessu þá þyrfti hann að skila minnstakosti 10x þessari upphæð.

Kristberg Snjólfsson, 6.1.2009 kl. 09:21

7 Smámynd: Solla Guðjóns

Vissulega dettur manni í hug að þessi gjörningur sé einhverskonar syndaaflausn.

Það rétta er náttúrulega að höfða mál gegn þessum mönnum !!!

Solla Guðjóns, 6.1.2009 kl. 09:49

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Of lítið og of seint að mínu mati.  Sérstaklega ef það reynist nú rétt að þetta séu aurar sem hafi setið inni í bankanum, og þar með tapast honum hvort sem er.  Það þarf að fara betur ofan í saumana á þessum gjörningi frá A til Ö.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.1.2009 kl. 10:44

9 Smámynd: Margrét M

það er örugglega eitthvað á bak við þetta

Margrét M, 7.1.2009 kl. 13:56

10 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Er ekki manninn bara "pappírs-Pési" að reyna að friða samviskuna?  Og ekki verra, ef hann kemst eftir endurgreiðslu þessa, óáreittur inn í landið á sumrin í sumarbústað!  Sjíss!  Þvílík spilling!

Sigríður Sigurðardóttir, 8.1.2009 kl. 09:23

11 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Það ætti að sækja alla þessa "auðmenn"sem sökktu þjóðinni í skuldir til saka og frysta eigur þeirra.

EINFALT MÁL.

Magnús Paul Korntop, 8.1.2009 kl. 22:28

12 Smámynd: www.zordis.com

Ég get ekki sent hjörtu né kossa svo ég skrifa með stút á vör!

www.zordis.com, 10.1.2009 kl. 19:58

13 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Þegar þjóðin þarf að borga alla þeirra peningamálastefnu sem þessir menn settu Íslensku þjóðina í gef ég lítið fyrir þessa litlu upphæð á meðan verslings fólkíð í landinu á ekki fyrir sínum hávaxta verðtryggða og stýrivaxta sukkinu þeirra. Viti menn það eru ekki þeir sem koma til með að borga þær skuldir sem þeir settu okkur í nei það ert  þú sem borgar.

Anna Ragna Alexandersdóttir, 11.1.2009 kl. 17:58

14 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Oh.. hvað ég vildi vera bjartsýn.... og ég er það að eðlisfari..... en þetta.... nei .. veistu ég held ekki.....ég held að það búi eitthvað þarna að baki sem á eftir að koma í ljós....sorry..

Fanney Björg Karlsdóttir, 12.1.2009 kl. 11:43

15 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nei það kom enginn í kjölfarið og þetta reyndist nú vera minna er virtist í fyrstu.  Jamm kemur ekki á óvart.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.1.2009 kl. 15:05

16 Smámynd: Vatnsberi Margrét

Það væri fróðlegt hvað liggur að baki þó maður vilji trúa að þetta sé gert með heilindum.

Vatnsberi Margrét, 14.1.2009 kl. 09:36

17 Smámynd: Solla Guðjóns

Solla Guðjóns, 14.1.2009 kl. 13:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband